Náttúrufræðingurinn - 1970, Síða 44
138
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
bröttum fjallahlíðum á fyrrnefndum svæðum. Á efstu eggjum voru
kjörstaðir fyrir fálkana til að lialda vörð og fylgjast með ferðurn
rjúpnanna. Slíka verði gátu þær ekki varast. Einmitt í svona
umhverfi gerðust nokkur atvik, sem hér verður lýst. Bæði ég
og þessar horfnu rjúpnaskyttur hafa séð og velt fyrir sér, hvernig
fálkarnir fóru að.
Þótt eðli fálkans sé að nota ljósaskipti kvölds og nrorgna til víga-
ferða, láta þeir ekki góð tækifæri ónotuð þótt um lrádag sé. Samt
er það svo, að á vorin eru þeir venjulega afar snemma á ferð, t.d.
frá klukkan þrjú til finrrn á morgnana og jafnvel um lágnættið,
þegar karrarnir geta ekki á sér setið nema berast á og konra þannig
upp um sig. Löngu eftir dagsetur — í nóvenrber til febrúar —
kom það nokkrum sinnunr fyrir, þegar ég lá við refi, þar til þeir
komu út úr greni eftir dagsdvölina, að ég heyrði þyt í lofti ör-
skammt yfir lröfði mér. Það var þá rjúpa, senr var augsýnilega á
flótta og á þeim hraða, sem lrún orkaði. Rétt á eftir brá fyrir
fálka, hærra í lofti, með jöfnum, kröftugum vængjatökum, eins og
sá, sem er þess fullviss, að veiðin er gefin. Flughraði hans er svo
langtum meiri, og þarna var hvergi skóglendi, sem er bezta vörn
rjúpunnar — aðeins óravíðátta á öræfagaddi.
Ástæðan fyrir því, að ég fer hér nokkrum orðum um veiðistaði
fálkans við fjöll og djúp gljúfur, er sú, að veiðiaðferðin, sem hann
notar þar svo oft við rjúpurnar, hefur kostað mig og fyrrnefnda
starfsbræður mína mestu heilabrotin.
Árásum fálka lýst af þeim, sem á þær horfðu.
í skógivaxinni fjallslilíð koma nokkrar rjúpur aðvífandi á láréttu
flugi. Eins og ör þjóti, kemur fálki niður fjallshlíðina með að-
kreppta vængi og stefnir á rjúpurnar. Þar sem fluglínur þeirra
mætast myndast 50—60 gráða horn. Fálkinn þýtur langt niður fyrir
rjúpurnar, áður en hann svífur hátt í loft aftur. En hvað skeður?
Hann snertir eina rjúpuna, með þeim afleiðingum, að liún snýst
í lofti, fellur til jarðar og hverfur í skóginn. Annar vængur hennar
er brotinn eða aðeins farinn úr lið um vænghnúana.
Við nákvæmlega sömn aðstæður og aðför fálkans fjúka af rjúp-
unni nokkrar stélfjaþrir eða jafnvel flestar. Eer hún þá kollhnís í
loftinu með þeim afleiðingum, að sé hún lágt í lofti nær hún