Náttúrufræðingurinn - 1970, Blaðsíða 40
134
NÁTTÚRUFRÆÐINGURIN N
Trausti Einarsson:
Fjörumór á Garðsskaga
í grein um Vestmannaeyjar hér í heftinu hefi ég vísað til athug-
unar á fjörumó á Garðsskaga og tel rétt að nota tækifærið til að
koma þessari atluigun jafnframt á framfæri í sérstöku greinar-
korni, þótt fyrr hefði mátt vera.
12. júní 1960 athugaði ég á stórstraumsfjöru leifar af fjörumó,
sem liggja 400—500 m sunnan Garðsskagavita og 100 m utan við
graskamb strandarinnar. Neðst liggur 50 cm þykkur hreinn mór
ofan á harðri möl eða klöpp. Þá tekur við 3—5 cm lag úr skelja-
sandi, skeljum og kuðungum og talsvert er einnig í því af lábörðr
um vikri, 1—3 cm völum. Auk vikurmolanna, fann ég basaltmola
lábarinn, urn 4 cm í þvermál, og hryggjarlið (úr ýsu eða þorski?).
Hér á hvílir aftur hreinn mór og sjást 25 cm eftirstöðvar af lagi,
sem Jrykkara hefur verið. Fjöruborð stóð um 35 cm neðan við mó-
botninn um kl. 15,40 jænnan dag. Sama eftirmiðdag var fjaran í
Reykjavík 10 cm hærri en stórstraumsfjaran sjálf, eftirmiðdaginn
10. júní.
Ingimar Óskarsson, náttúrufræðingur, athugaði fvrir mig dýra-
leifarnar, og fer niðurstaðan hér á eftir.
1) Ur skeljalaginu í fjörumónum: Nákuðungur (Nucella lapil-
lus) 1; klettadoppa (Littorina saxatilis) 15; og afbrigðið var.
groenlandica 2; þangdoppa (Littorina obtusata) 12; og af-
brigðið var. littoralis 12; hrúðurkarl, brot; kræklingur, nokkr-
ar svo til heilar skeljar; brimgagar (Nassa incrassata) 1;
kambdofri (Trophon clathratus) ?; þarastrútur (Lacuna di-
varicata) 1; rataskel (Saxicava rugosa) 1; kúfskel (Cyprina
islandica) (?) örsmá.
2) Teknir lifandi á sama stað: klettadoppa, og afbrigðið var.
groenhmdica; Jrangdoppa; og afbrigðið var. littoralis (flöt);
nákuðungur.