Fréttablaðið - 15.05.2009, Síða 21
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
BARBIE var nýlega heiðruð af AAFA-samtökunum í Bandaríkjunum,
American Apparel and Footwear Association. Á sama tíma voru heiðraðir
aðrir hönnuðir og fyrirtæki á borð við Norma Kamali, Lily Pulitzer, Gilbert
Harrison, Wolverine World Wide, Inc. og QVC.
400 g þorskhnakki
2 msk. ólívuolía
125 ml kókósmjólk
safi úr einu súraldini
(lime)
börkur af hálfu súraldini
Þorskurinn er steiktur
á pönnu í olíunni, 5
mínútur á hvorri hlið.
Bætið kókosmjólkinni,
súraldinsafanum og
berkinum út í eftir
að fiskur hefur verið
í 2 mínútur á seinni
hliðinni og látið malla í
smástund.
Stráið ferskum graslauk
og grófum kókosflögum
yfir réttinn.
Sæt kartöflumús
500 g sætar kartöflur
2 msk. hlynsíróp
80 ml rjómi
hnífsoddur af salti
hnífsoddur af chilikryddi
Hitið ofninn í 180°C.
Skerið kartöflunar í
tvennt og pakkið þeim
í álpappír og bakið
þær í ofninum í 45-60
mínútur eða þangað
til að þær eru eldaðar
í gegn og vel mjúkar.
Skafið innivolsið úr
kartöflunum og setjið í
skál og bætið hlyns-
írópinu, rjómanum,
saltinu og chilikryddinu
við og hrærið létt í með
handþeytara.
FRÍSKLEGUR ÞORSKUR
Með kókos og súraldini FYRIR 2-3
Flest sem ég elda er eitthvað sem
ég set saman í kollinum á mér,“
segir Kristinn Alfreð Ferdin-
andsson, sem vinnur við þjálfun
og skipulagningu flugáhafna hjá
Flugfélaginu Primera Air.
„Ég reyni að notast sem minnst
við matreiðslubækur, nema
kannski til að ráðfæra mig um
einstaka hluti. Ég hef hins vegar
gaman af því að horfa á mat-
reiðsluþætti þannig að það síast
klárlega inn hugmyndir þaðan,“
segir hann.
„Þessi réttur á sér nú ekkert
sérlega langa sögu,“ nefnir Krist-
inn. „Það má segja að hann hafi
bara komið til mín upp úr þurru.
En einn daginn langaði mig svo í
þorsk en ekki þennan hefðbundna
steikta þorsk með kartöflum og til
varð þessi réttur,“ segir hann.
„Ég hef í seinni tíð borðað mikið
meira af fiski en ég gerði sem ungl-
ingur,“ minnist Kristinn á og upp-
lýsir að við hliðina á vinnustaðnum
hans í Hlíðarsmára í Kópavogi sé
dýrindis fiskbúð. „Ég á því hægt
um vik að ná mér í ferskan fisk á
leið heim úr vinnu,“ segir hann og
notar tækifærið og hrósar strák-
unum í Fiskiprinsinum í hástert.
vala@frettabladid.is
Skapandi eldamennska
Kristinn Alfreð Ferdinandsson hjá flugfélaginu Primera Air hefur gaman af matreiðsluþáttum en þaðan
sækir hann helling af hugmyndum til að hressa upp á eigin eldamennsku.
Þorskur með kókos og súraldin með girnilegri kartöflumús að hætti Kristins Alfreðs. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Heimasíða www.perlan.is
H
rin
gb
ro
t
Næg ókeypis bílastæði
við Perluna
Ódýrt og gott!
Súpubar 620 kr. · Salatbar 990 kr.
Súpa og salatbar á aðeins 1.430 kr.
~ NÝBAKAÐ BRAUÐ FYLGIR MEÐ SÚPU- OG SALATBAR. ~
Í kaffiteríunni Perlunnar er hægt
að fá alls kyns góðgæti á frábæru
verði: Crépes, samlokur, pizzur
og smurt brauð. Eins er hægt að
fá heimatilbúinn ítalskan ís, alls
kyns ísrétti, kökur og tertur.
Komnar aftur!
Láttu belgísku vöfflurnar
eftir þér, þær eru algjörlega
þess virði. Nú enn betri með
kanil auk vanillu.
E
lfa
D
ög
g
M
ah
an
ey
R
ek
st
ra
rs
tj
ór
i k
af
fit
er
íu
nn
ar