Fréttablaðið - 03.06.2009, Qupperneq 2
2 3. júní 2009 MIÐVIKUDAGUR
Á S B R Ú - S Í M I : 5 7 8 4 0 0 0 - W W W . K E I L I R . N E T
Umsóknarfrestur
rennur út á
föstudaginn
Allar nánari upplýsingar
á www.keilir.net.
HÁSKÓLABRÚ
Eins árs undirbúningur
fyrir háskólanám
Íslendingurinn sem var í Air
France-flugvélinni sem týnd-
ist á Atlantshafi á mánudag
hét Helge Gustafsson og var
44 ára. Hann var íslenskur
ríkis borgari, bjó lengst af í
Noregi en hafði undanfar-
in fimm ár verið búsettur í
Brasilíu.
Helge lætur eftir sig konu
og þrjú börn. Tvö búa í Noregi
en konan og þriðja barnið eru
búsett í Brasilíu. - vsp
Lést í flugslysi
Svandís, Lama-ðistu alveg við
athöfnina?
„Ekki get ég alla vega sagt að mitt
andlega ástand hafi Dala-ð.“
Dalai Lama hélt friðarathöfn í Hallgríms-
kirkju í fyrradag. Svandís Svavarsdóttir var
meðal viðstaddra.
LÖGREGLUMÁL Kona kærði kyn-
ferðisbrot til lögreglunnar á
Vestfjörðum á sunnudagsmorg-
un. Talið er að meint brot hafi
átt sér stað þá um nóttina.
Lögreglan á Vestfjörðum
verst allra fregna af málinu en
samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er um nokkra meinta
gerendur af erlendum uppruna
að ræða. Árásin mun hafa átt
sér stað inni á skemmtistað.
Rannsóknarlögreglan á Vest-
fjörðum fer með málið en vill
ekkert gefa upp um það að svo
stöddu. Hún segir málið vera í
rannsókn.
- sh
Kynferðisbrot á Ísafirði:
Nokkrir liggja
undir grun
REYKJAVÍKURBORG „Breytt vinnu-
brögð við fjármálastjórnina skiptu
öllu máli,“ segir Hanna Birna
Kristjánssdóttir borgarstjóri í
tilkynningu vegna ársreiknings
borgarinnar fyrir árið 2008.
Reykjavíkurborg tapaði 71,5
milljarði króna í fyrra, fyrst og
fremst vegna hlutdeildar í gífur-
legu gengistapi Orkuveitu Reykja-
víkur.
Hanna Birna segir að snemma
á árinu 2008 hafi ýmis teikn verið
um breytt ytri skilyrði miðað við
forsendur fjárhagsáætlunar. Fyrir
mitt ár hafi byrjað margvíslegar
aðgerðir til að draga úr útgjöld-
um.
„Mestu varðar sú ákvörðun nýs
meirihluta Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks að setja fjár-
málastjórn borgarinnar í öndvegi
og taka upp ný vinnubrögð á vett-
vangi borgarstjórnar með sam-
vinnu allra borgarfulltrúa og allra
flokka,“ segir í tilkynningu Hönnu
Birnu. Burtséð frá gengistapi,
sköttum og afskriftum var hagn-
aður Orkuveitunnar af reglulegum
rekstri 11,7 milljarðar króna.
„Miðað við ástandið í íslensku
samfélagi er staða Reykjavíkur-
borgar og Orkuveitunnar gríðar-
lega sterk,“ segir Óskar Bergsson,
formaður borgarráðs, og bendir á
Orkuveitan hafi stærstan hluta
tekna sinna í erlendri mynt og að
þrátt fyrir allt sé eiginfjárhlutfall
fyrirtækisins nú nítján prósent.
„Á sama tíma eru meira og minna
öll fyrirtæki landsins tæknilega
gjaldþrota.“ - gar
Gríðarlegt gengistap Orkuveitunnar setur strik í reikning Reykjavíkurborgar:
Hallinn hjá borginni 71,5 miljarðar
ÓSKAR OG HANNA BIRNA Segja stöðu
Reykjavíkurborgar sterka. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
STJÓRNMÁL ESB-tillögurnar tvær, ríkisstjórnarinnar
annars vegar og Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks
hins vegar, verða til sameiginlegrar meðferðar í
utanríkismálanefnd Alþingis.
Nefndarmenn ræddu verklag á fundi í gær og
ákváðu að kalla eftir umsögnum 98 aðila. Fer þar
mest fyrir margvíslegum félögum, samtökum,
stofnunum og háskólum. Umsagnarfrestur er tvær
vikur.
„Við ákváðum að vinna þessar tillögur saman,“
segir Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismála-
nefndar. „Ætlunin er að ræða málið almennt í stað
þess að hengja okkur í texta hvorrar tillögu um sig,“
segir hann.
Stíf fundahöld eru áformuð í nefndinni næstu vik-
urnar en auk þess að viðra eigin sjónarmið munu
nefndarmenn að líkindum hlýða á munnlega afstöðu
fjölmargra umsagnaraðila enda vaninn að menn
vilji fylgja umsögnum sínum eftir með þeim hætti.
Árni hefur ekki sett nefndarstörfunum nákvæm-
an tímaramma, aðeins áætlun út mánuðinn. Verði
vinnunni ekki lokið þá verði einfaldlega haldið
áfram.
Þá hefur upplýsinga um umsóknarferli Noregs og
Svíþjóðar frá 1993 verið óskað fyrir utanríkismála-
nefnd að styðjast við í störfum sínum. - bþs
Utanríkismálanefnd kallar eftir 98 umsögnum um Evrópusambandstillögurnar:
Fjallað sameiginlega um tillögurnar
FRÁ ALÞINGI Tillögur ríkisstjórnarinnar og Framsóknar- og
Sjálfstæðisflokks eru til sameiginlegrar meðferðar utanríkis-
málanefndar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ATVINNUMÁL Viðhaldsvinna hefur
tekið kipp eftir að stjórnvöld réð-
ust í átak í febrúar til að auð-
velda viðhald á húsnæði og skapa
þannig störf fyrir iðnaðarmenn.
Þetta er mat starfsmanna Sam-
taka iðnaðarins. Lítið er hins vegar
um að menn nýti sér lán til verk-
anna sem þeim standa til boða frá
Íbúðalánasjóði.
„Menn finna fyrir að vinna við
viðhald hefur tekið kipp,“ segir
Árni Jóhannsson, forstöðumaður
hjá Samtökum iðnaðarins. „Þetta
hefur hins vegar ábyggilega ekki
farið eins bratt af stað og menn
vonuðust til,“ segir hann. Vegna
þess að aðgerðirnar eru tíma-
bundnar hafi menn búist við skjót-
ari viðbrögðum.
Árni segir átakið enn fremur
mikilvægt til að sporna við svartri
atvinnustarfsemi, enda sjái fáir
ástæðu til þess lengur að gefa ekki
vinnu sem þessa upp til skatts.
Í aðgerðunum fólst bæði að
heimildir Íbúðalánasjóðs til að
veita lán til viðhaldsverkefna voru
rýmkaðar sem og að endurgreiðsla
virðisaukaskatts af viðhaldsverk-
efnum var aukin úr sextíu prósent-
um í 100 prósent.
Guðmundur Bjarnason, forstjóri
Íbúðalánasjóðs, segir aðgerðirnar
ekki hafa aukið lánveitingar sjóðs-
ins. „Nei, sannast sagna hafa verið
mjög lítil viðbrögð við þessu. Það
hefur nær ekkert reynt á þetta enn
sem komið er,“ segir hann.
„Auðvitað er sumarið að fara af
stað og fólk að átta sig á því að það
sé hægt að fá iðnaðarmenn, sem
var nú ekki auðvelt til skamms
tíma. Það er kannski von til þess
að menn taki sig á í þessu sam-
bandi á næstu vikum og mánuð-
um,“ segir hann.
„Mín tilfinning er sú að þetta
mætti ganga betur,“ segir Halldór
Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði
og formaður
Sambands
íslenskra sveitar-
félaga. Átakið
sé þó jákvætt,
feli í sér tæki-
færi og almennt
ríki ánægja það
meðal sveitar-
stjórnarmanna.
„Ég er alveg
viss um að þetta
mun skila sér
hér og þar,“ segir hann, og nefnir
sem dæmi að Ísafjarðarbær hafi
nýlega ráðist í tuttugu milljóna
króna viðhaldsverkefni sem kost-
ar fimm ársverk.
stigur@frettabladid.is
Fáir nýta sér lán til
viðhaldsverkefna
Átak ríkisstjórnarinnar til fjölgunar viðhaldsverkefna hefur skilað árangri, að
mati Samtaka iðnaðarins. Mjög lítil ásókn hefur hins vegar verið í viðhaldslán
Íbúðalánasjóðs. „Mætti ganga betur,“ segir formaður Sambands sveitarfélaga.
HÚSUM HALDIÐ VIÐ Sjaldan eða aldrei hefur verið eins ódýrt að ráðast í viðhald á
íbúðarhúsum og sumarbústöðum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
ÁRNI
JÓHANNSSON
GUÐMUNDUR
BJARNASON
HALLDÓR
HALLDÓRSSON
MENNTUN Um 850 manns hafa sótt
um sumarlán hjá LÍN, saman-
borið við 550 manns í heild í
fyrra. Frestur til að skila inn
umsókn um sumarlán rennur út
15. ágúst og gerir framkvæmda-
stjóri LÍN, Guðrún Ragnars-
dóttir, ráð fyrir að umsóknum
muni fjölga talsvert. Um tvö þús-
und manns hafa skráð sig í sumar-
nám í háskólum landsins.
Um þessar mundir er nú unnið
að því innan Lánasjóðsins að
endur skoða úthlutunarreglur
fyrir næsta vetur, auk þess að
lækka tekjutengdar afborganir
fyrir haustið 2009.
- hhs / sjá sérblaðið Skólar og námskeið sem
fylgir Fréttablaðinu í dag
Margir verða í námi í sumar:
Mikil aðsókn í
sumarlán LÍN
NÁMSMENN Mikil aðsókn er í sumar-
lán LÍN. Um tvö þúsund manns ætla
að stunda nám í háskólum landsins í
sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
EFNAHAGSMÁL Skiptastjóri þrota-
bús Fons kannar nú hvort eigenda-
skipti á flugfélaginu Iceland
Express undir lok síðasta árs hafi
verið ólögleg. Níutíu prósenta
hlutur í flugfélaginu fluttist þá
milli tveggja félaga sem bæði
voru í eigu Pálma Haraldssonar.
Þetta kom fram í fréttum Stöðvar
2 í gærkvöldi.
Í kjölfar fréttarinnar sendi Ice-
land Express frá sér tilkynningu.
Þar kemur fram að eftir banka-
hrunið hafi vantað nýtt fjármagn
í rekstur félagsins. Gripið hafi
verið til þess ráðs að auka hluta-
fé með framlagi frá eignarhalds-
félaginu Feng. Landsbankinn hafi
haft hagsmuna að gæta, skoðað
viðskiptin ofan í kjölinn og ekk-
ert séð athugavert við viðskiptin.
- kg
Eigendaskipti Iceland Express:
Skiptastjóri
kannar viðskipti
VIÐSKIPTI Svo getur farið að
erlendir kröfuhafar Straums
og íslenskir
lífeyrissjóðir
í hópi lánar-
drottna bank-
ans taki hann
yfir síðsum-
ars. Áætlan-
ir þessa efnis
verða kynnt-
ar á fundi
með kröfuhöf-
um Straums á
föstudag.
Markaðurinn hefur heimildir
fyrir því að stefnt sé að því að
fjárfestingabankastarfsemi
Straums og eignastýringarsvið
verði endurvakið að takmörkuðu
leyti. Áður en breytingarnar ná
fram að ganga mun allt hlutafé
núverandi hluthafa verða fært
niður í núll. - jab / Sjá Markaðinn
Kröfuhafar fá Straum í sumar:
Banki rís á rúst-
um Straums
BJÖRGÓLFUR THOR
SPURNING DAGSINS