Fréttablaðið - 16.05.2009, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 16.05.2009, Blaðsíða 78
utlit@frettabladid.is DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA Anna Margrét Björnsson OKKUR LANGAR Í … > PENELOPE CRUZ Í CHANEL Spænska fegurðardísin Penelope Cruz er á kvikmyndahátíðinni í Cannes að kynna nýjustu mynd sína, Broken Embraces úr smiðju Pedro Almodovar. Cruz klæðist einungis fötum frá Chanel í myndinni og má sjá bæði „vintage“ og nýjar línur frá tískuhúsinu. Almodovar er sjálfur mikill aðdáandi merkisins. Geggjaða rauða hælaskó frá Kron by Kronkron. Dásamlega fallegan bláan sundbol frá merkinu Myla. Fæst hjá Systrum, Laugavegi. Nýja ilminn frá Puma sem er frísklegur og sportlegur, fullkominn fyrir sumarið. Hönnun hins unga Stefano Pilati hefur verið umdeild. Það voru til dæmis ekki allir sáttir við víðu kvennabúrs-buxnasniðin, sem hann inn- leiddi síðasta vetur, né kubbslega víða jakka sem þóttu ekki klæðilegir fyrir konur. En ljóst er að Pilati fer ekki troðnar slóðir og lína hans fyrir næsta vetur vakti mikla athygli. Fötin voru aðallega svört og mjög einföld en þó lék hann sér með form sem minntu á japanska hönnun ásamt skóm sem minntu helst á einhvers konar galdra- gripi. Nóg var líka um klassíkina sem konur hafa ætíð dáð hjá þessu fræga tískuhúsi: alls konar fallegir svartir kjólar með mitti, smók- ingjakkar við buxur og klassískar buxnadrag- tir. Notkun hans á leðri var líka mjög töff, en fyrirsætur voru í jökkum, kápum og jafnvel korselettum úr svörtu leðri. - amb STEFANO PILATI MEÐ FRAMÚRSTEFNULEGA HÖNNUN FYRIR YVES SAINT LAURENT Japönsk form og einföld snið SVART Stefano Pilati notar svartan lit óspart, sem og leður. SIXTÍS Hár- greiðsla sem minnir bæði á gamaldags hárgreiðslur í anda Catherine Deneuve og japanskar geishur. KLASSÍSKT Fallegur gamaldags kjóll með aðsniðnu mitti. ELEGANT Svartur kjóll við klassískan jakka. SÍTT Skósíður leðurkjóll frá Yves St Laurent. SEXÍ Leður- korselett frá YSL. HVÍTT Dömu- legur kjóll með svörtu belti. Það er ákveðið útlit sem er akkúrat andstæðan við bronslitaðar gyðjur sem geisla af heilbrigði með fullkomnar hvítar tennur, glansandi húð og glossaðar varir. Slíkt útlit er það sem kalla mætti „trashy chic“ og tengist gjarnan rokktónlist og töffheitum. „Trashy“ útlit- ið er dálítið erfitt meðferðar og krefst vissulega ákveðinnar kúnstar. Hvað er trashy lúkk kunna sumir að spyrja, en þá á ég við þær konur sem komast upp með það að ganga um með klessta augnmálningu og úfið hár sem gefur til kynna að þær hafi ekki verið að rísa úr rekkju einsam- lar. Þó að þetta hljómi við fyrsta lestur eins og óæski- legt útlit er það fjarri lagi því margar konur hafa orðið frægar á slíku útliti. Kate Moss, þrátt fyrir að vera oft glæsileg og vel tilhöfð, sést oftast úti á götu í þröngum gallabuxum með sjúskað hár og ælæner og er samt töff. Edie Sedgwick á sjöunda áratugnum þreif aldrei af sér augnmálninguna og bætti bara meiri við. Partídýr og rokkaradætur eins og Peaches Geldof og Georgia Jagger eru auðvitað með þetta á hreinu og kunna að vera töff þegar þær hrynja út úr næturbúllum og börum. Síðastliðið haust var eins og tískuhönnuðir hefðu líka hrifist af þessu útliti því sokkabuxur með lykkjufalli voru vinsælar á tískupöllunum og augnmálning í anda „trash“-gyðjunnar ógurlegu Amy Winehouse sást í franska Vogue. Ég býst við að maður verði annaðhvort að vera á táningsaldri eða útlítandi eins og Kate Moss til að ná stílnum því annars gæti maður virkað eins og róni eða vændiskona. Ég á til dæmis hryllilega bágt með lykkjuföll og finnst eins og það standi á enninu á mér „kona til sölu“ bara vegna smá saumsprettu á næloninu. Að sama skapi er eitthvað skelfi- lega rangt við mikinn og klesstan svartan augnblýant í íslensku morgunbirtunni, málningu sem þó leit svo vel út hálftíma fyrr á Kaffibarnum. Sennilega er þetta eitthvað sem er sérlega útpælt og á að einskorðast við tískupallana. Kynlífshár og klesstur ælæner
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.