Fréttablaðið - 15.05.2009, Page 54
30 15. maí 2009 FÖSTUDAGUR
„Þetta gekk ljómandi vel. Og við
stóðum okkur allar vonum fram-
ar,“ segir Aníta Lísa Svansdóttir –
ungfrú Vesturland og hugsanlega
verðandi Ungfrú Ísland. Í gær
fóru keppendur í Ungfrú Ísland-
keppninni á nokkrar bensínstöðv-
ar til að dæla bensíni, athuga með
olíu á bílum viðskiptavina N1 og
setja rúðupiss á þá bíla sem þess
þurftu við. Allt til stuðnings góðu
málefni en þessi gjörningur var
liður í fjáröflun til styrktar lang-
veikum börnum. Safnað var rúm-
lega tvö hundruð þúsund krón-
um og N1 lagði hundrað þúsund
krónur á móti þannig að rúm þrjú
hundruð söfnuðust.
Aníta Lísa var hress og segist
ekki vera vön bensínafgreiðslu
eða því að athuga með olíu á
sínum eigin bíl. „Maður er allt-
af að læra eitthvað nýtt. Þetta er
svo sem engin stjarneðlisfræði.
En þetta var frekar fyndið. Við
vorum allar í gallabuxum á háum
hælum. Og ég var pjattrófa við
þetta. Þurfti hanska. Vildi ekki
maka olíu á mig og fötin. Þannig
að þetta var fyndin sjón,“ segir
Aníta fjallhress.
Keppnin Ungfrú Ísland er eftir
viku eða 22. þessa mánaðar. Brjál-
að stress að sögn Anítu sem segir
um að gera að hafa gaman af
þessu. „Þetta er ótrúlega skemmti-
leg lífsreynsla og allt öðruvísi
en undankeppnirnar. Miklu fag-
mannlegri undirbúningur og stíf-
ar æfingar.“ Aníta er Skagastelpa
og í fótbolta, starfar sem þjálfari
hjá Val en er nýlega gengin til liðs
við FH-inga. Og er ánægð með það
– segir gaman að koma að því liði
til að byggja upp. - jbg
folk@frettabladid.is
> GEFUR ÚT PLÖTU
Leikarinn Idris Elba, sem þekktastur er fyrir
hlutverk sitt sem Stringer Bell í sjónvarps-
þáttunum The Wire, ætlar að hvíla sig á
kvikmyndaleik og gefa út plötu á þessu
ári. Hann ætlar þó ekki að leita til frægra
vina sinna í bransanum, Beyoncé, Jay-
Z og Busta Rhymes, eftir aðstoð.
„Það gerist alltaf þegar leikar-
ar gerast tónlistarmenn en ég
ætla að byrja smátt,“ segir
Elba, sem kemur fram undir
nafninu Driis.
ANÍTA TÉKKAR Á OLÍUNNI Sjaldan hefur önnur eins fegurð mætt þeim sem vildu
taka bensín og í gær. Ungfrú Vesturland segir bensínafgreiðsluna enga stjarneðlis-
fræði en þó var vissara að hafa starfsmann N1 til aðstoðar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Stór útgáfufyrirtæki frá
Bretlandi, Svíþjóð og
Þýskalandi hafa sýnt áhuga
á að semja við Jóhönnu
Guðrúnu og gefa jafnframt
út plötu hennar Butterflies
and Elvis.
„Það vantar ekki athyglina á henni,
við finnum hana,“ segir María
Björk Sverrisdóttir, umboðsmaður
Jóhönnu Guðrúnar sem syngur í
úrslitum Eurovision annað kvöld.
Á meðal útgáfufyrirtækjanna
sem hafa sýnt henni áhuga er 19
Entertainment sem er í eigu Sim-
ons Fuller, höfundar Idol-þátta-
raðanna bresku og bandarísku.
Þekktustu skjólstæðingar þess
eru Kelly Clarkson, Beckham-
hjónin og Spice Girls. Sony í Sví-
þjóð hefur einnig lagt fram fyrir-
spurn vegna Jóhönnu en hún var
einmitt á mála hjá því fyrirtæki
í Bandaríkjunum þegar hún var
tólf ára. „Ég er að vinna í þessum
málum, þetta kemur allt í ljós. En
það er mjög mikill áhugi á henni í
Þýskalandi, Svíþjóð og Bretlandi,“
segir María Björk. „Við erum bara
að skoða hlutina og sjá hvað gerist.
Svo veit maður aldrei hvernig hlut-
irnir verða.“
Þegar Jóhanna var tólf ára gerði
hún útgáfusamning við Tommy
Mottola, fyrrverandi eiginmann
söngkonunnar Mariah Carey og
þáverandi forstjóra Sony í Banda-
ríkjunum. „Hann var þarna að fara
frá Sony og stofna sitt eigið plötu-
fyrirtæki. Þetta var á þeim tíma
sem bransinn var að hrynja og
nokkrir hlutir gerðu það að verk-
um að við náðum að losa okkur út
úr þessu, sem var mjög gott fyrir
okkur. Hún var bara tólf ára og
þeir vildu stjórna ferðinni og láta
hana bíða en við vildum stjórna
því sjálf,“ segir María. Hún segir
að Jóhanna sé pollróleg þrátt fyrir
að erlend stórfyrirtæki bítist um
hana. „Við erum búnar að ganga
í gegnum svo margt. Hún tekur
skref fyrir skref og núna er bara
að klára aðalkeppnina,“ segir hún
en játar að það yrði frábært ef
útgáfusamningur næðist að henni
lokinni. „Það er vonandi að við
fáum eitthvað úr keppninni. Það
er kannski meira atriði heldur en
að vinna keppnina, að reyna að ein-
blína á lífið eftir hana.“
freyr@frettabladid.is
Sony og Fuller vilja Jóhönnu
EFTIRSÓTT Jóhanna Guðrún er eftirsótt af erlendum útgáfufyrirtækjum sem bítast
nú um krafta hennar. María Björk, umboðsmaður hennar, vonast til að Jóhanna fái
útgáfusamning eftir að Eurovision lýkur. FRÉTTABLAÐIÐ/ALMA
Pjattrófa dælir bensíni
Leikarinn Harrison Ford segist vera í
skýjunum eftir að hafa trúlofast kærustu
sinni til margra ára, leikkonunni Calistu
Flockhart. Ford, sem er þekktastur fyrir
leik sinn í Star Wars og Indiana Jones-
myndunum, lýsti þessu yfir í banda-
ríska sjónvarpsþættinum Enter tain ment
Tonight. Þegar hann var spurður hvort
þau væru ekki hamingjusöm sagði hann:
„Þið mynduð örugglega fá að vita það
fyrst ef við værum það ekki. Auðvitað
erum við það. Ég er alveg í skýjunum,“
sagði Ford. Þau hafa hingað til lítið vilj-
að tjá sig um það hvort hjónaband væri á
stefnuskránni en núna virðist styttast
óðfluga í það.
Flockart, sem er 44 ára, og hinn
66 ára Ford hafa verið saman í sjö ár.
Þau eiga einn son, Liam, sem Flockhart
ættleiddi árið 2001. Ford á fjögur börn
til viðbótar með tveimur
fyrrverandi eiginkon-
um sínum. Flockhart
er þekktust fyrir leik
sinn í lögfræðiþáttun-
um Ally McBeal sem
voru sýndir á árunum
1997 til 2002 við mikl-
ar vinsældir. Undanfar-
in ár hefur aftur á móti
minna farið fyrir leik-
listarferli hennar.
Trúlofuð og hamingjusöm
HARRISON FORD Leikarinn vin-
sæli er mjög hamingjusamur
eftir að hafa trúlofast Calistu
Flockhart.
CALISTA FLOCKART 22
ára aldursmunur er á
Flockhart og Ford.
Betrihíbýli.is Hyrjarhöfða 8 Sími 5535577
HURÐIR-BORÐPLÖTUR
-70%
LAGERSALA
-70%
-70%
-70%