Náttúrufræðingurinn - 1975, Síða 7
N ÁTT Ú RU F RÆÐINGURINN
133
1972) fundust púpur fyrst í júlí, en urðu algengar í ágúst. Liríur
fundust í báðum þessum straumvötnum í september, en þá fundust
einnig nýklaktar lirfur. Erfitt er að ákvarða aðalflugtíma flugunn-
ar á íslandi, þar sem aðeins hafa veiðzt átta flugur, en út frá hlut-
falli tómra húsa af heildarfjölda húsa, sem safnað var, er hægt að
áætla hann. Þetta hlutfall jókst snögglega í endaðan júlí. Má því
áætla, að aðalflugtíminn sé í júlí og ágúst, en flugan getur lifað
allt að fjórar vikur, þegar henni er haldið í búri (Svensson 1972).
Til þess að vera viss um aðalflugtímann þyrfti að veiða flugurnar
með jöfnu átaki yfir allt sumarið. Aðalflugtími P. cingulatus í Eng-
landi (Crichton 1971) og í Suður-Svíþjóð (Svensson 1972) er í ágúst
og september og í Lapplandi í ágúst (Göthberg 1970). Bæði í Eng-
landi og Svíþjóð hafa flugurnar fnndizt frá júní til október, og í
Þýzkalandi hafa þær fundizt frá maí til október (Ulmer 1909). Öll
seinustu þroskastig hjá tegundinni eru nokkuð fyrr í árinu á íslandi
en erlendis. Gæti það verið aðlögun að íslenzkri veðráttu, en haust-
in eru talsvert kaldari á íslandi en annars staðar þar sem tegundin
lifir, og er líklegt að flugan þoli ekki þan skilyrði.
Lirfur P. cingulatus og A. zonella búa við mjög svipuð skilyrði.
Lirfur A. zonella eru algengar í ám og lækjum og í grýttum fjörum
tjarna og stöðuvatna, en lirfur P. cingulatus virðast veia meira
bundnar við straumvötn, og hafa aðeins einu sinni fundizt í stöðu-
vatni (Miklavatni í Skagafirði). Báðar hafa fundizt í árósum og
sjávarlónum. P. cingulatus hefur fundizt í l,2%0 söltu vatni í lóni
við Syðralón nálægt Þórshöfn á Langanesi, en í öðrum sjávarlón-
um, þar sem hún hefur fundizt, hefur seltan ekki verið mæld. A.
zonella hefur fundizt í árós á svæði, þar sem seltan náði 17,7%0 á
stórstraumsflóði, og einnig í lóni með 0,9%c og 1,6%0 seltu
(4. mynd c).
Lirfur P. cingulatus eru langalgengastar í dragánum á Aust-
urlandi, en í þeim finnast lirfur A. zonella ekki. Þessar drag-
ár eru með mjög grýttum botni og sumar straumharðar. Yfir-
leitt er lítill sem enginn gróður í þeim, nema kísilþörnngar á stein-
um og stundum vottur af mosagróðri. Auk vorflugnalirfa eru yfir-
leitt rykmýs- og bitmýslirfur í þessum ám og í sumum þeirra finn-
ast ungviði (nymfur) steinflugunnar Capnia atra Morton (Plecop-
tera). Dragárnar á Vestfjörðum eru rnjög svipaðar dragánum á
Austfjörðum og lífríki þeirra svipað, þó finnast þar ekki P. cin-