Náttúrufræðingurinn - 1955, Blaðsíða 57
SITT AF HVERJU
49
rænt loftslag, eitthvað sanibærilegt við það, sem nú er i Suður-Evrópu.
Aldur surtarbrandsins er þó enn mjög óviss, og eins og áður segir
gefa gróðurleifarnar ekki mjög nákvæmar upplýsingar um loftslagið.
Hin nýja aðferð til rannsókna á sjávarhita fyrr meir ætti að geta
aukið mikið þekkingu manna á loftslagi á fyrri jarðöldum.
Trausti Emarsson.
Nýtt heiti á naglús smyrils
(Degceriella ruja drosti nom. nov.).
Eftir fyrstu samanburðarrannsóknir mínar á íslenzkum ránfugla-
lúsum af ættkvíslinni Degeeriella (Fauna Islandica, 1, 1950, s. 2—3)
og einnig seinna, er ég birti grein um sama efni (Náttúrufræðingur-
inn, 1950, s. 177—182), var ég þeirrar skoðunar, að greina mætti lýs
þessarar ættkvíslar, sem lifa á smyrlinum (Falco columbarius), frá
Degeeriella-deilitegund þeirri, sem lifir á turnfálka (Falco tinnun-
culus) og veiðifálka (Falco rusticolus). Fyrir smyrilslýsnar notaði ég
nafnið Degeeriella rufa nitzschi (Giebel), 1874, og takmarkaði um
3eið notkun þessa heitis við Degeeriella rw/n-deilitegund þá, sem lifir
á Falco columbarius, en Giebel hafði notað nafnið á lýs af ættkvísl-
inni Degeeriella, er fundnar voru bæði á Falco subbuteo, columbarius
og peregrinus. Hér hafði mér yfirsézt, að nafn Giebels, Nirmus nitzschi
frá 1874, liafði þegar árið 1871 verið notað af Ponton (sjá Hopkins
and Clay, A Check List of the Genera and Species of Mallophaga,
London 1952, s. 113) og var því ógilt samkvæmt gildandi alþjóða-
reglum um nafngiftir í dýrafræði. Ég tek því upp í stað þess nafns
nafnið Degeeriella rufa (lrosti nom. nov., gefið til lieiðurs prófessor
dr. R. Drost, forstöðumanni fuglaatliugunarstöðvarinnar Llelgoland i
Wilholmshavcn, Þýzkalandi, og vel sem neotypu karllús og sem
neoallotypu kvenlús, báðar af Falco columbarius (Bær, Hrútafjörður,
NV.Island, 2.6.1935, leg. G. Timmermann), og tvær aðrar karllýs og
eina kvenlús í safni mínu af sama uppruna sem neoparatypur.
Fugl sá, er eintök Giebels fundust á, licfur sennilega verið frá
Þýzkalandi, og er talinn liafa verið Falco columbarius aesalon. Þar
sem íslenzki smyrillinn (Falco columbarius subaesalon) verður ekki
með vissu greindur frá Falco col. aesalon og þar sem hann fer mjög
víða á ferðum sínum utan varptímans, er að mínum dómi ekkert
4