Fréttablaðið - 30.05.2009, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 30.05.2009, Blaðsíða 2
2 30. maí 2009 LAUGARDAGUR STJÓRNMÁL Undirstofnanir Samfylkingarinnar fengu ríflega 67 milljónir í styrki árið 2006. Þetta er niðurstaða samantektar sem flokkurinn gerði á styrkjum til þeirra á því ári. Fyrirtæki tengd Jóni Ásgeiri Jóhannessyni styrktu aðildarfélögin alls um fjórtán milljónir árið 2006. Það eru fyrirtækin FL Group, Dagsbrún, Baugur og Glitnir. Það kemur til viðbótar ellefu milljónum sem fyrirtæki tengd Jóni Ásgeiri greiddu til flokksins sjálfs. Fyrirtæki tengd Björg ólfsfeðgum styrktu flokkinn alls um sextán milljónir á árinu. Styrkir einstaklinga til aðildar- félaganna námu alls tæpum fimm milljónum. Átján lögaðilar veittu meira en hálfa milljón, og eru þeir allir nafngreindir í tilkynningu til fjölmiðla. Styrkir þessara átján aðila námu alls rúmum 37 milljónum. Hæstu styrkirnir, fimm milljónir hver, komu frá FL Group, Dagsbrún og Kaupþingi. Landsbankinn styrkti flokkinn um fjórar milljónir og Actavis um tvær og hálfa milljón. Í tilkynningunni segir að Samfylkingin fagni opinni umræðu um fjármál stjórnmálaflokka og skori á aðra stjórnmálaflokka að birta sambærilegar upplýsingar úr sínu bókhaldi. - shwww.ob.is26 stöðvar um land allt. -5kr. VIÐ FYRST U NOTKUN Á ÓB-LYKL INUM OG SÍÐAN ALLTAF -2K R. TB W A \R EY K JA VÍ K \ SÍ A Sæktu um ÓB-lykilinn á www.ob.is eða í síma 515 1141. ÓB-lykilhafar geta safnað Vildarpunktum Icelandair. BÚRMA, AP Aung San Suu Kyi, leið- togi stjórnarandstöðunnar í Búrma (Myanmar), er í brýnni þörf fyrir læknisaðstoð í fangelsinu þar sem hún dvelur á meðan réttað er yfir henni. Þetta fullyrða samflokks- menn hennar. Í yfirlýsingu frá flokknum kemur fram að fulltrúar hans hafa miklar áhyggjur af ástandi Suu Kyi, sem geti til að mynda ekki sofið vegna tíðra fótkrampa. Suu Kyi, sem hlaut friðarverð- laun Nóbels árið 1991, hefur setið í stofufangelsi meira og minna frá árinu 1990. Hún er nú 63 ára. Fang- elsisdómur yfir henni átti að renna út í mánuðinum, en einkennileg heimsókn bandarísks manns á staðinn þar sem henni hefur verið haldið fanginni hefur sett fyrir- hugað frelsi hennar í uppnám. Bandaríkjamaðurinn, John Yettaw að nafni, synti að dvalar- stað hennar og hélt þar til í tvo daga. Suu Kyi hefur í kjölfarið verið ákærð fyrir að brjóta skil- mála stofufangelsisins, enda hafi hún alls ekki mátt hýsa manninn. Verði hún sakfelld á hún yfir höfði sér fimm ára fangelsi. Lögmenn hennar áfellast Banda- ríkjamanninn fyrir hvernig komið er, og hafa kallað hann fífl. Þeir segjast þó bjartsýnir á að Suu Kyi verði sleppt. - sh Pólitískir samherjar friðarverðlaunahafans hafa áhyggjur af heilsufari hans: Aung San Suu Kyi sögð sjúk STJÓRNSÝSLA Samráðherrar Ögmundar Jónassonar ætla ekki að fylgja fordæmi hans og afsala sér ráðherralaunum. Þegar Ögmundur tók við ráð- herradómi í febrúar ákvað hann að þiggja einungis þingfararkaup, í það minnsta út árið. Það nemur 520 þúsund krónum, en sem ráð- herra á hann rétt á 855 þúsund króna mánaðarlaunum. Ögmund- ur útskýrði ákvörðunina á sínum tíma með vísan til slæms efna- hagsástands. Fréttablaðið sendi fyrirspurn á alla samráðherra Ögmundar, utan Gylfa Magnússonar og Rögnu Árnadóttur, þar sem þau þiggja ekki þingfararkaup. Svör bárust ekki frá Kristjáni L. Möller. Ráðherrarnir sendu flestir hverjir staðlað svar þar sem minnt var á þær breytingar sem orðið hefðu á kjörum ráðherra undanfar- ið. Var þar fyrst talinn til úrskurð- ur kjararáðs frá 27. desember 2008 um að lækka laun forsætisráðherra um fimmtán prósent og annarra ráðherra um fjórtán prósent. Við það hefðu laun ráðherra lækkað um allt að 163.209 krónur. Einnig var bent á samþykkt Alþingis um afnám laga um líf- eyrisréttindi forseta, ráðherra, þingmanna og hæstaréttardóm- ara. Það hefði skert launakjör ráð- herra. Þá hefðu dagpeningar allra ríkisstarfsmanna verið skertir. Jóhanna Sigurðardóttir, Árni Páll Árnason, Katrín Júlíusdóttir, og Svandís Svavarsdóttir skiluðu öll inn þessu staðlaða svari. Katrín Jakobsdóttir og Steingrímur J. Sig- fússon vísuðu einnig til sömu raka. Einn ráðherrann sagðist í trúnaði eiga erfitt með að koma orðum að því að Ögmundur væri einfaldlega betri maður en hann. Árni Páll og Katrín Júlíusdóttir tiltóku bæði að þeim þætti óeðli- legt að ráðherrar tækju ákvarð- anir um eigin starfskjör, hvort sem væri til hækkunar eða lækk- unar. Slíkar ákvarðanir ætti að taka í faglegu ferli „fjarri sjálfs- kömmtun stjórnmálamanna“ líkt og Katrín orðaði það. Össur segist munu þiggja þau laun sem kjara- ráð ákveði hverju sinni. Katrín Jakobsdóttir segir fulla ástæðu til að skoða hvort lækka eigi laun ráðherra enn frekar. Slík ákvörðun eigi að vera heildstæð og ganga jafnt yfir línuna. Þá vísuðu margir ráðherrar í það að til skoð- unar væri að lækka æðstu laun hins opinbera enn frekar. Enginn ráðherranna tjáði sig um það hvort þeir væru ósammála Ögmundi um að þetta væri rétt leið fyrir æðstu ráðamenn. kolbeinn@frettabladid.is klemens@frettabladid.is Stjórnin fylgir ekki fordæmi Ögmundar Enginn ráðherra ætlar að fylgja fordæmi heilbrigðisráðherra og þiggja aðeins þingfararkaup. Ráðherrar vísa í fyrri og komandi kjaraskerðingar. Þeir tjá sig ekki beint um ákvörðun Ögmundar en segja óeðlilegt að „sjálfskammta“ sér launin. RÍKISSTJÓRNIN Samráðherrar Ögmundar Jónassonar munu ekki feta í fótspor hans og afsala sér ráðherralaunum. Ögmundur þiggur einungis þingfararkaup, í það minnsta fram að áramótum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FYRIRSPURNIN Fréttablaðið óskar eftir upplýs- ingum um það hvort þú hyggist fara að fordæmi samráðherra þíns, Ögmundar Jónassonar, og afsala þér ráðherralaunum og láta þingfarakaupið duga. Ögmund- ur hefur sagt að helsta ástæða þessarar ákvörðunar sé slæm staða efnahagslífsins. Ef þú hyggur á hið sama, hvenær kemur það til framkvæmda? Ef ekki, hver er ástæðan fyrir því? Ertu ósammála Ögmundi um að þetta sé rétt leið að fara fyrir æðstu ráðamenn? GENF, AP Ljósmyndir af veikind- um og þjáningum af völdum reykinga ættu að prýða sígarettu- pakka, ásamt viðvörunum í texta- formi. Þetta er mat Alþjóðaheil- brigðisstofnunarinnar. Stofnunin hvetur yfirvöld í heiminum til að stuðla að aukinni fræðslu um áhrif reykinga á heilsu. Enn vanti viðvaranir af einhverju tagi á tóbakspakkning- ar í flestum ríkjum heims. Slíkar merkingar hafi hins vegar skilað áþreifanlegum árangri þar sem þær hafa verið notaðar. Stofnunin tekur sem dæmi að aðeins þriðjungur reykinga- manna í Kína viti að reykingar auki hættu á hjartasjúkdómum. - sh Alþjóðaheilbrigðisstofnunin: Vill óhugnað á sígarettupakka MÓTMÆLI Landar Suu Kyi, sem búsettir eru í Japan, mótmæltu því að nóbels- verðlaunahafinn væri hafður í stofu fang- elsi. NORDICPHOTOS/AFP LÖGREGLUMÁL Þriðji maðurinn sem handtekinn var í fyrradag vegna ránsins á Barðaströnd á Seltjarn- arnesi var látinn laus síðdegis í gær. Ekki var farið fram á gæslu- varðhald yfir honum. Maðurinn er fæddur árið 1987 og beið í bíl fyrir utan ránsstaðinn á meðan tveir menn athöfnuðu sig inni. Ræningjarnir tveir, báðir fæddir árið 1989, voru á miðviku- dag úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 3. júní. Þeir réðust á húsráð- andann, úrsmið á áttræðisaldri, slógu hann og bundu fastan með límbandi. Síðan stálu þeir sextíu armbandsúrum og tugum gull- keðja. Þýfið er allt fundið. - sh Ránið á Seltjarnarnesi: Þriðji maðurinn leystur úr haldi SÖFNUN Um helgina gefst fólki kostur á að styrkja sérstakt átak Fjölskylduhjálpar Íslands með því að kaupa sérsteypt málm- barmmerki í fjölda verslana um land- ið. Ætlunin er að safna fé í sjóð sem ætlað er að standa straum af fyrirhuguð- um auknum kostnaði skjólstæð- inga Fjölskylduhjálparinnar við matarkaup. Barmmerkið er í laginu eins og Ísland og á það er letrað „Nýtt Ísland“. Merkið kostar 500 krón- ur og er fáanlegt í í Aðalskoðun, Blómavali, Bónus, Byko, Euro- pris, Fjarðarkaupum, Hagkaup- um, Húsasmiðjunni, Kaffitári, Kaskó, N1, Nettó, Samkaupum, Select, Skeljungi og Tíu ellefu. - sh Átak Fjölskylduhjálparinnar: Selja merki til að kaupa mat Átján þúsund atvinnulausir Tæplega 18 þúsund manns voru skráðir atvinnulausir á Íslandi síðasta virkan dag maímánaðar, samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. VINNUMARKAÐUR HÆSTU STYRKIRNIR Þessi félög styrktu aðildarfélög Samfylkingarinnar mest árið 2006: ■ FL Group 5 milljónir ■ Dagsbrún 5 milljónir ■ Kaupþing 5 milljónir ■ Landsbankinn 4 milljónir ■ Actavis 2,5 milljónir ■ Baugur 2 milljónir ■ Glitnir 2 milljónir ■ Atlantsolía 2 milljónir ■ Eykt 1,5 milljónir Samfylkingin opinberar styrki til aðildarfélaga sinna árið 2006: Samfylkingin fékk 67 milljónir 2006 Sigríður, þurfið þið ekki bara að fara með kettina til Ríkis- kattstjóra? „Jújú, auðvitað ættum við að gera það.“ Aldrei hafa verið fleiri munaðarlausir kettlingar í Kattholti og svo virðist sem efnahagsástandið bitni einna fyrst á ferfætlingunum. Sigíður Heiðberg er formaður Kattholts. LÖGREGLUMÁL Héraðsdómur hefur framlengt gæsluvarðhald yfir fjórum mönnum sem handteknir voru vegna Papeyjarmálsins svo- kallaða, þar sem ríflega hundrað kíló af fíkniefnum voru flutt til landsins með skútu. Þrír mannanna voru úrskurð- aðir í áframhaldandi varðhald til 9. júní og einn til 5. júní. Þrír af mönnunum fjórum hafa kært úrskurðinn til Hæstaréttar. Tveir menn til viðbótar sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Varðhald yfir þeim rennur út eftir helgi. Þrír mannanna sex voru handteknir á Austfjörðum og hinir þrír um borð í skútunni. - sh Fjórir í varðhaldi fram í júní: Skútusmyglarar áfram í haldi SKEMMTUN Vorhátíð Austurbæjar- skóla verður haldin í dag og hefst klukkan hálf ellefu með skrúð- göngu frá skólanum. Gengið verður niður Barónsstíg, Lauga- veg og upp Klapparstíg og Skóla- vörðustíg, og þaðan að skólanum aftur. „Fánaberar, slagverkssveitir og kátar krakkar munu setja svip á gönguna. Hún mun ef að líkum lætur verða litskrúðug og hávær,“ segir í tilkynningu frá skólanum. Í skólanum munu síðan nemendur í 7. bekk grilla mat ofan í gesti, 8. bekkingar setja upp kaffihús og 9. bekking- ar vera með markað. - sh Vorhátíð Austurbæjarskóla: Lífleg ganga um miðbæinn SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.