Náttúrufræðingurinn - 1991, Síða 70
5. mynd. Skjálftarit úr mælum á Akureyri er sýnir skjálfta sem varð 11. ágúst 1974 og átti
upptök við landamæri Tadsjikistan og Sinkiang í Mið-Asíu (39,5° N, 73,8° A). Mælarnir
eru svokallaðir langbylgjumælar, en þeir eru næmir fyrir bylgjum með sveiflutíma á bil-
inu 15-100 sekúndur. Efri línan sýnir hreyfingu í lóðrétta stefnu, neðri línan hreyfingu í
norður og suður. Bylgjurnar berast úr austnorðaustri. Efri línan sýnir því betur P-bylgjur
og Rayleigh-bylgjur, neðri línan S-bylgjur og Love-bylgjur. Seismograms from the long-
period seismographs in Akureyri in N Iceland. The earthquake recorded occurred in
Central Asia on August II, 1974, at a distance of 55°. The waves arrive nearly from the
east, so P-waves and Rayleigh waves are mostly recorded on the vertical component, S-
waves and Love waves are more pronounced on tlie N-S component.
Hér eru á ferðinni bylgjurnar tvær. P-
bylgjan hefur hærri sveiflutíðni en S-
bylgjan, getur farið yfir 30 Hz og
verður þá heyranleg. Hún hefur hins
vegar oft minna útslag en S-bylgjan.
Ef skjálftinn er lítill er því S-bylgjan
fyrsta bylgjan sem finnst. P-bylgjan
heyrist aðeins.
Þegar fjarlægðin verður meiri kem-
ur að því að P-bylgja sem farið hefur
niður fyrir jarðskorpuna er fljótari í
förum en sú sem farið hefur um
skorpuna. Þá má oft greina báðar
bylgjurnar á skjálftaritinu. Til að-
greiningar er skorpubylgjan stundum
táknuð með Pg en sú sem dýpra fer
með P„. Sama á við um Sg og S„ en
oft er erfiðara að greina þær sundur.
Sn-bylgjan er einnig oft ógreinileg hér
á landi eins og áður er getið.
Þegar skjálfti nálgast stærðina 5
mælast bylgjur frá honum víða um
heim. Það eru einkum löngu bylgjurn-
ar sem berast langar leiðir því þær
deyfast hægar en þær stuttu. Þessar
bylgjur berast djúpt um jörðina, með-
al annars vegna kúlulögunar hennar.
Oft má á sama skjálftaritinu sjá bylgj-
ur sem hafa endurkastast frá yfirborð-
inu og hinum ýmsu lagamótum í jörð-
inni. Á 5. mynd eru sýnd skjálftarit úr
langbylgjumælum sem reknir hafa
verið á Akureyri síðan 1964. Þau sýna
bylgjur frá stórum skjálfta, sem átti
upptök í Mið-Asíu. Þar má til dæmis
sjá PP og PPP, en það eru P-bylgjur
sem hafa endurkastast einu sinni og
tvisvar við yfirborð jarðar. Einnig
sjást SS og SSS, en það eru S-bylgjur
sem hafa að mestu farið sömu leið.
Skömmu á eftir SSS-bylgjunni kemur
Love-bylgjan (LQ), en hún kemur
64