Fréttablaðið - 03.06.2009, Page 43
MIÐVIKUDAGUR 3. júní 2009 23
FÓTBOLTI Miðjumaðurinn
Gareth Barry gekk í gær í raðir
Manchester City í ensku úrvals-
deildinni eftir að City náði sam-
komulagi við Aston Villa um
kaupverð upp á tólf milljónir
punda.
Barry skrifar undir fimm ára
samning við City, sem ætlar sér
stóra hluti á leikmannamarkaðn-
um í sumar og eru kaupin á enska
landsliðsmanninum skýr skilaboð
um það.
Barry átti eitt ár eftir af samn-
ingi sínum við Aston Villa og
var tregur til að framlengja
hann eftir að félagsskipti hans
til Liverpool duttu upp fyrir
skömmu áður en síðasta keppnis-
tímabil hófst.
Hinn 28 ára gamli Barry hefur
löngum lýst yfir áhuga sínum
á því að leika í Meistaradeild-
inni. City náði hins vegar ekki að
tryggja sér þátttökurétt í Evr-
ópukeppnum á næstu leiktíð en
framtíðarplön knattspyrnustjór-
ans Mark Hughes og eigandans
Sheikh Mansour á Borgarleik-
vanginum í Manchester eru
vissulega stór í sniðum. - óþ
Barry til liðs við Man. City:
Fyrstu stórkaup
City staðreynd
BARRY Fyrstu stóru kaup Manchester
City í sumar. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Brasilíski miðjumaður-
inn Kaka kveðst vilja vera áfram
í herbúðum AC Milan en sögu-
sagnir um að hann muni brátt
yfirgefa ítalska stórliðið hafa
farið víða eftir að Carlo Ance-
lotti hætti sem knattspyrnustjóri
félagsins og fór til Chelsea.
„Ég segi þetta núna í síðasta
skipti, ég vil ekki fara frá AC
Milan,“ segir Kaka í viðtali við
Gazzetta dello Sport í gær eftir
að ítalska blaðið hafði fullyrt fyrr
um daginn að Kaka væri á leið til
Real Madrid.
Ýmsir fjölmiðlar greindu einn-
ig frá því í gær að Kaka væri lík-
legur til þess að fylgja Ancelotti
til Chelsea. - óþ
Framtíð Kaka enn í fréttum:
Vill ekki fara
frá AC Milan
KAKA Ítrekar að hann vilji vera áfram hjá
AC Milan. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES