Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1970, Page 31

Náttúrufræðingurinn - 1970, Page 31
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 125 Gunnar Jónsson og Halldór Dagsson: Tvær nýjar smokkfisktegundir (Cephalopoda) við ísland Þann 3. desember s.l., þegar r/s Hafþór RE 75 var við rækjuleit og veiðafæratilraunir norðan Kolbeinseyjar, komu m.a. tveir smokkfiskar all forvitnilegir útlits upp úr hafdjúpinu. Dýpi var þarna 500 metrar og staður sem næst 67° 14'N—19° 15'V (1. mynd). Þar eð ekki var aðstaða um borð til að greina dýrin nákvæmlega til tegundar, voru þau sett í formalínblöndu og síðar greind, þegar til Reykjavíkur kom. Reyndist hér vera um að ræða tegundirnar Rossia macrosoma (Delle Chiaje) f. oweni (Ball) (2. mynd), sem er tíarma og Girroteuthis miilleri (Eschricht) (3. rnynd), sem er áttarma. Eru þeir báðir varðveittir í safni Hafrannsóknastofnunar- innar. Ingimar Oskarsson, náttúrufræðingur, gaf smokkunum íslenzk nöfn og kallar þann fyrrnefnda eðjusmokk, en hinn síðarnefnda Ijikarsmokk. Flokkur: CEPHALOPODA Ættbálkur: Decapoda. Undirættbálkur: Sepioidea. Ætt: Sepiolidae. Undirætt: Rossiinae. Ættkvísl: Rossia. Rossia macrosoma (Delle Chiaje) /. oweni (Ball) Eðj usmokkur Eðjusmokkur er tíarma, þar af eru tveir langir og liðugir, inndraganlegir veiðiarmar. Hinir armarnir átta eru styttri og með fjórurn röðum af kúlulaga sogskálum. Kápan er stutt og pokalaga

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.