Náttúrufræðingurinn - 1975, Síða 4
130
N ÁT T Ú RU FRÆÐINGURINN
1. mynd. Lirfur Polamophylax cingulatus (Stephens) og Apatania zonella Zetter-
stedt. a) haus, b) lirfa, og c) hús P. cingulatus. Eintak úr læk, sem rennur í Græna-
vatn á ReyðarfirSi, 22. 5. 1974. d) haus, e) lirfa, og f) ln'is A. zonella. Eintak úr
læk, sem rennur í Álftafjörð á Snæfellsnesi, 17. 8. 1974.
broddum, þegar vængir liggja saman, púpan er 13 til 17 mm á lengd
og fullvaxin lirfa er 16 til 20 mm. Húsið er sívalt, eilítið bogadreg-
ið, 17 til 24 mm, þegar lirfan er fullvaxin, breidd framendans 4,5
til 6,5 mm og afturendans 3,5 til 5,5 mm. íslenzk eintök eru af
mjög svipaðri stærð og erlend (sbr. Ulamer 1909, Lepneva 1966,
Hickin 1967 og Macan 1973). Fullvaxin lirfa þessarar tegundar er
auðþekkt frá lirfum annarra íslenzkra vorflugutegunda á stærð og
gerð hússins, sem er gert úr stórum sandkornum og steinvölum,
sem er oft yfir 2 mm á þvermál. Meðan lirfurnar eru litlar byggja
þær húsin úr plöntuleifum.