Náttúrufræðingurinn - 1970, Blaðsíða 39
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
133
hefur fundið bergsteinbrjót bæði í Bjólfi og á Vestdal. Súrsmæra
vex hér og bvar við hlíðarætur á grýttu landi. Jöklasóley hátt uppi.
Hefur verið flutt í garða á Seyðisfirði og þrífst sæmilega í stein-
hæðum.
í Sexhólagili á Litlu-Völlum í Bárðardal vex mikið af melasól,
að sögn Gunnars Sigurgeirssonar.
Hvít þrenningarfjóla.
Seint í júlí sumarið 1969 kom undirritaður í blómagarð frú
Jennyar Sigmundardóttur og Guðmanns Högnasonar, Skerseyrar-
vegi 7 í Hafnarfirði og sá þar talsvert af hvítri fjólu. Hvíta
fjólan er fengin frá Galtardal í Dýrafirði og segist frú Jenny
muna eftir henni þar frá uppvaxtarárum sínum vestra. Vex fjólan
hvíta hér og hvar í snöggiendum brekkum. Sumar jurtirnar bera
alhvít blóm, en á öðrum er neðsta krónublaðið gult. Jenny ræktar
mjög mikið af þrenningarfjólum í garðinum og hefur árum sam-
an gert úrval fjólublóma, vegna litbrigðanna, sem eru mjög fjöl-
breytileg. Bera sumar fjólurnar hvít blóm, aðrar livít og gul, sum-
ar blá og hvít eða blá og gul. Litbrigðin virðast óendanleg.
Hvít krækiber eru löngu kunn frá Hjarðardal í Dýrafirði.
Jenny segir þau einnig vaxa í Stúfudal í Dýrafirði. Telur hún
ísætara bragð af hvítu berjunum heldur en af venjulegum svört-
um krækiberjum og minna helzt á sætukoppabragð. Hvít krækiber
eru og fundin í Kirkjuhvammi á Rauðasandi, Skálholti, Ölfusi og
Flatatungu í Skagafirði.