Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1970, Blaðsíða 23

Náttúrufræðingurinn - 1970, Blaðsíða 23
NÁTTÚ RU FRÆÐIN G U RIN N 117 og upp að Helgafelli í mínum augum eintómar kvosir, dældir og dalir milli hryggja, ása og hóla, og við rætur Helgafells bjó hrepp- stjórinn í Dölum myndarbúi í kvos milli hraungarða. Annar hreppstjóri bjó í Vatnsdal, sem mér virðist hafa verið eðlileg nafngift. Ég held einfaldlega, að Herjólfur hefði valið sér ein- hverja slíka kvos við höfnina, og hún gat legið einhversstaðar á svæðinu frá Garði (Höfn) og inn fyrir Tanga eða upp á Stakka- gerðistún. Hann gat og liafa lagt undir sig rústir íranna hafi þeir verið þarna, enda hefðu þeir valið kvos með vatnsbóli í, t.d. í Garðinum. En síðar blés land hans upp fyrir ágang sauðfjár, en jörð sendin og lagðist þá upphafsbærinn í auðn; hraunið varð víða bert á þessum slóðum. Ormur, sonur Herjólfs, hafði hinsvegar kynnst því, að hrun úr Heimakletti þurfti ekki að óttast, hér var ekki hætta á vatnsskorti og ef til vill kaus hann að hafa vík milli vina. Þarna bjó hann við Hamar niðri, eins og J. G. Ó. lagði út textann, og hér átti Heimakletts-nafnið vissulega við. Þetta svæði varð seinna örfoka eins og Sandaskörð og allur vesturhluti Helga- fellshrauns. Herjólfur bjó fyrir innan Ægisdyr, og hvað gat verið betra nafn á hafnarmynnið? Fellur þá allt í eðlilega heild. En um 1700 gerðist undarleg saga, þegar sá ágætismaður, Árni Magnússon, kom í erindum Jarðabókarinnar til Eyja. Hann kunni Landnámu og spurði eftir Herjólfsdal, en enginn þekkti það örnefni, sem varla var von, ef bærinn stóð þar sem nú voru komin verzlunarhús, eða fiskhjallar og íbúðarhús, að því ógleymdu, að þarna höfðu og Englendingar byggt kastala eftir 1400. Byggðin hafði sent sé staðið ofan í landnámsbænum í 800 ár. Ægisdyr töldu menn þó hins- vegar vera hafnarmynnið. Aðaldalurinn á eyjunni hét á máli Eyjarskeggja Dalver, en þarna hélt Árni sig hafa fundið Herjólfsdal, og prestar, sem voru hinir bókvísu menn, féllust síðan á þessa skoðun athugasemdalaust. Síð- ar sögðu lærðir menn, að Kaplagjóta mundi vera hinar fornu Ægisdyr Landnámu. En nú verða menn að athuga, að Eyjarnar eru morandi í örnefnum; hver hóll, strýta, steindrangur, gilskora, hell- ir og skúti eða bekkur og brík í bjargi hefur sitt nafn. Að þekkja þessi örnefni var mönnum nauðsyn bæði vegna þess, að fiski- miðin eru ákveðin með miðunum, skurðpunkti tveggja tiltekinna sjónlína frá bátnum, og eins og ekkert síður vegna fuglaveiðanna.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.