Fréttablaðið - 15.05.2009, Page 56
32 15. maí 2009 FÖSTUDAGUR
Fyrsta plata hjónadúettsins
Létt á bárunni er komin út.
Svavar Pétur og Berglind
úr Skakkamanage standa
að baki sveitinni en auk
þess gefur Svavar út fyrsta
sólóverkefni sitt, Prins
Póló.
Útgáfufélögin Brak hljómplötur og
Skakkapopp hafa gefið út tvær plöt-
ur með hljómsveitunum Prins Póló
og Létt á bárunni.
Létt á bárunni er hjónadúett
Svavars Péturs og Berglindar
Häsler úr Skakkamanage og Prins
Póló er einmenningssveit Svavars.
Plöturnar, sem heita Einn heima og
Sexí, hafa að geyma tólf lög saman-
lagt. Þær urðu báðar til í kjallara í
Fossgötu á Seyðisfirði þar sem þau
hjónin eiga heima.
„Þetta byrjaði einhvern tímann
í haust þegar við vorum búin að
gefa út Skakkamanage-plötuna. Þá
vorum við að hugsa um hvað væri
næsta skref,“ segir Svavar. „Það
byrjuðu að renna út einhver lög rétt
fyrir kreppuna miklu. Lögin fóru
að snúast um íslenskan veruleika.
Þegar maður er fastur á Seyðisfirði
með fjöllin og náttúruna beint í æð
liggur það beinast við.“
Kæruleysislegur bragur er yfir
báðum plötunum enda voru þær
unnar á skömmum tíma. „Það er allt
látið flakka frekar en að liggja yfir
því. Þetta snýst um að gera hlutina
frekar en að átta sig á afleiðingun-
um,“ segir Svavar. Nálgast má plöt-
urnar á síðunni Skakkapopp.is og í
völdum verslunum í Reykjavík og
Akureyri.
Næstu tónleikar með Létt á bár-
unni, Prins Póló og Skakkamanage
verða á skemmtistaðnum Karamba
6. júní. Eftir þá fer Skakkamanage
í tónleikaferð um Þýskaland sem
stendur yfir í viku til að kynna
plötu sína All Over the Face sem
kemur út í Evrópu 1. júní.
freyr@frettabladid.is
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
14
14
12
14
L
L
ANGELS & DEMONS kl. 6 - 9
BOAT THAT ROCKED kl. 10
X-MEN WOLVERINE kl. 6 - 8
14
12
14
ANGELS & DEMONS D kl. 3 - 5 - 6 - 8 - 9 - 10.50
ANGELS & DEMONS LÚXUS D kl. 5 - 8 -10.50
BOAT THAT ROCKED kl. 5.20 - 8 - 10.40
X-MEN WOLVERINE kl. 3 - 5.40 - 8 - 10.20
MÚMÍNÁLFARNIR kl. 3
MALL COP kl. 3
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
5%
14
12
14
L
ANGELS & DEMONS kl. 6 - 9
BOAT THAT ROCKED kl. 6 - 9
X-MEN WOLVERINE kl. 6.30 - 9
DRAUMALANDIÐ kl. 6* - 8 - 10
* Enskur texti / English subtitles
SÍMI 530 1919
14
14
12
12
16
ANGELS & DEMONS kl. 5.30 - 8.30 - 11.20
X-MEN WOLVERINE kl. 5.40 - 8 - 10.20
STATE OF PLAY kl.5.20 - 8
I LOVE YOU MAN kl. 5.40 - 10.35
CRANK 2: HIGH VOLTAGE kl. 8 - 10.10
SÍMI 551 9000
"SPENNANDI, FYNDIN
OG HRAÐSKREIÐ ÚT Í
GEGN! MIKLU BETRI EN
DA VINCI CODE."
- T.V., KVIKMYNDIR.IS
ÁLFABAKKA
KEFLAVÍK
AKUREYRI
SELFOSS
KRINGLUNNI
Empire
Tommi - kvikmyndir.is
Frá Höfundi Lost og Fringe, J.J.Abrams, kemur
STÓRMYND sem gagnrýnendur halda vart vatni yfir!
100/100
The Hollywood Reporter
100/100
Variety
100/100
“In the pop high it delivers, this is the greatest
prequel ever made.” Boston Globe
HANNAH MONTANA kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 L
STAR TREK XI kl. 3:30 - 6 - 8D - 10:40D 10
STAR TREK XI kl. 8 - 10:40 VIP
THE LAST HOUSE ON THE LEFT Forsýning kl. 10:40 16
NEW IN TOWN kl. 8:30 L
NEW IN TOWN kl. 5:50 VIP
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN m/ísl.tali kl. 4D - 6D L
OBSERVE AND REPORT kl. 5:50 - 8 - 10:20 16
17 AGAIN kl. 4 - 6 L
I LOVE YOU MAN kl. 8 12
THE UNBORN kl. 10:40 16
MONSTERS VS ALIENS m/ísl.tali kl. 3:40 L
STAR TREK XI kl. 8D - 10:30D 10
HANNAH MONTANA kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:30 L
ALFREÐ ELÍASSON OG LOFTLEIÐAMYND kl. 5:30D - 8D L
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN m/ísl.tali kl. 4D L
MONSTERS VS ALIENS m/ísl.tali kl. 3:30(3D) L
MONSTERS VS ALIENS m/ísl.tali kl. 6 L
LET THE RIGHT ONE IN kl. 10:10 síðasta sýn! 16
STAR TREK XI kl. 8 - 10:30 10
DRAUMALANDIÐ kl. 8 L
KNOWING kl. 10:10 12
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN m/ísl.tali kl. 6 L
17 AGAIN kl. 5:50 L
HANNA MONTANA kl. 6 - 8 L
NEW IN TOWN kl. 10 L
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN m/ísl.tali kl. 6 L
STAR TREK XI kl. 8 - 10:20 10
ANGELS AND DEMONS kl. 5 - 8 - 10:40 14
HANNAH MONTANA kl. 5:50 - 8 - 10:10 L
kvikmyndir.com
Morgunblaðið
FORSÝNING!
Myndin sem allir aðdáendur Hannah
Montana mega ekki missa af
Fór beint á toppin í USA
- Philadelphia Inquirer - - New York Times
- bara lúxus
Sími: 553 2075
ANGELS & DEMONS kl. 4, 7 og 10 14
STAR TREK kl. 5.30, 8 og 10.30 10
MÚMÍNÁLFARNIR(650kr.) kl. 4 - Íslenskt tal L
STATE OF PLAY kl. 10 12
17 AGAIN kl. 4, 6 og 8 L
“Spennandi, fyndin
og hraðskreið út í
gegn! Miklu betri en
Da Vinci Code.”
T.V. - kvikmyndir.is
-M.M.J., kvikmyndir.com
LÉTT Á BÁRUNNI Hljómsveitin Létt á bárunni er skipuð hjónunum Svavari Pétri og
Berglindi Häsler. MYND/ÞORBJÖRN ÞORGEIRSSON
Kajagoogoo ætlar í sína fyrstu
tónleikaferð um Bretland með
upprunalegum mannskap í rúm
25 ár. Hljóm-
sveitin gerði
garðinn frægan
á níunda ára-
tugnum með
lögum á borð
við Too Shy, Ooh
To Be Ah og
Big Apple. Hún
hætti nokkrum
mánuðum eftir
að Too Shy fór á toppinn í Bret-
landi. Söngvarinn Limahl, sem er
orðinn fimmtugur, segir að það
hafi tekið hljómsveitina 25 ár að
vaxa úr grasi. Limahl, sem heitir
réttu nafni Christopher Hamill,
hætti í sveitinni árið 1983 og í
stað hans tók bassaleikarinn Nick
Beggs við hljóðnemanum.
Kajagoogoo í
tónleikaferð
LIMAHL
Samkvæmisdívan Paris Hilton var yfir-
heyrð af lögreglunni í Los Angeles eftir
að bílar nágranna hennar voru eyði-
lagðir á svipuðum tíma og hún hélt
glæsilega og nokkuð tryllta veislu á
heimili sínu.
Nágrannar Paris voru ekki par sátt-
ir við hótelerfingjann sem ákvað að slá
upp smá partíi fyrir vini og vandamenn.
Að hætti Paris stóð veislan langt fram á nótt
og að lokum var lögreglan fengin til að skakka
leikinn og stoppa gleðina. Nágrannarnir, sem
kvörtuðu við laganna verði, uppgötvuðu síðar
að lúxusbifreiðar þeirra hefðu verið útataðar í
eggjum og öðru viðlíka. Og kölluðu lögregluna
aftur á vettvang til að spyrja fröken Hilton
frekar út í málavexti.
Paris Hilton yfir-
heyrð af lögreglu
ÓLÁTABELGUR Paris Hilton er dugleg að koma sér í
klandur.
Lay Low, Pétur Hallgrímsson, Kippi Kaninus og
Borgar Magnason tróðu upp á elliheimili í Íslend-
ingabænum Gimli í Kanada um síðustu helgi. „Við
æfðum eina nóttina og fórum svo á elliheimili þar
sem íslenskt fólk er,“ segir gítarleikarinn Pétur.
„Þetta er fólk sem er fætt í Kanada en talaði ekkert
nema íslensku sem börn.“
Fjórmenningarnir voru staddir í Kanada vegna
tónlistarhátíðarinnar Now, sem er ætlað að styrkja
tengslin milli Íslands og Kanada. „Það var alveg
magnað að hitta gamla fólkið og heyra það segja
sögur,“ segir Pétur. Alls voru fimm lög á efnis-
skránni, þar á meðal Sofðu unga ástin mín og Á
Sprengisandi, og vöktu tónleikarnir mikla lukku hjá
gamla fólkinu. „Þetta var mjög sérstakt fyrir okkur
og það var gaman að spila þessi lög og smella sér í
þetta,“ segir hann.
Pétur spilaði með Lay Low á tvennum öðrum
tónleikum í Winnipeg og Gimli sem heppnuðust
báðir mjög vel. „Þetta var alveg meiriháttar,“ segir
hann en uppselt var á þá fyrrnefndu. Helgina á
undan spiluðu í Kanada hljómsveitin Baggalútur og
Megas og tókust þeir tónleikar einnig með miklum
ágætum. - fb
Spiluðu á elliheimili í Gimli
PÉTUR OG LAY LOW Pétur Hallgrímsson og Lay Low spiluðu á
elliheimili í Gimli í Kanada um síðustu helgi.
Lög um íslenskan veruleika