Náttúrufræðingurinn - 1955, Blaðsíða 66
58
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Nú hefur Jón Eyþórsson, veðurfræðingur, bætt úr brýnni ])örf með því að semja
og gefa út handhæga kennslubók í veðurfræði. Bókin, sem er 84 bls., er einkum
ætluð til kennslu í menntaskólunum, en einnig hugsuð sem fræðslurit við almenn-
ings hæfi. Það er erfitt að sameina fyllilega þessi tvö sjónarmið og mun bókin
nokkuð yfirgripsmikil sem kennslubók í menntaskólunum, en þó ætti að vera hæg-
urinn hjá fyrir kennara að fella eitthvað úr, ef nauðsyn krefur, og raunar finnst
mér, að fátt sé það í bókinni, sem stúdent ætti ekki að þurfa að kunna skil á. En
tíminn, sem ætla má til veðurfræðináms í menntaskólunum, er næsta takmarkaður.
Bók Jóns er hið prýðilegasta fræðslurit. Efnið er skipulega og skýrt framsett og
málið gott. Fyrst er fjallað um lofthjúp jarðar. Þarnæst er lýst mælitækjum og
áhöldum og síðan raktir hinir einstöku þættir veðurfarsins, hitafar, loftþrýsting og
vindur, raki, ský og úrkoma. Þá kemur kafli, sem fjallar um veðurbreytingar og veð-
urspár, en spárnar byggjast að mestu á athugunum á eiginleikum loftmassa og þró-
un lægðanna og leiðum þeim, er þær fara. Smákaflar eru um þrumuveður og ljós-
fyrirbrigði og veðurfar á jörðinni, og að lokum er kafli um veðurfar og veðráttu
á Islandi, prýðilegur kafli, þótt stuttur sé, en hefði mátt vera nokkuð lengri. Mikill
fjöldi mynda og korta eykur mjög gildi bókarinnar sem kennslubókar og fræðslu-
rits. Kortin yfir jafnhitalínur og meðallagsúrkomu á íslandi eru vafalitið þau rétt-
ustu, sem gerð hafa verið til þessa. Þá smáathugasemd vildi ég þó gera, að dálítið
villandi er að setja úrkomutöluna ýt 4000 á miðjan Vatnajökul, því þar mun úr-
koma vart svo mikil, þótt hún sé það í suðurhliðum jökulsins.
Allur er frágangur bókarinnar hinn snyrtilegasti. Nýyrðin virðast mér flest við-
felldin og vænleg til lífs. Verðið má telja mjög í hóf stillt. Þetta er sannarlega
þörf bók og á erindi til margra.
SigurSur Þúrarinxson.
Nokkrar erlendar frœðibœkur um náttúrufrœði
Það er mjög tilviljunarkennt, hvaða erlendar fræðibækur í náttúrufræði íslenzkir
bóksalar hafa á boðstólum. Framvegis mun Náttúrufræðingurinn birta fregnir um
helztu bækur um þessi efni, sem út koma í nágrannalöndunum. Að þessu sinni
verður hér birt stutt yfirlit um nokkrar bækur, sem „Naturen", tímarit noi'skra
náttúrufræðinga, kynnir fyrir lesendum sinum á s.l. ári.
Den danskc dypliavsekspeditions virke og resnltater, skildret af
deltagerne under redaktion af A. F. Bruun, Sv. Greve, FI. Mielche og
R. Spárck. J. H. Schultz’s forlag (Köbenhavn) 1953. 306. síður.
Bók þessi skýrir frá Galathea-leiðangrinum og árangri hans, en um það efni
hefur Náttúrufræðingurinn birt grein eftir dr. Bruun. Hér gefst tækifæri til að
kynnast flestum þátttakendum leiðangursins, verkaskiptingu og starfinu um borð.
Margir kaflarnir eru fjörlega ritaðir og greinagóðir, og um það verður varla deilt,
að framkvæmd leiðangursins tókst með miklum ágætum.