Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1975, Side 63

Náttúrufræðingurinn - 1975, Side 63
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 187 úr þessum gígum og sennilegast að þeir hafi verið virkir aðeins á fyrsta stigi gossins. Alls er gígaröðin um 1 km á lengd og gígirnir 12. Þess má geta hér, að á sléttunni vestan við Sveifluháls þar sem hraunið úr syðstu gígunum hverfur undir sand hlýtur að vera fornt eldvarp, sem vafalaust ber að líta á sem dyngju, en ekki verð- ur nánar um það fjallað í þessari grein. Það leikur hins vegar eng- inn efi á því, að gosið í Sandfellsklofagígum hefur orðið síðar en gos- ið í þeirri dyngju. Vestur af Vatnsskarði, rétt þar sem Sandfellsklofa- hraun og Kapelluhraun mætast, hefur hið fyrrnefnda runnið upp að fornum gíg, sem ber nafnið Hraunhóll og hefur runnið inn í hann austan megin frá. Aldursafstaðan er því ótvíræð. Við það að rauðamöl hefur í stórum stíl verið tekin úr þessum hól, hefur verið grafið inn undir hraunið. Þar kemur í ljós, að gróður hefur verið kominn á þann gíg, þegar hraunið rann upp að honum. Hraunið hefur svo brennt þennan gróður og breytt að nokkru í viðarkol. Sýni af þessu efni var sent eðlisfræðistofnun Uppsalaháskóla til aldursákvörðunar með geislakolsaðferð (C14), og sá dr. Ingrid U. Olsson dósent um þá rannsókn. Árangurinn var sá, að kolin reynd- ust 3055 ± 70 C14 ára gömul. Að svo stöddu verður ekki nær farið, hvað varðar aldur Sandfellsklofahrauns. Sjálft hraunið er gráleitt fremur fínkornótt basalt með nokkru af dílum, sem eru 2—3 mm eða minni. Samansetningu þess má ráða af töflu I hér á eftir: TAFLA I Plagioklas Pyroxen Ólívín Ógagnsætt efni (opaque) Taldir punktar Þunnsneið nr. 4578 46.8% 37.6% 5.3% 11.2% 488 Dílar eru alls 2.6%. Einkennandi fyrir nokkur hraun á þessu svæði og þar á meðal þetta, eru dílar, sem samanstanda af feltspat- ólívín og/eða pyroxenkristöllum. Sagt er, að slíkt berg sé „glomero- porfyritiskt“.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.