Náttúrufræðingurinn - 1975, Page 28
154
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
TAFLA 1 Gossaga Heklu og rúmmál gosefna.
Gos Súrt ísúrt Aldur
berg berg í árum
knú km3
H—5 0.5 ] 6500
H—4 2.0 4000
Selsund 1.0 ► 12 3500
H—3 2.5 2800
H—1 (1104) 0.5 870
Eftir 1104 0.5 8 870-0
því, að ísölcl ljúki fyrir um það bil 10 000 árum, og að jarðvegur,
sem geymt getur öskulög taki þá strax að myndast, líða a. m. k. 3400
ár án þess að stórgos verði í Heklu. Hinsvegar eru 2600 ár milli
H-55 og H-4, og síðan aðeins um 500 ár, um 700 ár og loks um 2000
ár á milli stórgosa. Frá ísaldarlokum og til gossins, sem myndaði
H-5, líður því lengri tími án tíðinda en síðar í sögu Heklu. Þó er
ekki brennt fyrir, að á þessum (fyrstu íslausu) árþúsundum hafi
eldstöðvar í Heklu framleitt hraun. Hraunaframleiðsla hefur þó
ekki verið neitt til jafns við það, sem síðar varð. Sigurður Þórarins-
son hefur áætlað, að rúmmál hrauna, sem upp komu fyrir land-
nám nemi um 12 teningskílómetrum, en það er 2,2 teningskíló-
metrar á árþúsundi, ef H-5 er talið fyrsta gos í Heklu. Frá 1104
og til vorra daga hefur Hekla hinsvegar framleitt 8 teningskíló-
metra af hrauni eða fjórum sinnum meira á tímaeiningu. Rúm-
mál Heklu frá rótum er nálægt 30 teningskílómetrum. Með nú-
verandi afköstum væru eldstöðvarnar aðeins 3000 ár að hlaða
upp Hekluhrygg.
Af þessum tölum um hlutfall milli hrauns og gjósku á ýmsunr
tímum, svo og um framleiðni (þ.e. magn gosefna á tímaeiningu)
eldstöðvanna, má draga eftirfarandi ályktun: Fyrir um 6500 árum
var Hekla ekki til í núverandi mynd. Fyrsta gos eftir ísöld, FI-5,
tTáknin H-5, H-4 o.s.frv. eiga strangt tekið við gjóskulög mynduð í Heklu-
gosum. Til liægðarauka læt úg táknið einnig eiga við eldgosið, en samhengi
lesmálsins skýrir hvað við er átt hverju sinni, gosið eða gjóskulagið.