Fréttablaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 8
8 15. maí 2009 FÖSTUDAGUR 1. Hver mun leika Skrögg í uppfærslu Loftkastalans? 2. Hversu miklar voru skuldir íslenskra sveitarfélaga um síðustu áramót? 3. Hvaðan er hælisleitandinn sem er í hungurverkfalli í Reykjanesbæ? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 38 PALESTÍNA, AP Á ferðum sínum um Mið-Austurlönd hefur Bene- dikt XVI. páfi ekki hikað við að minnast á mörg viðkvæm- ustu og heiftúðugustu deilumál þessa heimshluta, svo sem hlut- skipti Palestínumanna undir her- námi Ísraels og gagnkvæma tor- tryggni kristinna og múslima, að ógleymdri helför gyðinga í síðustu heimsstyrjöld. Um fimmtíu þúsund manns mættu til að hlýða á messu páfa í Nasaret í gær. Þar hvatti hann bæði múslima og kristna menn til þess að hafna eyðileggjandi afli haturs og fordóma, „sem drepur sálir manna áður en það drepur líkama þeirra“ eins og hann orð- aði það í ræðu sinni. „Ég hvet góðviljugt fólk í báðum þessum trúarsamfélögum til þess að lagfæra þann skaða sem orðinn er,“ sagði páfi, og vísaði þar til spennu sem ríkt hefur á milli mús- lima og kristinna undanfarin ár. Benedikt páfi hefur áður fengið múslima á móti sér með umdeildu orðavali. Í þessari ferð hefur hann gert sér far um að bæta þar úr. Í vikunni hefur páfi tvisvar lagt ríka áherslu á stuðning sinn við stofnun Palestínuríkis, þrátt fyrir að ný hægristjórn í Ísrael hafi lýst sig andvíga því að Palestínumenn fái eigið ríki. Hann hefur einnig lýst yfir samúð með hlutskipti Pal- estínumanna, en hvetur þá samt til að beita ekki ofbeldi. Síðdegis í gær settist páfi síðan niður með Benjamin Netanjahu, forsætisráðherra Ísraels. Þeir spjölluðu saman í stundarfjórðung. Að loknum fundi þeirra kom Net- anjahu fram í sjónvarpi, en minnt- ist ekkert á Palestínu. Hins vegar sagðist hann hafa beðið páfa um að beita siðferðilegri yfirburðastöðu sinni til að fordæma harkalegt orð- færi forseta Írans um Ísrael. „Ég held að hann hlusti á okkur,“ sagði Netanjahu um páfa. Federico Lombardi, talsmaður Páfagarðs, sagði páfa mjög ánægð- an með árangurinn af ferð sinni. Allir mikilvægustu fundirnir hafi orðið til góðs og páfa hafi tekist að vera eins konar brú á milli ólíkra sjónarmiða. Vikulangri ferð páfa um Mið- Austurland lýkur í dag. gudsteinn@frettabladid.is Vill sættast við múslima Benedikt páfi hefur komið óvart með yfirlýsingum um stuðning við málstað Palestínumanna. Í gær hvatti hann múslima og kristna menn til að ná sátt- um. Netanjahu bað hann að fordæma áróður Írana. PÁFINN Í NASARET Fjölmennasta guðsþjónusta páfa á ferð sinni um Mið-Austurlönd var haldin í Nasaret í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FJÖLMIÐLAR „Ég vænti þess að nýtt útboð fyrir enska boltann fari í gang fljótlega, og við munum taka þátt í því. Við gerum okkur vonir um að halda sýningarréttinum á þessu vinsæla efni áfram, en á viðráðanlegum kjörum,“ segir Ari Edwald, forstjóri 365. Fyrirtækið tryggði sér sýningarréttinn á enska boltanum til þriggja ára frá haustinu 2007. Að sögn Ara gerðu aðstæðurnar sem upp komu við bankahrunið og fall krónunnar það að verkum að þess var farið á leit við umboðs- aðila efnisins í Bretlandi að sá samningur yrði styttur um eitt ár. Hann gerir ráð fyrir að nýtt útboð, sem gildi til fjögurra ára, verði klárað á næstu mánuðum. „Við erum mjög sátt við þá niðurstöðu. Það hafði verið boðið hátt í enska boltann, meðal annars á grundvelli kostunar sem samið var um í íslenskum krónum, þannig að þegar verð- ið á sýningarréttinum tvöfaldaðist gerði það okkur erfitt fyrir,“ segir Ari. Hann gerir ráð fyrir að verðið muni lækka til muna í næsta útboði. Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmda- stjóri Skjásins, segir fyrirtæki sitt fylgjast grannt með þróun þessara mála. „Við höfum ekki tekið afstöðu til þess hvort við hyggjumst bjóða í réttinn. Fyrst þurfum við að skoða öll útboðsgögn,“ segir Sigríður. Páll Magnússon útvarpsstjóri segir RÚV ekki ætla að taka þátt í útboðinu. „Við höfum þá stefnu að fylgja íslenska landsliðinu í alþjóð- legum keppnum, en höfum dregið okkur út úr uppboðum á íþróttaviðburðum sem reknir eru á hreinum viðskiptalegum grundvelli. Við þær aðstæður sem nú ríkja sé ég alls enga ástæðu til að víkja frá þeirri stefnu,“ segir Páll Magnús son. - kg Umboðsaðilar sýningarréttar á enska boltanum samþykkja að stytta samning: Aftur boðið í réttinn á enska boltann SJÁVARÚTVEGUR Stykkishólmsbær mótmælir harðlega þeim hug- myndum sem fram hafa komið um upptöku strandveiða á kostnað úthlutunar byggðakvóta. Í álykt- un bæjarráðs segir að byggða- kvóta til Stykkishólmsbæjar hafi verið úthlutað á grundvelli hruns á hörpudiskstofni, aflabrests af þeim sökum og síðar banns við veiðum á hörpudiski. Bæjarráðið efast um að auka megi verðmætasköpun, efla atvinnulíf og auka drifkraftinn í bæjarfélaginu með upptöku strand- veiða á kostnað byggðakvóta. Sam- félagið í Stykkishólmi hafi tekið á sig mikil áföll við hrun hörpu- diskstofnsins, en hafi byggt sig upp hægt og rólega með tilkomu byggðakvóta. - shá Stykkishólmsbær ályktar: Strandveiðar neikvætt skref NOREGUR Norðmenn ætla að nýta sér jarðhitann djúpt í iðrum jarðar með því að bora 5.500 metra ofan í jörðina, hita vatn þar og taka það upp aftur. Tæknin er sótt í olíu- iðnaðinn í Norðursjó en stærsta vandamálið hefur verið sá mikli kostnaður sem fylgir því. Jónas Ketilsson, jarðhitasér- fræðingur hjá Orkustofnun, segir að takist fyrirætlun Norðmann- anna gæti það þýtt margfalda afkastagetu íslenskra jarðhita- kerfa því þá gætu Íslendingar farið að bora utan háhitasvæða. „Þetta getur opnað fyrir mögu- leika á jarðhitanýtingu á svæðum sem við teljum ekki hagkvæmt að nýta sem stendur og þá getum við frekar hlíft viðkvæmum svæðum,“ segir hann. Það er norska orkufyrirtækið Rock Energy sem ætlar að ráðast í tilraunina í Osló, að sögn Tekn- isk Ukeblad. Vatnið verður hitað í lokuðu kerfi og leitt upp um aðra borholu. Talið er að það verði þá um níutíu gráðu heitt og vel nýti- legt til húshitunar. Norðmenn hafa líka gert áætlanir um að nota jarðhitann til raforkuframleiðslu og stefna að því framleiðslan full- nægi tæplega helmingi af raforku- þörfinni. Jónas segir að verið sé að kanna möguleika á jarðhitanýtingu víða um heim. Takist að lækka bor- kostnaðinn geti þessi framleiðsla hugsanlega orðið arðbær. - ghs Norðmenn bora eftir jarðhita á 5.500 metra dýpi: Gæti margfaldað afkastagetuna hér ARI EDWALD SIGRÍÐUR MARGRÉT ODDSDÓTTIR PÁLL MAGNÚSSON VINNUMARKAÐUR Hannes G. Sig- urðsson, aðstoðarframkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins, SA, segir að það eigi sér líklega ekki fordæmi hversu þung áhersla sé lögð á samvinnu við aðila vinnu- markaðarins á fjölmörgum svið- um í ítarlegri samstarfsyfirlýs- ingu stjórnarflokkanna. Þetta endurspegli það graf- alvarlega ástand sem ríki í efna- hagslífinu og þá ríku kröfu sem gerð hefur verið um fjölþætt sam- starf leiðandi aðila með það að markmiði að tryggja stöðugleika til frambúðar og efla atvinnu- starfsemi. Ekki sé ágreiningur milli aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um markmið og leið- ir í stórum dráttum. „Því ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að samkomulag náist í tæka tíð,“ segir hann í grein á vef SA. - ghs Yfirlýsing stjórnarflokka: Áherslan er fordæmalaus VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.