Fréttablaðið - 16.05.2009, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 16.05.2009, Blaðsíða 24
 16. maí 2009 LAUGARDAGUR B einta greindist með færeyskt heilkenni (Sucla2) fyrir aðeins um þremur árum. Hún var orðin sex ára þegar endanlega var hægt að skera úr um hvaða sjúk- dómur hrjáði hana þótt það hafi verið ljóst frá eins árs aldri að hún var mjög fötluð. Foreldrar Beintu og Levi eru færeysk. Faðirinn, Schumann Didriksen, er þó fæddur og uppalinn á Íslandi en Heidi kom hingað til lands á fullorðinsaldri, kynntist Schumann og sneri ekki aftur til Færeyja. Færeyskt heil- kenni er genagalli sem þekkist ein- ungis í Færeyjum en hann er talinn hafa komið þar fyrst upp á 17. öld eða árið 1630. Krakkarnir sem þjást af þessum sjúkdómi í dag búa öll í Færeyjum utan Beintu. Heyrnarlaus um fimm ára „Þessi genagalli sem Beinta er með lýsir sér með hreyfihömlun og alls kyns alvarlegum veikindum en ónæmiskerfi þeirra sem eru með sjúkdóminn er mjög viðkvæmt og þá sérstaklega barna. Þau verða heyrnarlaus með aldrinum en Beinta heyrir ekki lengur. Þegar hún liggur eða situr getur hún örlít- ið hreyft útlimi. Það hefur sýnt sig að þessir krakkar eru miklu betur staddir andlega en líkamlega og kollurinn á þeim í fínu lagi,“ segir Heidi og bætir við að Beinta þyki af þeim sérfræðingum sem rannsak- að hafa færeyska heilkennið standa sig ótrúlega vel. „Við fáum auðvit- að mikla hjálp hér heima á Íslandi miðað við í Færeyjum, svo sem iðjuþjálfun og sjúkraþjálfun. Því miður hafa færeysku krakkarnir ekki verið eins heppnir. En Beinta er algjört kraftaverkabarn og það er skrítið til þess að hugsa að fyrst þegar þeir voru að reyna að finna út úr sjúkdómi hennar og náðu að flokka hann í svona ákveðinn „yfir- hóp“ – án þess að vera búnir að finna nákvæmlega að þetta var fær- eyska heilkennið − var okkur sagt að Beinta myndi í mesta lagi verða fimm ára.“ Herbalife hefur haft góð áhrif Það barn sem lengst hefur lifað með færeyska heilkennið varð 21 árs. Hefur þar mest að segja að ef veikindi koma upp er ónæmiskerfið veikt og langt og erfitt verk að vinna bug á því sem fyrir okkur eru venjulegar flensur. Beinta mat- ast í gegnum sondu en foreldrar hennar segja að þau hafi ákveðið að fara óvenjulegar leiðir með matar- æði hennar. „Ónæmiskerfið henn- ar hefur styrkst mjög mikið síðustu árin. Bæði höfum við auðvitað farið í einu og öllu eftir læknisráðum en svo höfum við líka farið okkar eigin leiðir. Þær eru á okkar eigin vegum og ábyrgð því læknar ráðleggja ekki óhefðbundnar aðferðir.“ Beinta er á uppbyggjandi prógrammi frá Herbalife og hefur verið um nokk- urt skeið. „Við hugsuðum sem svo að við hefðum engu að tapa og fyrir tveimur árum fórum við út og hitt- um þrjá sérfræðinga frá Hollandi og Þýskalandi. Þeir voru yfir sig hrifnir af því hve vel Beinta stóð og sögðu hana á allt öðru stigi en hin börnin í Færeyjum. Þeir gátu ekki neitað því að það sem við höfum verið að gera fyrir hana í mataræði hefur greinilega haft góð áhrif og við höfum mætt velvild í skólanum og dagheimilinu að allir gefi henni þetta. Heilsufar hennar hefur sagt sína sögu en það hefur verið afar gott síðustu misserin.“ Misstu 9 mánaða fatlaðan dreng Beinta er ekki fyrsta fatlaða barnið sem Heidi og Schumann eignast en árið 1995 eignuðust þau son sem dó níu mánaða. „Vegna þessa fór ég í legvatnsstungu þegar ég varð ófrísk í seinna skiptið og þá kom í ljós að annar tvíburinn var á því sem kallast „grátt svæði“ og ekki vitað almennilega hvað var að. Við tóku því miklar rannsóknir og skoðanir og meðgangan tók því mikið á og var erfið andlega. Hins vegar þegar Beinta fæddist var ekki hægt að sjá strax hvað var að og það hefur verið Tvíburarnir Beinta Maria Didriksen og Levi Didriksen verða níu ára gömul í júlí. Beinta er með svo sjaldgæfan sjúkdóm að einungis fimm aðrir núlifandi einstaklingar í heiminum hafa greinst með hann en Levi er alheilbrigður. Júlía Margrét Alexandersdóttir hitti tvíburana og móður þeirra, Heidi Didriksen. Aðeins fimm börn með færeyskt heilk Hvernig tala ég við hana? Nú, með táknmáli. Ég segi góða nótt og góðan dag við hana. Og segi henni þegar við erum að fara að sofa og borða. sumarferdir.is Tenerife Fanabe Costa Sur ALLT INNIFALIÐ* Verð frá: 99.999kr. á mann m.v. 2 fullorðna og 1 barn í viku. Brottför 1. júlí. * Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður með innlendum drykkjum. Snarl milli mála og kökur og kaffi . Krakkaklúbbur á daginn og skemmtidagskrá fyrir krakka á öllum aldri á kvöldin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.