Náttúrufræðingurinn - 1970, Síða 7
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
101
ég tel mig hafa haldgóð rök fyrir því, að einmitt lyfting allrar Vest-
mannaeyjaspildunnar hafi lyft Úteyjum, Norðurklettum og þeim
lögum Suðurfellanna, sem eldri eru en Stórhöfðahraunin, og við
það hafi sjávareyðingin við -f-40 m mörkin hafizt. Fyrir þann tíma
var móbergið að miklu leyti undir sjó og harðnaði þar. Mun ég
koma að þessu síðar.
En sleppum þessari lyftingu í bili og athugum, hvernig búast má
við, að sjávarborð hefði breytzt við Eyjar án hennar.
Fyrir um 11 000 árum gekk sjór hæst víðast við landið, þar eð
almenna sjávarborðið liafði risið hraðar en landið. Náði sjór þá
um 55 m upp fyrir núverandi sjávarmál hjá Hjalla í Olvusi og upp
íyrir 100 m hæð í Hreppum, eins og kunnugt er. Við Jökulsá á Sól-
heimasandi hefur mér virzt hæðin ltafa verið um 60 m. Meðj fram-
lengingu hæðanna á meginlandinu má áætla, að hún hafi ekki verið
minni en 40—50 m á Vestmannaeyjasvæðinu. Hefðu Eyjarnar mynd-
azt við gos á sjávarbotni á eða nokkru fyrir þennan tíma, gætu
sjávarmörk þessa tíma verið sjáanleg og raunar mjög greinileg, en
þau hafa ekki fundizt. Verður að telja, að Eyjarnar hafi ekki verið
til þá í núverandi rnynd eða hæðarstöðu. Hinsvegar tel ég ljóst, að
sjávarlög finnist í Eyjum í allt að 200 m hæð, eins og ég kem að
síðar. Lega þeirra svo hátt stafar af jarðspildulyftingu, sem þá
hefur orðið síðar en fyrir 11 000 árurn.
Nú tók sjór aftur að lækka hratt, því mjög hægði á almennri
sjávarborðshækkun en landið reis hratt. Og fyrir um 9000 árum
voru sjávarmörkin orðin mjög svipuð og nú og jafnvel aðeins lægri.
En ég verð að telja útilokað, með því að byggja á almennri greinar-
gerð minni fyrir þessu (Jökull 1966), að sjór hefði þá getað fallið
nokkuð í námunda við -f- 40 m á Vestmannaeyjasvæðinu. Sjávar-
mörkin á þessu dýpi verða ekki skýrð á þennan hátt eftir ísöld,
heldur hljóta þau að stafa af hárri (lyftri) stöðu Vestmannaeyja-
spildunnar í heild. Og ris sjávarmáls síðar um 40 m, sem var um
garð gengið áður en Helgafellshraun runnu, hlýtur að stafa af sér-
stöku sigi spildunnar.
3. Suðurfellin og Úteyjar. Það er einkum á grundvelli athug-
ana á Suðurfellunum, að sú niðurstaða fæst, að það var ris
Vestmannaeyjaspildunnar í heild um ekki minna en 200-j-40 m,
senr framkallaði það^ sjávarmál, 40 m undir núverandi sjávarmáli,