Náttúrufræðingurinn - 1955, Qupperneq 35
ÖSKUFALL, SVO AÐ SPORRÆKT VAR
97
ið á autt graslendi og þykktin því að líkum eitthvað minni en sem
svarar því, að hylji lágklaufir og hófskegg, en þó tel ég varlega áætl-
að, að öskuþykktin austan Hvítár hafi verið a. m. k. 10 sm, en a. m. k.
5 sm kringum Skálholt. Landssvæðið innan 5 sm jafnþykktarlínu
(isopachyt) öskulagsins er lágt reiknað 5000 ferkílómetrar eða níu
sinnum stærra en svæðið innan sömu þykktarlínu í síðasta Heklugosi,
en svæðið innan 1 sm jafnþykktarlínu lágt reiknað 14000 ferkiló-
metrar. Ályktanir þessar byggi ég einnig á mælingum mínum á ösku-
lögum í jarðvegssniðum á Suðurlandi, sem hér yrði of langt að rekja,
en þess má geta, að öskulagið frá 1721 hefi ég rakið austan Hvítár
allt norður i eyðibyggðina á Hrunamannaafrétti, en vestan Hvítár
norðvestur að Hagavatni, og er öskulagið þar um 1 sm þykkt í jarð-
vegssniðum (sbr. jarðvegssnið, sem teiknuð eru i ritgerðunum Örlög
byggðarinnar á Hrunamannaafrétti, Árb. h. ísl. fornl.fél. 1943—48
og Some tephrochronological contributions, Geograf. Annaler 1949).
Samkvæmt þeim tiltölulega nákvæmu mælingum og útreikningum,
sem gerð voru á öskulagi því, er myndaðist fyrsta dag Heklugoss-
ins 1947, var meðalþykkt öskulagsins innan við 1 sm jafnþykktarlínu
7 sm. Slíka tölu er þó ekki hægt að algilda, og svo virðist sem gos-
mölin hið næsta eldstöðvunum sé allmiklu fíngerðari í Kötlugosinu
og öðrum undirjökulsgosum en i Heklugosum. 1 Kötlugosum fellur
því væntanlega hlutfallslega minna af ösku hið næsta eldstöðinni,
miðað við það, sem lengra berst, heldur en í Heklugosum. Tel ég því
rétt að ætla meðalþykkt öskulagsins innan 1 sm jafnþykktarlínu ösku-
lagsins frá 1721 nokkru lægri en í síðasta Heklugosi, eða 5 sm. Sam-
kvæmt því hafa 700 milljónir teningsmetra ösku fallið innan nefndr-
ar línu eða nær átta sinnum meira en innan sömu línu i Heklugos-
inu fyrsta gosdaginn.
Með hliðsjón af ofangreindu tel ég ekki fjarri lagi að áætla heildar-
rúmmál öskunnar nýfallinnar í Kötlugosinu 1721 1.5 milljarð ten-
ingsmetra, þ. e. 1.5 teningskílómetra, og er það lágmarkstala og líkur
fyrir því, að öskumagnið hafi verið yfir 2 teningskm.
Sé reiknað með því, að rúmtak þessarar ösku hafi verið um 1, sam-
svara 1.5 teningskm um 500 millj. teningsm af föstu bergi með eðlis-
þyngdinni 2.8, en þess er að gæta, að Kötluaskan frá 1721 er svört,
basísk aska, mjög svipuð Kötluöskunni frá 1918, en kísilsýrumagn
hennar var 47.68% (A. Lacroix, Die Eruption des Katla auf Island.
Compt. Rend. 170, bls. 861—865).
Til samanburðar má geta þess, að Samúel Eggertssyni reiknaðist
7