Fréttablaðið - 03.06.2009, Page 39
MIÐVIKUDAGUR 3. júní 2009 19
Árleg Jazz- og blúshátíð Kópavogs
verður haldin í annað sinn dagana
4. til 6. júní. Hátíðin var haldin í
fyrsta sinn á síðasta ári og þótti
takast svo vel að ráðið var að
stofna félag um rekstur hennar,
Jazz- og blúsfélag Kópavogs.
Hátíðin verður sett á fimmtu-
dagskvöld kl. 20 í ungmennahús-
inu Molanum, þar koma ungir
Kópavogsblúsarar fram ásamt
reyndari tónlistarmönnum. Á
föstudeginum kl. 14 verða flutt
djass- og dægurlög fyrir eldri
borgarana í Gullsmára og svo
verða tvennir stórtónleikar í
Salnum. Þar sýnir stjórnandi
hátíðarinnar, Björn Thoroddsen,
á sér tvær hliðar: kl. 21 verð-
ur blúsarinn Björn í sviðsljós-
inu og leika þeir Jón Rafnsson og
Jóhann Hjörleifsson með honum.
Söngvaraval verður með þeim:
Egill Ólafsson, Páll Rósinkranz,
Bogomil Font og Andrea Gylfa-
dóttir.
Á laugardagskvöld kl. 21 leik-
ur djassmeistarinn Björn ásamt
Jóhanni Hjörleifssyni með tveim-
ur dönskum stórsnillingum sem
íslenskir djassgeggjarar þekkja
mætavel, þeim Ole Kock Hansen
píanista og Mads Vinding bassa-
leikara.
Ole Kock Hansen er einn virt-
asti djasspíanisti Dana auk þess
að vera einn fremsti útsetjari og
hljómsveitarstjóri danskrar djass-
sögu. Mads Vinding var kallaður
krón prins danska djassbass-
ans þegar veldi Niels-Hennings
Ørsted Pedersen var sem mest.
Það verður spennandi að heyra
þá fjórmenninga flytja dönsk og
íslensk þjóðlög í djassbúningi Ole
Kock Hansen.
Miðasala er í Salnum.
pbb@frettabladid.is
Djass og blús í Kópavogi
TÓNLIST Björn Thoroddsen gítarleikari er í fylkingarbrjósti á Jazz- og blúshátíð Kópa-
vogs sem nú er haldin í annað sinn og verður um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið