Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1970, Blaðsíða 37

Náttúrufræðingurinn - 1970, Blaðsíða 37
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 131 gróður, 2. útgáfu, bls. 251—252). Blómin eru gulhvít eða hvítgræn og sitja í skúfum. Gömul lækninga- og spádómajurt. Hnoðrinn blómgast á hverju sumri í garðinum og er þar mun vöxtulegri en úti í urðinni í Selvogi. Völvuhnoðrinn hefur annað hvort slæðzt út frá ræktun eða verið fluttur á staðinn af einhverjum til gamans. Annar sérkennilegur slæðingur, fingurax, (Digitaria ischae- mum), vex í gróðurhúsum í Hveragerði. Grastegund með fingur- laga öx. Þriðja slæðinginn, hagableikju (Barbarea stricta), fann Jó- hann Pálsson, leikari, við kirkjugarðinn í Fossvogi sumarið 1969. Þessi slæðingur vex nú einnig á Keldum í Mosfellssveit og í skurð- jaðri við Garðshorn í Fossvogi. Hagableikjan ber stinnar, uppréttar greinar og mjóa, upprétta skálpa, sem liggja fast upp að stönglinum. Akranes 12. ágúst. Gulbrá algeng. Stór græða af hóffífli nálægt sementsvet'k- smiðjunni. Sandfax sést, en minna af því en áður. Krossfífill og kúmen hér og hvar. Mikill húsapuntur, talsvert af skriðsóley. Brenninetla í sandgörðum. Egilsstaðir á Héraði 16. ágúst. Akurarfi, gulbrá. IVJikiIl húsapuntur, skriðsóley. Búðir í Fáskrúðsfirði 17. ágúst. Geitakál (Aegopodium podagraria) í nokkrum görðum, þ.á.m. í kirkjugarðinum, en þar vaxa einnig hindber og bæði skógar- kerfill og spánarkerfill. Skógarkerfillinn vex víðar í og við garða. Þistill vex í gili inni í kaupstaðnum, rétt við veginn. Húsapuntur mjög mikill, skriðsóley. Kirkjuból í Stöð'varfirði 18. ágúst. Geitakál, spánarkerfill, sillurhnappur, hindber, sigurskúfur. Mikill húsapuntur og skriðsóley. Seyðisfjörður 19. ágúst. Mikill hóffífill. Geitakál, skógarkerfill, þistill. Fleiri slæðingar fundust þar á árunum 1960—1966.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.