Náttúrufræðingurinn - 1955, Blaðsíða 32
26
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
l.mynd. Varpstöðvar hvítmáfsins á íslandi. — The breeding distribution of the
Glaucous Gull in Iceland.
núpi í landi Sigluness á Barðaströnd. 1 Látrabjargi eru ekki hvitmáfs-
vörp, en vel getur þó verið, að einn og einn livítmáfur verpi þar á
stangli, en því miður hefur mér ekki tekizt að afla áreiðanlegra heirn-
ilda um það.1) Ég vil geta þess hér, að Bergsveinn Skúlason, fyrrum
bóndi í Skálmarnesmúla, hefur frætt mig manna bezt um hvítmáfs-
vörpin við Breiðafjörð, einkum í Barðastrandarsýslu, en hann er
manna fróðastur um fuglalíf á þessum slóðum.
Á Vestfjörðum norðan Bjargtanga eru engin hvitmáfsvörp, svo að
vitað sé, nema í Tálkna milli Patreksfjarðar og Tálknafjarðar, en tal-
ið er, að þar verpi slæðingur af hvítmáf. Ekki er heldur vitað til þess,
að hvítmáfur verpi nokkurs staðar á Norðurlandi fyrr en kemur aust-
ur á Langanesi. Þar hafa 2—3 hvítmáfspör um langt skeið orpið í
sjávarbjörgum utan til á nesinu norðanverðu (utan við Skoruvik).
Er ég var þar á ferð sumarið 1949, tókst mér þó ekki að finna nema
eitt par, sem ég get fullyrt, að hafi verið þar verpandi. Á Austur-
landi verpur hvitmáfurinn hvergi og ekki heldur á austanverðu Suð-
1) Eftir að þetta var skrifað, hef ég fengið areiðanlega vitneskju um það, að
svolítill slæðingur af hvítmáfi verpi í Látrabjargi.