Fréttablaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðssonar
Í dag er föstudagurinn 15. maí,
135. dagur ársins.
4.13 13.24 22.38
3.38 13.09 22.42
Alþingismenn hafa nú verið leystir undan því oki að þurfa
að mæta með bindi í vinnuna. Þetta
leggst misvel í mannskapinn. Meðan
hatursmenn slifsanna varpa önd-
inni léttar óttast hinir íhaldssam-
ari að nú fari Þráinn Bertelsson og
Þór Saari að mæta í kvart buxum og
havaískyrtum í vinnuna og virðing-
unni fyrir löggjafarsamkundunni
verði endanlega kastað fyrir róða.
Sá ótti er kannski ekki ástæðulaus,
því miðað við vinnubrögðin sem við
urðum vitni að á nýafstöðnu vor-
þingi má mögulega til sanns vegar
færa að snyrtilegur klæðnaður
sé eitt af því fáa sem ljær Alþingi
snefil af virðingarbrag núorðið.
SJÁLFSAGT þurfum við ekki að
hafa áhyggjur af því að senn fari
þingmenn að mæta eins og umrenn-
ingar til fara en engu að síður er
mikilvægt að komast að málamiðlun
í þessum efnum, ná þverpólitískri
sátt eins og sagt er. Hvað um að láta
til dæmis útbúa sérstaka alþingis-
mannabúninga? Það hefði nokkra
ótvíræða kosti í för með sér.
Í FYRSTA lagi væru alþingis-
mannabúningar til þess fallnir að
lækka fatakostnað alþingismanna.
Í öðru lagi gætu þeir dregið úr ein-
elti á vinnustað, eins og Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir benti á í ræðu
á Alþingi: „Ég veit ekki betur en að
hér í þingsal eigi allir herramenn
að vera með bindi en sumir segja
eigi að síður að það sé nokkuð mikið
einelti í því.“ Það eru eflaust þung
skref fyrir óbreyttan þingmann á
þingfararkaupi að mæta með Dress-
mann-bindi um hálsinn vitandi af
ráðherranum með silkislifsi frá
Sævari Karli.
ÉG SÉ alþingismenn til dæmis
fyrir mér í Henson-jogginggöll-
um og flíspeysum í stíl. Flokk-
arnir fengju vitaskuld allir bún-
ing í sínum lit: Sjálfstæðisflokkur
bláan, Framsókn grænan, VG rauð-
an, Samfylking gulan og Borgara-
hreyfing appelsínugulan. Nafn
hvers þingmanns yrði saumað á
brjóstið og ráðherrar fengju buff
að auki. Þetta yrði eflaust til þess
fallið að efla innlenda framleiðslu.
Össur þyrfti ekki að mæta svona
klæddur á nema einn eða tvo fundi
hjá Sameinuðu þjóðunum eða NATO
og Henson hefði ekki undan við
afgreiða pantanir að utan.
ÉG HELD að þingmenn myndu
taka vel í þessa breytingu, guðslif-
andi fegnir að þurfa ekki að mæta í
fleiri froðuviðtöl um hvað sé í fata-
skápnum og geta einbeitt sér að
stjórnmálum. Enda eru stífpressuð
jakkaföt og dragtir beinlínis haml-
andi þegar maður ætlar að vera með
framíköll, málþóf og fjas um hvaða
herbergi flokkurinn manns eigi að
vera í. Þá hæfir þá Henson-galli,
flíspeysa og buff betur tilefninu.
Þjóðþrifamálin
25% afsláttur af buxum og bolum
bisgaard
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára.
Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009.
Hvar er þín auglýsing?
34%
74%