Fréttablaðið - 16.05.2009, Blaðsíða 86
62 16. maí 2009 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
Hér færð þú tækifæri til að stýra stærstuhandboltaliðum heims. Stýrðu íslenska landsliðinu til sigurs á Ólympíuleikunum eða í Heimsmeistarakeppninni.Eða taktu við félagsliði stærstu handboltadeildum heimsins, þar á meðal þeirri íslensku.
Handball
Manager 2009
> Atvik umferðarinnar
Andrew Mwesigwa, varnarmaður ÍBV, ákvað að reyna
að nota báðar hendurnar til að reyna koma boltanum
í mark Blika í leik liðanna á miðvikudagskvöldið. Þar
að auki var hann með gult spjald á bakinu og fékk því
skiljanlega það rauða. Einkar einkennilegt.
> Bestu ummælin
„Ég veit nú ekki um vítið sem FH fékk en þú varst
ánægður með það. Látum það nægja,“ sagði
Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram, í viðtali
við Hörð Magnússon, íþróttafréttamann
Stöðvar 2 Sports. Hörður er eins og alkunna
er gamall FH-ingur en það hafði lítið með
leik FH og Fram að gera og ómaklegt hjá Þor-
valdi að vega að Herði með slíkum hætti.
TÖLURNAR TALA
Flest skot: Valur 17
Flest skot á mark: Stjarnan 10
Fæst skot: Þróttur 4
Hæsta meðaleink.: Fylkir 6,64.
Lægsta meðaleink.: Þróttur 3,62.
Grófasta liðið: Fylkir 21 brot.
Prúðasta liðið: Keflavík, Þróttur
og Fram með 8 brot.
Flestir áhorfendur: 1287, á leik
FH og Fram.
Fæstir áhorfendur: 560, á leik
ÍBV og Breiðabliks.
Áhorfendur alls: 5407 (901).
Besti dómarinn:
Fjórir dómarar fengu 7 í eink unn
fyrir leiki sína í umferðinni.
Albert Sævarsson
Kristján Valdimarsson Alen Sutaj
Halldór Orri Björnsson
Valur Fannar
Gíslason
Steinþór Freyr-
Þorsteinsson
Atli Sveinn
Þórarinsson
Jónas Guðni
Sævarsson
Alfreð Finn-
bogason
Marel Bald-
vinsson
Atli Guðnason
3-4-3
FÓTBOLTI Marel Baldvinsson átti
sannkallaðan stjörnuleik með Val
gegn Fjölni á fimmtudagskvöld-
ið. Þar skoraði hann eitt mark og
lagði upp annað í 3-1 sigri auk þess
sem hann lék varnarmenn Fjölnis
oft grátt í leiknum.
Marel gekk til liðs við Val
skömmu áður en mótið hófst en
hann lék áður með Breiðabliki.
Hann neitar því ekki að það sé
langt síðan hann hafi spilað eins
vel og í gær.
Ekki dauður úr öllum æðum
„Ég var nú kannski ekki dauður
úr öllum æðum áður en ég kom
til Vals en vissulega var mjög
gaman að spila þennan leik. Og
klárlega var þetta einn af mínum
betri leikjum í langan tíma,“ sagði
Marel í samtali við Fréttablaðið.
„Það hefur gengið vel að aðlag-
ast Valsliðinu. Mér hefur verið
tekið vel,“ bætir hann við.
Nokkuð var fjallað um félaga-
skipti Marels nú á vormánuðum og
umræða um að Marel hafi farið til
Vals peninganna vegna.
Valur var spennandi kostur
„Ég gef ansi lítið fyrir þá umræðu
enda var ég ekkert að spá í því
þegar ég fór í Val. Þarna
bauðst mér spennandi
kostur enda er Valur
með nýtt lið sem hefur
burði til að gera góða
hluti. Við erum enn að
stilla saman streng-
ina en það hefur ekk-
ert breyst – við höfum
enn burði til að ná
langt.“
Valur tapaði fyrir
Fylki í fyrstu umferð-
inni og segir Marel
að þeir hafi hreinlega verið lélegir
í þeim leik.
„Það verður bara að segjast
eins og er. En gegn Fjölni stillt-
um við upp sóknarsinnuðu liði og
ef sá leikur gefur fyrirheit um það
sem koma skal erum við í góðum
málum.“
Frábært að spila með Helga
Marel og Helgi Sigurðsson léku
saman í fremstu víglínu Vals-
manna í gær.
„Við höfum ekki spilað mikið
saman í gegnum tíðina þó svo að
við vorum oft valdir í landsliðið á
sama tíma. En það var frábært að
spila með honum í gær og ég held
að séum það ólíkar týpur að það
henti okkur vel að spila saman,“
sagði Marel.
Hann segir góða stemningu
ríkja í Valsliðinu. „Það eru mörg
ný andlit í hópnum og það tekur
auðvitað tíma að kynnast almenni-
lega. En samstaðan innan hópsins
er góð og sýndi það sig í leiknum
þegar við náðum að koma til baka
eftir lélega frammistöðu í fyrsta
leik. Gegn Fjölni vorum við allir
að leggjast á eitt og vinna fyrir
hvor annan.“
„En við megum ekki
missa okkur. Þetta
eru bara þrjú
stig og auðvit-
að gerum við
kröfu á það
á heimavelli
gegn liði eins
og Fjölni –
með fullri
virðingu
fyrir þeim.
Nú er bara að
halda áfram á
sömu braut.“
eirikur@
frettabladid.is
Erum enn að
stilla strengina
Marel Baldvinsson er leikmaður 2. umferðar Pepsi-
deildar karla að mati Fréttablaðsins. Hann átti stór-
leik í 3-1 sigri Vals á Fjölni á fimmtudaginn.
BYRJAR VEL Marel Bald-
vinsson er þegar búinn að finna
skotskóna sína á Hlíðarenda.
Hann skoraði eitt mark og
lagði upp annað í 4-1
sigri á Fjölni.
FÓTBOLTI Hólmar Örn Rúnars-
son, fyrirliði Keflavíkur, verð-
ur frá keppni næstu 6-8 vikurn-
ar þar sem hann ristarbrotnaði
í leik sinna manna gegn Fylki í
fyrrakvöld. Um álagsmeiðsli er
að ræða en atvikið gerðist undir
lok fyrri hálfleiks.
„Ég steig niður og var að snúa
mér þegar ég heyrði smell,“ sagði
Hólmar Örn í samtali við Frétta-
blaðið. „Þetta er mikið áfall fyrir
mig enda missi ég þar með af
meirihluta tímabilsins. Ég hef
verið heppinn í gegnum tíðina og
aldrei verið svo lengi frá vegna
meiðsla áður.“
Hólmar Örn skoraði sigurmark
sinna manna í 1-0 sigri á Íslands-
meisturum FH í fyrstu umferð-
inni. Keflvíkingar söknuðu hans
greinilega eftir að þeir misstu
hann af velli í hálfleik í Árbæn-
um og skoruðu heimamenn tvö
mörk í síðari hálfleik.
Hann gegndi mikilvægu hlut-
verki í liði Keflavíkur á síðustu
leiktíð og kom alls við sögu í 20
deildarleikjum á tímabilum. Hann
skoraði í þeim þrjú mörk.
Hólmar tók við fyrirliðaband-
inu af Guðmundi Steinarssyni
fyrir þetta tímabil.
Keflvíkingar spila átta deild-
arleiki næstu átta vikurnar en sá
fyrsti af þeim verður á móti Vals-
mönnum á heimavelli á mánu-
dagskvöldið. - esá
Keflvíkingar verða án fyrirliðans síns sem ristarbrotnaði í fyrradag:
Hólmar Örn frá í tvo mánuði
Það er óhætt að segja að nýliðar Stjörnunnar
hafi hafið þetta Íslandsmót með látum. Þeir
unnu 6-0 stórsigur á lánlausum Þrótturum en
nýliðar hafa aldrei byrjað svo vel í fyrstu tveimur
leikjum sínum í deildinni, í það minnsta hvað
markatölu varðar. Stjarnan hefur skorað níu
mörk í þessum tveimur leikjum og aðeins feng-
ið á sig eitt. Stjörnumenn eiga tvo fulltrúa í liði
umferðarinnar, rétt eins og Fylkir og Valur.
Fylkir er eina liðið sem á enn eftir að fá á
sig mark en Árbæingar hafa lagt sterka
andstæðinga að velli í fyrstu tveim-
ur leikjunum – Val og Keflavík.
Báðir þessir sigrar hafa þó
komið á heimavelli og því
áhugavert að sjá hvort
að góða gengið haldi
áfram á útivelli.
Alls eiga átta
lið fulltrúa í liði umferðarinnar að þessu sinni
og tveir leikmenn eru nú valdir í liðið í annað
skiptið í röð. Það eru þeir Jónas Guðni Sævars-
son, KR og Keflvíkingurinn Alen Sutej.
Auk Stjörnunnar og Fylkis eru KR og Breiða-
blik einnig með fullt hús stiga.
PEPSI-DEILD KARLA: ÚRVALSLIÐ 2. UMFERÐAR
Sjóðandi heitir Stjörnumenn
Í LEIKNUM AFDRIFARÍKA Hólmar Örn
Rúnarsson sést hér í baráttu við Fylkis-
manna í leiknum á fimmtudagskvöldið.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI