Náttúrufræðingurinn - 1970, Blaðsíða 43
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
137
þegar hann slaer. Þá magnar hann hraðann að því augnabliki, sem
hann snertir fuglinn.
Hver, sem horfir á slíkar aðfarir, skammt frá eða í góðum sjón-
auka, getur sannfærzt um, hver reginmunur er á þeim. Þar kemur
heyrnin einnig til greina. Þegar fálki breytir aðför sinni til að
grípa fugl, fylgir því ávallt talsvert súghljóð, en þegar hann slær
heyrist ætíð misjafnlega hátt högghljóð. Tækifærin til þess að sjá
þessar aðfarir nú eru aftur á móti orðin sorglega fá hjá því, sem
var fyrir fjörutíu til hundrað, árum, a. m. k. hér í Þingeyjar-
sýslum. En að| því verður vikið síðar. En þeim, sem gjarnan vilja
kynnast þessu, skal bent á það, að sjái þeir fálka, sem eykur hraða
sinn, er hann að öllum líkum kominn í vígahug og þess vert að
gefa honum gætur, því sjón er sögu ríkari. Með þeim sjónaukum,
sem flestir hafa nú völ á, er það stórum auðveldara að fylgjast með
honum.
Kjörstaðir fyrir fálka á veiðum og fluglistir hans.
í Þingeyjarsýslum munu með réttu vera taldir beztu og mestu
uppeldisstaðir rjúpunnar á íslandi. Það ber fyrst og fremst að
þakka hinum kjarnmikla og fjölhæfa gróðri og víðáttumiklu víði-
lendum og birkiskógum. A þeim sömu slóðum hefur einnig verið
mikið um fálka, enda rjúpur sú fæðan, sem líf hans veltur á. Og
þegar saman fara há fjöll, kiædd skógi og víði að neðan, en ofar lyng-
tegundum, rjúpnalaufi og grasvíði, er það hvort tveggja, kjörland
rjúpunnar til varnar og fóðuröflunar á fimbulvetrum, og einnig
hið ákjósanlegasta veiðiland fyrir fálkann, og þá einnig varpstaðir.
Það sama má segja um Jökulsárgljúfur, þar sem fleiri fálka- og
hrafnshreiður munu enn vera sýnileg, en á nokkrum öðrum stað
á landinu miðað við stærð. Við árgljúfrin og fjöllin hér í Öxar-
firði, fjöllin milli Skjálfanda og Öxarfjarðar — þar sem rjúpur
söfnuðust svo oft saman á haustin svo þúsundum skipti og fram
eftir vetri þegar tíð var góð — og sömuleiðis í fjöllunum milli
Skjálfanda og Eyjafjarðar, sérstaklega að austan, hafa rjúpur oft
verið skotnar svo tugum þúsunda skipti suma vetur, frá því um
miðja síðustu öld og allt fram um 1920 til 1930. Hafa margar
rjúpnaskyttur sagt mér sögur af árásum fálka, sem þeir veittu
sérstaka athygli skammt frá sér, á rjúpur, sem oft flugu yfir þá í