Fréttablaðið - 16.05.2009, Blaðsíða 8
8 16. maí 2009 LAUGARDAGUR
1. Hvað heitir strákafélagið
íslenska sem skipað er sam-
kynhneigðum knattspyrnu- og
sundmönnum?
2. Hversu mörg mörk skoruðu
Stjörnustrákarnir gegn lánlaus-
um Þrótturum í Pepsi-deildinni
í fyrrakvöld?
3. Hver er fangelsismálastjóri?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 70
VERÐMUNUR HJÁ TANNLÆKNUM
Skoðun nýs sjúklings
LÆGSTA VERÐ
2.500 kr. Hafsteinn Ingvarsson
2.625 kr. Ásta Björt Thoroddsen
2.660 kr. Haukur Þorsteinsson
HÆSTA VERÐ
6.000 kr. Jónas Már Björgvinsson
5.500 kr. Kristín Gígja Einarsdóttir
5.125 kr. Klemens S. Anoniussen
Verð í opinberri gjaldskrá 2.660 kr.
Viðgerð 1 flötur
LÆGSTA VERÐ
2000 kr. Jónas Geirsson*
5.390 kr. Haukur Þorsteinsson
5.500 kr. Hrafn G. Johnsen
HÆSTA VERÐ
13.450 kr. Vilhelm Grétar Ólafsson
13.112 kr. Þorsteinn Scheving Thor-
steinsson
13.000 kr. Karl Guðmundsson**
Verð í opinberri gjaldskrá 5.390 kr.
Tannhreinsun
LÆGSTA VERÐ
1000 kr. Jónas Geirsson***
2.000 kr. Jónas B. Birgisson
2.315 kr. Hartmann Ásgrímsson
HÆSTA VERÐ
5.340 kr. Haukur Þorsteinsson
5.000 kr. Þórir Gíslason.
5.250 kr. Ásta Björt Thoroddsen****
Verð í opinberri gjadlskrá 1.780 kr.
* Þessi tannlæknir gefur upp verðið 2.000 til 11.000 kr.
** Þessi tannlæknir gefur upp verðið 6.000 til 13.000 kr.
*** Gefur upp verð á bilinu 1.000 kr. til 3.800 kr.
**** Gefur upp tvær tímaeiningar.
FR IGG NEWPORT H2 ANDVAR I
Léttur fl ísfatnaður úr Polartec® Power Stretch®,
efni sem teygist á fjóra vegu og heldur vægum
hita á líkamanum.
Flottir barnasandalar með táavörn, frönskum
rennilás og mjög góðu gripi.
Vindheldur ullarjakki með mjúku fl ísfóðri, sérmótuðu
sniði á olnbogum og hettu sem hægt er að smella af.
bolur og buxur Keen barnasandalar vindheldur ullarjakki
Verð bolur: 7.800 kr.
Verð buxur: 6.800 kr.
Verð: 6.200 kr. Verð jakki: 16.500 kr.
NEYTENDUR Margfaldur verðmunur
er á hæsta og lægsta verði í þjón-
ustu tannlækna fyrir aldurshópinn
átta til tólf ára, samkvæmt nýrri
könnun Neytendasamtakanna.
Kannað var verð á nítján verk-
þáttum tannlækna og er munur-
inn á hæsta og lægsta verði ætíð
margfaldur.
Sem dæmi þá kostar ódýrasta
röntgenmynd ekki neitt hjá einum
tannlækni á meðan sá dýrasti tekur
2.580 krónur; skorufylling kostar
2.330 hjá ódýrasta tannlækninum
en 7.310 hjá þeim dýrasta. Alls
tóku 107 tannlæknar þátt í könn-
uninni eða innan við helmingur
starfandi tannlækna. Það er léleg
þátttaka að mati Jóhannesar Gunn-
arssonar, formanns Neytendasam-
takanna. „Mér finnst mjög gagn-
rýnivert að þeir vilji ekki allir
gefa okkur upp sitt verð. Ég vonast
til að þegar við endurtökum könn-
un þá sjái fleiri sóma sinn í því að
svara,“ segir Jóhannes.
Foreldrar barna fá 75 prósent
endurgreitt af tannlæknakostnaði
en verð miðast þá við gjaldskrá
heilbrigðisráðherra sem gefin var
út árið 2004. Vegna misræmis milli
gjaldskrárinnar og verðs hjá tann-
læknum er endurgreiðslan þó oft
mun lægra hlutfall. Til dæmis eru
tæpar 2.000 krónur endurgreidd-
ar fyrir skoðun á nýjum sjúklingi,
sem eru 75 prósent af 2.660. Eins
og sjá má á meðfylgjandi töflu er
hæsta verð slíkrar skoðunar 6.000
krónur og myndi kostnaður for-
eldra í því tilviki vera um 4.000
krónur í stað tæplega 700 króna.
Töflu með verði þeirra tann-
lækna sem tóku þátt er að finna á
heimasíðu Neytendasamtakanna
www.ns.is. - sbt
Margfaldur
verðmunur
Verðmunur á tannviðgerðum barna hleypur á þús-
undum króna samkvæmt nýrri verðkönnun. Innan
við helmingur tannlækna tók þátt í henni.
BANDARÍKIN, AP Ákvörðun Bar-
acks Obama Bandaríkjaforseta
um að endurvekja sérstaka dóm-
stóla Bandaríkjahers á Kúbu hefur
fengið misjafnar viðtökur.
Þessir sérdómstólar, sem ríkis-
stjórn George W. Bush kom á lagg-
irnar, hafa það eitt hlutverk að
dæma í málum fanganna í Guant-
anamo, sem grunaðir eru aðild að
hryðjuverkastarfsemi.
Obama hefur lofað því að fanga-
búðunum verði lokað í byrjun
næsta árs. Enn er 241 fangi þar í
haldi hersins, en sérdómstólarn-
ir fá væntanlega mál 20 þeirra til
meðferðar.
Réttarstaða fanganna verður
bætt verulega þegar dómstólarn-
ir taka á ný til starfa, frá því sem
áður var. Meðal annars verður
óheimilt að nota upplýsingar sem
fengust með því að beita fangana
grimmilegri, ómannúðlegri eða
niðurlægjandi meðferð við yfir-
heyrslur.
Mannréttindasamtök, sem fögn-
uðu ákvörðun Obama um að loka
búðunum, gagnrýna hann nú fyrir
að endurverkja sérdómstólana.
„Það eru vonbrigði að Obama
ætli að endurvekja frekar en að
ljúka þessari misheppnuðu til-
raun,“ segir Jonathan Hafetz hjá
bandarísku borgararéttarhreyf-
ingunni ACLU. Hann segir ekkert
því til fyrirstöðu að hefðbundn-
ir bandarískir dómstólar fái mál
fanganna til meðferðar. - gb
Obama vekur sérdómstólana í Guantanamo til lífs á ný:
Umdeild ákvörðun Obama
FANGAR Í GUANTANAMO Mál tuttugu
fanga af nærri 250 koma væntanlega til
kasta hinna endurreistu dómstóla.
NORDICPHOTOS/AFP
EVRÓPUSAMBANDIÐ, AP Samdrátt-
urinn í efnahagslífi evruríkj-
anna sextán nam 2,5 prósentum á
fyrsta fjórðungi ársins. Greini-
legt er að heimskreppan hefur
tekið verulegan toll af þessum
ríkjum.
Samdrátturinn í Þýskalandi,
sem er stærsta hagkerfi evru-
svæðisins, varð 3,8 prósent, sem
er mesti samdráttur þar í landi
síðan á áttunda áratug síðustu
aldar. Stjórnvöld ríkjanna sextán
vonast til þess að miklar vaxta-
lækkanir og aukin ríkisútgjöld
komi efnahagslífinu af stað, svo
annar eins samdráttur sjáist ekki
aftur. - gb
Evruríkin sextán:
Verulegur sam-
dráttur á árinu
VEISTU SVARIÐ?