Náttúrufræðingurinn - 1975, Page 67
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
191
2. mynd. Jarðvegslag með gróðurleifum norðan í Hraunhól. Ljósm. Jón Jónsson.
tækni og þar vægast sagt ljótur umgangur, en því miður er alltof
víða pottur brotinn hvað þetta snertir á voru landi. Ekki sést nú
neitt af því hrauni, sem úr Litla-Hraunhól hefur runnið, fremur
en því, sem rann úr Hraunhól sjálfum, en sýni mátti ná úr gígn-
um. Kemur þá í ljós, að hraunið er að heita má eins úr báðum
þessum gígum. Það er og snarlíkt eldra Óbrinnishólahrauni og
Búrfellshrauni. Vott af gróðurleifum má sjá undir gjallinu í Litla-
Hraunhól og sýnist jarðvegslagið þar vera mjög ámóta og í Hraun-
hól, en ekki hefur reynst mögulegt að ná nothæfu sýni úr Litla-
Hraunhól. Af ofangreindum ástæðum tel ég þó langlíklegast, að
gosið hafi samtímis á þessum stöðum.
Varðandi aldursákvörðunina hér að framan skal þess getið, að
hún er meðaltal af tveim, þar sem við aðra er notaður helmingunar-
tími 5570 ár en við hina 5730 ár
HEIMILDARIT
Gunnlaugsson, E., 1973: Hraun á Krísuvíkursvæði. Háskóli Islands, Verkfræði
og rauuvísindadeild (fjölritað).
Jónsson, Jón, 1974: Óbrinnishólar. Náttúrufr. 44: 109—119.