Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1975, Síða 3

Náttúrufræðingurinn - 1975, Síða 3
Náttúrufr.-4-f. árgangur — Seinna hefti — 129.—195.siða—Reykjavik, marz 1975 Gísli Már Gíslason: Ný vorfluga (Potamophylax cingu/atus (Stephens),/ fundin á Islandi Síðan á árinu 1929 hafa tíu vorflugutegundir (Trichoptera) verið þekktar á íslandi, ein af ættinni Phryganeidae, en hinar af ættinni Limnephilidea (Lindroth 1931). Eftir 1929 hafa nokkrir skordýra- fræðingar safnað vorflugum á fslandi, aðallega á Suður- og Vestur- landi, en nýjar tegundir hafa ekki bætzt við (sbr. Fristrup 1942, Tjeder 1964 og Lindroth o. fl. 1973). Mátti því gera ráð fyrir að allar algengustu vorflugutegundir á íslandi væru fundnar. Vorið 1974 byrjaði ég að safna vorflugum á fslandi, og lagði aðaláherzlu á söfnun lirfa. Skoðaði ég í byrjun maí vorflugur á Náttúrugripasafninu á Akureyri. í því safni voru sex vorfluguhús, sem Björn Bjarman fann í Grafarlandaá 2. ágúst 1971. Húsin voru tóm nema eitt, sem í var kvendýrspúpa af ættkvíslinni Potamo- phylax (ætt Limnephilidae), en dýr af þeirri ættkvísl hafa ekki áður fundizt á íslandi. Síðar í maí fór ég með dr. Agnari Ingólfssyni prófessor um Austfirði, og fundum við lirfur þessarar vorflugu, okkur til mikillar furðu, í nær öllum lækjum og ám, sem við leit- uðum í þar. Um sumarið var safnað vorflugulirfum urn allt land, og fannst þessi vorfluga um allt Norðaustur- og Austurland. í þessu mikla safni var talsvert af þroskuðum púpum, og um helmingur þeirra var karldýr. Einnig fundust þrjú fullorðin karldýr og finnn kvendýr. Var nú hægt að greina tegundina með vissu, en karldýr eru oftast notuð til þess, þar sem þau hafa miklu skýrari tegundar- einkenni en kvendýr af þessari ættkvísl. Reyndist hér vera um Potamophylax cingulatus (Stephens) að ræða. Útbreiðslu tegundar- innar á íslandi eins og hún er nú kunn sýnir 2. mynd. Utan íslands finnst þessi vorfluga í Færeyjum, Bretlandseyjum, Skandinavíu og Mið-Evrópu austur í Rússland. P. cingulatus er ein af stærstu vorflugum á íslandi. Mál íslenzkra eintaka eru sem hér segir: Flugan er 15 til 19 mm frá haus að væng-

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.