Náttúrufræðingurinn - 1970, Síða 38
132
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Á Austfjörðum athugaði undirritaður áður slæðinga í Neskaup-
stað, Reyðarfirði, Eskifirði og á Seyðisfirði. Hafa þá alls verið skrá-
settir slæðingar í 6 kaupstöðum á Austfjörðum og 7 á Vestfjörð-
um. (Sjá Náttúrujrœðinginn 1963 og 1968 og Grcinar 1967).
í ritgerðinni fyrrnefndu: The Iinmigration and Naturalization
of Flowering Plants since 1900, er skrá yfir slæðinga í Reykjavík, að
Laugarvatni og Skógaskóla, í Vík í Mýrdal, Vestmannaevjum,
Hornafirði, á Akureyri, Siglufirði, Sauðárkróki, Hólum í Hjalta-
dal, Húsavík, Blönduósi og í Stykkishólmi, auk fyrrnefndra staða
á Aust- og Vestfjörðum. — Ennfremur athugað síðar á Suðurnesjum
(Keflavík, Njarðvíkur, Vogar, Sandgerði, Hafnir og Grindavík).
(Sjá Náttúrufrœðingimi 1967, bls. 190—193); og í Ólafsfjarðar-
kauptúni og Þorlákshöfn. (Sjá Náttúrufræðinginn 1969, bls. 41).
Samtals birt slæðingaskrá (sérskrá) lrá 34 stöðum, þ.e. í kaupstöð-
urn og við skóla. Er alls getið um 186 tegunda slæðinga á tíma-
bilinu 1900—1969. Mega 26 tegundir þeirra sennilega teljast orðn-
ir fullgildir borgarar í gróðurríki landsins.
Ýmislegt.
I. Deiglendisblettur og tjörn nálægt gömlurn mógröfum í Egils-
staðaskógi. 16. ágúst gekk ég þar um og sá á litlum bletti: belgja-
stör, broddastör, fjallastör, linappstör, hárleggjastör og tvíbýlis-
stör og stórar græður af gróbærum freyjumosa.
II. Fjöllin við Fáskrúðsfjörð eru ákaflega grýtt og blásin. Verst
eru þau farin upp af kaupstaðnum og þar í grennd. Sauðfé hefur
fækkað á seinni árum og vetrarbeit mjög létt af landinu, svo að
e.t.v. hættir landeyðingin þarna smám saman. Jörð var hvar-
vetna mjög blaut. Hefur rignt og suddað óvenju mikið í sumar.
Snarrótarpunturinn var auðsjáanlega í essinu sínu og hér og hvar
sáust fallegir gullgulir skúfar gullpuntsins, en það er eitt tilbrigði
snarrótarpunts. Gullsteinbrjótur bregður gulum blæ á leirflög og
aura og alls staðar prýðir bláklukkan landið, jafnvel brautarjaðra
inni í kaupstaðnum.
III. Gullregn stóð í blóma á Akureyri 8. ágúst — um mánuði
seinna en í Reykjavík — og ekki voru öll blómin fallin af reyni-
við úti á Árskógsströnd. — Villilín vex bæði inni við Fjarðar-
sel og út á Hrútahjalla á Seyðisfirði. Valgeir Sigurðsson, kennari,