Fréttablaðið - 03.06.2009, Qupperneq 29
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 2009 7skólar og námskeið ● fréttablaðið ●
Næsta haust verður í boði nýtt
kjörsvið í útivist hjá íþrótta- og
heilsubraut menntavísindasviðs
Háskóla Íslands. „Við bjóðum upp
á heilt ár í útivistarnámi,“ segir
Kári Jónsson námsbrautarstjóri.
„Námið er byggt upp sem auka-
grein sem fólk í háskóla getur
tekið með aðalgrein sinni og því
getur fólk komið hvaðan sem er úr
háskólakerfinu og tekið þetta sem
viðbót við grunnámið,“ útskýrir
hann en boðið er upp á annars
vegar hálfan vetur og hins vegar
heilan vetur.
Meðal námskeiða má nefna
vetrar íþróttir, ferðatækni og
rötun, námskeið í ferðamennsku
á vatni, námskeið í klettaklifri og
vetrarfjallamennsku auk útináms
sem er tengt skólastarfi. „Val-
möguleikarnir eru því nokkrir
og geta til dæmis þeir sem eru
að læra til kennara valið nám-
skeið sem tengjast skólastarfinu á
meðan aðrir sem koma til dæmis
úr ferðaþjónustunámi geta tekið
námskeið sem tengjast því,“ segir
Kári en íþrótta- og heilsubrautin á
Laugarvatni hefur síðustu tvö ár
verið í samstarfi við Norðurlönd-
in sem kallast Nordisk friluftslif.
„Kennari hjá okkur, hann Smári
Stefánsson, stjórnar því frá okkar
hálfu og eru alltaf nokkrir nem-
endur frá Íslandi sem dvelja í ein-
hverju Norðurlandanna yfir vetur-
inn,“ segir Kári en aðsóknin á
íþrótta- og heilsubrautina hefur
sjaldan verið meiri en nú að hans
sögn. - sg
Nýtt kjörsvið í útivist
Boðið verður upp á heilt ár í útvistar-
námi hjá íþrótta- og heilsubraut HÍ.
Háskólinn í Reykjavík býður í fyrsta skipti upp á BSc nám í sálfræði
í haust. Námið, sem er innan Kennslufræði- og lýðheilsudeildar, tekur
mið af sambærilegu námi erlendis og er lögð áhersla á að fara yfir öll
helstu svið sálfræðinnar, þar á meðal lífeðlislega sálfræði, hugræna
sálfræði, þroskasálfræði, félagssálfræði og fleira.
„Við munum leggja áherslu á kennslu í smærri hópum í samræmi
við markmið skólans um að tryggja að allir nemendur njóti eins góðrar
kennslu og mögulegt er. Þá mun kennslan að nokkru leyti fara fram á
ensku auk þess sem rík áhersla verður lögð á alþjóðlegt
samstarf. Eins munum við skoða nýja vinkla og bjóða
upp á valfög eins og heilsusálfræði, vinnusál-
fræði, gervigreind og þátttöku í rannsóknar-
starfi,“ segir Gréta Matthíasdóttir náms-
og starfsráðgjafi í HR.
Námið er 180 einingar og
innan tíðar mun meistara-
nám einnig standa til boða.
- ve
Sálfræðinám í HR í fyrsta sinn
Boðið verður upp
á valfög eins og
heilsusálfræði,
vinnusálfræði og
gervigreind.
Háskólinn á Akureyri hefur frá
upphafi boðið viðskiptafræðitengt
nám. Frá árinu 2000 hefur við-
skiptafræðin einnig verið kennd
í fjarnámi til allra landshluta og
mælst afar vel fyrir.
Fólk búsett á Akureyri getur í
fyrsta sinn í haust tekið viðskipta-
fræði til BS-gráðu í fjarnámi og er
það nám skipulagt svo hægt sé að
stunda það samhliða vinnu. Þetta
er í fyrsta skipti sem Háskólinn
á Akureyri býður upp á fjarnám
fyrir Akureyringa.
Í náminu hljóta nemendur
þjálfun til stjórnunarstafa, meðal
annars með þjálfun í faglegum
vinnubrögðum við stefnumótun,
ákvarðana töku og stjórnun.
Allir nemendur fá í grunninn
sambærilega menntun á sviði við-
skiptafræða. Þeir geta síðan valið
að leggja áherslu á fjármál, stjórn-
un eða markaðsfræði.
Einnig er boðið upp á meistara-
nám í viðskiptafræði við Háskól-
ann á Akureyri. Það er hægt að
stunda samhliða vinnu. Nánar á
unak.is.
Akureyringar fá fjarnám
í viðskiptafræði við HA
Nemendur í viðskiptafræði við Háskól-
ann á Akureyri geta lagt áherslu á
fjármál, stjórnun eða markaðsfræði.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Á S B R Ú - S Í M I : 5 7 8 4 0 0 0 - W W W . K E I L I R . N E T
ORKU- OG TÆKNISKÓLI
Keilir og Háskóli Íslands bjóða nú nám í orkutæknifræði
og mekatróník við framúrskarandi aðstæður á Keilissvæðinu
undir leiðsögn sérfræðinga í fremstu röð. Nemendur útskrifast
með B.S. gráðu frá Háskóla Íslands.
Orkutæknifræði veitir sterkan grunn í beislun og nýtingu
jarðvarmaorku og virkjun á öðrum grænum, endurnýjanlegum
orkugjöfum. Í mekatróník (e. mechatronics) fá nemendur
þverfaglega menntun í hönnun og smíði rafeinda-
og tölvustýrðs vélbúnaðar.
Vilt þú snúa hjólum atvinnulífsins?
Bættu við þig hagnýtu námi til atvinnuréttinda. Fjölbreytt úrval
tækni-, iðn- og bóknáms.
Almenn innritun í dagskóla er opin til 3. júní en tekið inn á biðlista
til 16. júní. Aðstoð við innritun fyrir grunnskólanema er 11. júní frá
kl. 12-16 en þá er síðasti innritunardagur fyrir þá sem eru að ljúka
grunnskóla vorið 2009.
www.tskoli.is
Auglýsingasími