Fréttablaðið - 16.05.2009, Blaðsíða 80

Fréttablaðið - 16.05.2009, Blaðsíða 80
56 16. maí 2009 LAUGARDAGUR folk@frettabladid.is > KOMINN MEÐ BÍLPRÓF Ástralski leikarinn Hugh Jackman getur loksins þeyst um götur Banda- ríkjanna á eigin bíl eftir að hann tók bíl- próf á dögunum. Jackman fann lausa stund í dagskrá sinni og tók prófið í New York. Samkvæmt fréttum fjöl- miðla vestanhafs stóðst hann það með glans. Söngleikjamógúllinn Andrew Lloyd Webber hefur lofað Susan Boyle, sem uppgötvuð var í Britain‘s Got Talent, hlutverki í söngleik. Lloyd Webber hitti Boyle nýlega í upptöku- veri í London og segist ætla að finna hlutverk fyrir hana. „Hún er frábær og mikill aðdáandi sýninganna minna. Ef hana langar til að vera í einni þeirra, þá gæti það vel gerst. Það yrði að vera rétta hlutverkið. Hún á bjarta framtíð,“ segir hann. Susan Boyle er 48 ára og býr í Skot- landi. Frami hennar hefur verið með miklum ólíkindum síðan hún kom fram í Britain‘s Got Talent. Þar heillaði hún dómarana, Simon Cowell með talinn, þegar hún söng I Dreamed a Dream úr söngleiknum Vesalingunum. Susan Boyle boðið hlutverk í söngleik SUSAN BOYLE Hitti Andrew Lloyd Webber og hann bauð henni hlutverk í söngleik. Bandaríska leikkonan Jenni- fer Aniston hefur ekki átt sjö dagana sæla hvað ástar- málin varðar. Fyrst var hún með Brad Pitt og taldi sig vera komna til himna- ríkis. Sú dvöl breyttist hins vegar fljótt í mar- tröð þegar Pitt gerði sér dælt við Angelinu Jolie og á nú með henni heilt hand- boltalið af krökk- um. Síðan kom til skjalanna Vince Vaughn en hann þótti of mikil karl- remba og hafði lítinn áhuga á rómantíkinni. Loks var það John Mayer en Aniston hafnaði honum í það minnsta tvisvar. Nú hefur komið í ljós að þetta á sér allt skýringar því Aniston þykir nokkuð harð- brjósta. Í það minnsta fannst henni lítið athugavert við að hafna fyrrverandi kærasta sínum á veitingastað. „Við vorum hætt saman og hann mætti með mömmu sína á veitingastað sem ég vann á í þeirri veiku von um að ég myndi taka hann aftur. Hann skellti sér á skeljarnar og bað mig um að giftast sér. Allur staðurinn trylltist af fögn- uði en ég bað hann vinsam- legast um að standa á fætur og hypja sig út.“ Aniston er harðbrjósta EKKI RÓMANTÍSKT Jennifer Aniston sagði nei við mann á veitingastað þegar hann bað hana um að giftast sér. NORDICPHOTOS/GETTY Fyrirsætan Jordan hefur sent eigin- manninum Peter Andre fjölda smá- skilaboða þar sem hún grátbiður hann um að taka við sér aftur. Bresk dagblöð greina frá því að Jordan hafi lofað bóndanum villtum ból- förum ef hann hleypi henni aftur í hjónasæng þeirra. Jordan, sem heit- ir réttu nafni Katie Price, og Andre ákváðu að skilja í byrjun vikunnar. Fram að skilnaðinum hafði Jordan sett Peter í fjögurra mánaða kyn- lífsbann. „Katie hefur sent Pete ótal skila- boð en hann hefur ekki svarað henni. Hún vill fá hann aftur en hann vill ekki sjá hana. Hún er sannfærð um að kynlífsbannið var mistök og segir að allt muni breytast,“ sagði vinur hjónanna við The Sun. Pete dvelur um þessar mundir á heimili hjónanna á Kýpur. Hann hefur rætt við börn sín í síma en hefur neitað því að ræða við Jor- dan. Kornið sem fyllti mælinn hjá Pete, en það var hann sem fór fram á skilnað, var þegar myndir birt- ust í fjölmiðlum af Jordan að faðma annan mann. Hann hefur lengi verið afbrýðisamur og segja vinir hjón- anna að Jordan hafi notið þess að kvelja hann af þeim sökum. Jordan sér eftir kynlífsbanninu N O R D O C PH O TO S/ G ET TY MEÐAN ALLT LÉK Í LYNDI Jordan og Peter Andre ætla að skilja. Fyrirsætan reynir hvað hún getur til að fá Peter til að skipta um skoðun. Framhaldsskóladeild nemar fæddir 1993: Mánudaginn 18. maí, kl 18:00 – 20:00 Eldri nemendur mega mæta í prufutíma 17. ágúst – 15. september 2009 Ath. Ekki eru teknir inn nýjir nemendur eftir 15. september Skólaárið 2009 – 2010 Inntökupróf Listdansskóli Íslands hefur viðurkenningu menntamálaráðuneytisins sem einkaskóli á framhaldsskólastigi. Nám við Listdansskóla Íslands er samkvæmt aðalnámskrá á grunn- og framhaldsstigi Skólinn er rekinn af Dansmennt ehf, sem er í eigu Listaháskóla Íslands Staður: Engjateigur 1 105 Reykjavík Nánari upplýsingar: www.listdans.is 588 91 88
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.