Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1970, Síða 28

Náttúrufræðingurinn - 1970, Síða 28
122 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Kemur þá greinilega í ljós, að fræflarnir eru 5, en frævan ein með tveimur frænum. Fífillinn lifnar snemma á vorin og blómgast oft einna fyrst allra túnblóma. Hann breiðir út körfuna móti sól snemma á morgnana, en lokar lienni síðdegis og í dimmviðrum og kulda. Reifablöðin hreyfast ] íka í misjöfnu veðri. Þau sveigjast út og niður á við í þurrki, en þrýstast saman í vætu. Að lokinni blómgun beygir stöngullinn sig niður, en snýr samt körfunni upp. Aldin- hneturnar eru 2—3 vik- ur að þroskast og stöng- ullinn lengist á meðan og er hærri en áður, er hann réttir úr sér aftur eftir aldinþroskunina. Fífillinn er mjög frjósöm jurt. Ein jurt getur borið allt að 1500 fræ, samkvæmt dönskum rannsóknum. Fílilfræin spíra bezt í dálítilli birtu, það er þegar birtumagnið er um 8% af venjulegri dagsbirtu. Þau spíra því prýðilega, þar sem gróður er fremur gisinn, en miklu siður í þéttu grasi. Fræin halda spírunarmætti sínum árum saman. Öflug stólparót og blaðhvirfing myndast, þegar sama sumarið og fífillinn vex upp af fræi. Mjólkursafi er í allri jurtinni en mest í fífilleggj- unum og er þetta næringarsafi. — Blöð fífilsins eru æði breytileg að stærð og skerðingu. Til eru nærri heil fífilblöð, en flest eru með grunnum eða djúpum skerðingum, þ.e. sepótt, flipótt eða klofin því nær alveg niður að miðstreng. Blaðhvirfingin helzt mjög lengi græn. Fífillinn blómgast mest framan af sumri, en ber Ætifífill (Ur Johs. Lid)

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.