Fréttablaðið - 15.05.2009, Page 18

Fréttablaðið - 15.05.2009, Page 18
18 15. maí 2009 FÖSTUDAGUR Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] Fjöldi viðskipta: 42 Velta: 118 milljónir OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6 252 -0,79% 692 +0,49% MESTA HÆKKUN ÖSSUR 1,48% MAREL FOOD SYST. 1,37% MESTA LÆKKUN BAKKAVÖR 1,54% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 2,90 +0,00% ... Atlantic Airways 167,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 550,00 +0,00% ... Bakkavör 1,92 -1,54% ... Eik Banki 83,00 +0,00 ... Eimskipafélagið 1,00 +0,00% ... Føroya Banki 119,50 +0,00% ... Icelandair Group 4,50 +0,00% ... Marel Food Systems 59,20 +1,37% ... Össur 103,00 +1,48% Sett hefur verið í loftið ný og endur- bætt útgáfa vefsins sjodir.is. Á vefnum, sem er í eigu Creditinfo, er boðið upp á óháðan samanburð á ávöxtun verðbréfa- og fjárfest- ingarsjóða sem starfræktir eru af innlendum rekstraraðilum eða í umboðssölu hjá þeim. „Meðal nýjunga á vefnum má nefna að nú er hægt að bera saman ávöxtun sjóða með grafískum hætti og skoða ávöxtun í annarri mynt en íslenskri,“ segir í tilkynn- ingu. Jafnframt kemur þar fram að á vefnum sé einnig að finna ítarleg- ar upplýsingar um skráða sjóði, yfirlit viðskiptafrétta frá helstu vefmiðlum og greinargott orða- og hugtakasafn tengt verðbréfa- viðskiptum. Vefurinn sjodir.is hóf göngu sína árið 2000 og hægt að nota sér þjón- ustuna endurgjaldslaust. - óká Endurbættur vefur um sjóði Japanska hátæknifyrirtækið Sony tapaði 98,9 milljörðum jena í fyrra. Árið áður ver hagnaður 369,4 milljónir jena. Tapið er engu að síður minna en sú svarta mynd sem stjórnendur höfðu dregið upp í skugga efnahagskreppunnar. Rekstrartap í fyrra nam 227,8 milljörðum jena, sem er um sex hundruð milljarða verri afkoma en árið á undan. Stjórn fyrirtækisins segir tapið, sem er það fyrsta í fjórtán ár, skýr- ast ekki síst af styrkingu jensins gagnvart helstu viðskiptamyntum, svo sem Bandaríkjadal, sem hefur komið harkalega niður á japönsk- um útflutningsfyrirtækjum. - jab Sony skilar tapi MEÐ SONY-TÖLVU Fyrirtækið sem meðal annars framleiðir PlayStation-leikjatölvur tapaði peningum í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Danir fengu óblíðar móttökur Gjaldþrot banka í heimalandi gera athafna- mönnum víðar erfitt fyrir en á Íslandi. Viðskipta- blaðið Börsen segir þannig ekki sléttar farir danska fjárfestisins Thomas Melskens, sem leita þurfti að einhverum til að hlaupa undir bagga með um 150 milljónir króna (í íslenskum talið) eftir að hluthafi í gulltryggu verkefni fór á hausinn og gat því ekki staðið við skuldbindingar sínar. Thomas bukkaði á dyr hjá fjárfestingarfélögum á Wall Street en var hvarvetna vísað frá. Þegar hann fór að spyrjast fyrir þá reyndust þeir vestra búnir að bíta í sig að Roskilde Bank, sem fór á hausinn í fyrrasumar, hafi verið stærsti banki Danmerkur. Gekk því manna á milli að koma hvergi nærri dönskum verkefnum. Börsen segir fjárfestinn, furðu lostinn yfir því hvað sérfræðingar Wall Street byggja ákvarðanir sínar á lélegum upplýsingum, hafa þurft að leita ann- arra leiða. Það tókst með herkjum og TouchDiva tónlistarspilarinn nú á leið á markað í Kína. Betrunarvist? Óviss staða tryggingafélagsins Sjóvár hefur verið nokkuð í fréttum upp á síðkastið. Í fyrra gaf forstjórinn, Þór Sigfússon, út bókina Betrun þar sem hann rekur aðkomu sína að trygginga- félaginu og hvernig megi bæta stjórnun með því að læra af mistökunum. Miðað við stöðu félagsins eftir skell eigandans Milestone í Svíþjóð má ætla að Þór, sem í tvö ár á undan var framkvæmda- stjóri Viðskiptaráðs, hafi verið dæmdur til setu í forstjóra- stólnum á sínum tíma. Óvíst er hversu lengi betrunin á að standa yfir. Peningaskápurinn ... „Við erum að vinna í því endur- skipuleggja Sjóvá og uppfylla öll skilyrði um tryggingastarfsemi. Við reiknum með að skrifað verði undir fyrir lok næstu viku. Þegar aðstæður lagast seljum við trygg- ingafélagið í opnu söluferli,“ segir Árni Tómasson, formaður skila- nefndar Glitnis. Morgunblaðið sagði frá því í gær að eigið fé Sjóvár væri neikvætt upp á tíu milljarða króna, svo sem vegna verðfalls á eignum sem Mile- stone, fyrri eigendur trygginga- félagsins, hafi sett inn í félagið í tengslum við kaup á sænska fjár- mála- og tryggingafélaginu Invik árið 2007. Þar á meðal eru fasteignir í Evr- ópu og Asíu auk hluta- og skulda- bréfa. Fasteignirnar hafa lengi verið í leigu, þar á meðal hjá opin- berum stofnunum erlendis og stór- fyrirtækjum. Árni segir fasteignarekstur og tryggingastarf- semi Sjóvár verða aðskilin auk þess sem eignir verði teknar út úr rekstrinum í skiptum fyrir ríkisskuldabréf og aðrar traust- ar peningalegar kröfur. Árni, sem í gær var staddur í London í Bretlandi, gat í fljótu bragði ekki sagt til um hvað lækkun eigna- safns Sjóvár væri mikil. Sjóvá er eina tryggingafélagið sem ekki hefur skilað ársreikn- ingi. Ljóst þykir að félagið upp- fyllir ekki lágmarkskröfur um gjaldþol svo það geti starfað sem tryggingafélag. Gjaldþol fyrirtæk- isins í hitteðfyrra, það er hlutfall af eigin fé, var 4,8 sinnum hærra en lágmarksgjaldþol. Þá nam laust fé rúmum 8,2 milljörðum króna. Það er nú nær þremur milljörð- um, samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins. - jab ÁRNI TÓMASSON Sjóvá seld þegar lygnir á mörkuðum HÖFUÐSTÖÐVAR SJÓVÁR Í REYKJAVÍK Aðskilja á fasteignarekstur og tryggingastarf- semi Sjóvar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Ný stjórn Íslandssjóða hefur tekið til starfa. Fyrirtækið er dóttur- félag Íslandsbanka og rekur verð- bréfa- og fjárfestingarsjóði. Í tilkynningu bankans kemur fram að leitast hafi verið við að hafa stjórn Íslandssjóða óháða bankanum. „Því er einungis einn af fjórum stjórnarmönnum í aðal- stjórn félagsins starfsmaður bank- ans,“ segir þar. Í nýju stjórninni eru Ársæll Valfells viðskiptafræðingur, Bolli Héðinsson hagfræðingur, Elín Jónsdóttir lögfræðingur og Stein- unn Bjarnadóttir, forstöðumaður reksturs og innra eftirlits Eigna- stýringar Íslandsbanka. Varastjórn skipa Erna Eiríks- dóttir, Kristrún Auður Viðarsdóttir, Reimar Snæfells Pétursson og Stefán Sigurðsson. - óká Stjórnin óháð Íslandsbanka „Ljóst er að ef flytja má gengis- hagnað úr landi er það ekki í anda laga sem á að hefta útstreymi og opnar á marga möguleika til að fara á svig við lög um gjaldeyris- höft,“ segir í nýrri umfjöllun IFS Greiningar. Í nýjustu Peningamálum, riti Seðlabankans, segir að lækki vextir umfram væntingar mynd- ist gengishagnaður sem heimilt sé samkvæmt reglum að flytja úr landi. IFS telur líklegra að um mis- skilning sé að ræða og telur að sé svo standi krafan á Seðlabankann að leiðrétta þann misskilning. „Og færa frekari rök fyrir háum vöxt- um,“ segir í umfjölluninni. - óká Velta fyrir sér misskilningi

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.