Fréttablaðið - 30.05.2009, Page 6

Fréttablaðið - 30.05.2009, Page 6
6 30. maí 2009 LAUGARDAGUR Er mataræðið óreglulegt? LGG+ er fyrirbyggjandi vörn! Skyndibitafæði, sætindi, óreglulegar máltíðir – allt þetta dregur úr innri styrk, veldur þróttleysi, kemur meltingunni úr lagi og stuðlar að vanlíðan. Regluleg neysla LGG+ vinnur gegn þessum áhrifum og flýtir fyrir því að jafnvægi náist á ný. Dagleg neysla þess tryggir fulla virkni. H V Í T A H Ú S IÐ / S ÍA  Tilboð SVEITARSTJÓRNARMÁL Ljóst þykir að fasteignamat mun lækka umtals- vert um mánaðamótin, þegar Fasteignaskrá Íslands gefur út nýtt mat. Lækkunin þýðir veru- legt tekjutap fyrir sveitarfélögin í landinu á næsta ári, ef álagning- arhlutfall einstakra sveitarfélaga verður ekki hækkað. Áhyggj- ur sveitarstjórnarfólks komu greinilega í ljós á nýlegum sam- ráðsfundi Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS). Fast tekjustreymi sveitarfélaga byggir á útsvari, fasteignaskött- um og framlögum úr Jöfnunar- sjóði sveitarfélaga. Tekjur þeirra af fasteignasköttum, sérstaklega á vaxtarsvæðum, hafa hækk- að jafnt og þétt á síðustu árum vegna uppgangs á fasteignamark- aði. Nú er sá markaður hruninn og er búist við að lækkun fast- eignaverðs muni nema tugum prósenta áður en um hægist. Fasteignaskattar skiluðu sveit- arfélögunum í landinu ríflega 22 milljörðum króna í tekjur á síð- asta ári og hvert prósent til lækk- unar nemur því um 220 milljón- um króna lægri tekjum. Halldór Halldórsson, formað- ur SÍS, segir ljóst að allar tekjur sveitarfélaganna séu að lækka. „Tilhneigingin hlýtur að verða sú að menn reyna að halda þess- um tekjum óbreyttum enda eini tekjustofninn sem þau geta haft áhrif á.“ Álagningarhlutfall hefur verið lækkað mikið þar sem fasteigna- verð hefur hækkað hvað mest í þenslu síðustu ára. Noti sveitarfé- lögin það svigrúm sem þau hafa til hækkunar telur Halldór að mörg sveitarfélög geti haldið óbreyttum tekjum, þótt til mikillar lækkunar fasteignamats komi. Þetta eigi þó ekki við um öll sveitarfélög. Ef Reykjavík er tekin sem dæmi þá eru tekjur af fasteigna- skatti í ár áætlaðar 2,6 milljarð- ar af íbúðarhúsnæði, tveir millj- arðar af opinberu húsnæði og 7,7 milljarðar af atvinnuhúsnæði. Ef horft er til fasteignaskatta og fasteignagjalda íbúðarhúsnæð- is þá eru tekjur borgarinnar í ár áætlaðar tæpir fjórir milljarðar miðað við núverandi skattapró- sentu. Væri hún fullnýtt væru tekjur borgarinnar tæpir 7,5 milljarðar króna. Svigrúm borg- arinnar til að halda sömu tekjum er því mikið. svavar@frettabladid.is Sveitarfélögin kvíða nýju fasteignamati Allir tekjustofnar sveitarfélaga eru að lækka. Nýtt fasteignamat um mánaða- mótin er talið boða lækkun fasteignaskatta og -gjalda. Líklegt er talið að sveitarfélögin hækki álagsprósentu til að halda tekjum sínum óbreyttum. -597 milljónir Tekjutap Reykjavíkur af fasteignasköttum og -gjöldum miðað við óbreytta álagsprósentu. Samtals 4 milljarðar -10% -20% -30% -1.200 milljónir -394 milljónir BREYTINGAR Borgin hefur tæpa fjóra milljarða í tekjur af fasteignasköttum og -gjöldum af íbúðarhúsnæði. Skýringarmyndin sýnir lækkun tekna miðað við að fasteignamat lækki um 10,20 eða 30 prósent. Fasteignamat íbúðar Fasteigna- skattur Lóðaleiga Holræsagjald Fasteigna- gjöld af íbúð Breyting Breyting m/v 30 millj. íbúð Breyting á fasteignamati -10% -15% -20% 0,214% 0,08% 0,105% 20 milljónir 18 milljónir 17 milljónir 16 milljónir 42.800 38.520 36.380 34.240 16.000 14.400 13.600 12.800 21.000 18.900 17.850 16.800 79.800 71.820 67.830 63.840 7.890 11.970 15.960 11.970 17.955 23.940 Breyting fasteignaskatta og -gjalda af íbúðarhúsnæði miðað við lækkað fasteignamat og óbreytta álagsprósentu. VIÐSKIPTI Fjármálaeftirlitið hefur sektað Glitni banka um fjór- ar milljónir króna vegna brota á lögum um verðbréfaviðskipti. Sektin kemur til vegna misheppn- aðra kaupa Birnu Einarsdóttur, nú bankastjóra Íslandsbanka, á hlut í Glitni fyrir tæpar 185 milljónir króna. Forsaga málsins er sú að í lok mars árið 2007 barst Kauphöll Íslands tilkynning um að Birna hefði, í gegnum hlutafélag sitt Melkorku ehf., keypt sjö milljón hluti í Glitni á genginu 26,4 eða fyrir tæpar 185 milljónir. Glitnir hugðist veita lán fyrir kaupunum gegn veði í sjálfum bréfunum. Samkvæmt tilkynningu frá Fjármálaeftir- litinu kom í ljós að Birna var ekki eigandi bréfanna þegar hún hugðist nýta atkvæða- rétt sinn á aðal- fundi bankans í febrúar 2008, tæpu ári eftir meint kaup. Vegna villu í lánasamningnum hafði lánið ekki verið veitt og því höfðu viðskiptin ekki átt sér stað. Samkvæmt niðurstöðu rannsókn- ar Fjármálaeftirlitsins frá haust- inu 2008 gengu viðskiptin aldrei í gegn af ástæðum óviðkomandi Birnu og því hafi kaupsamning- urinn fallið niður. Glitni hefði borið að senda leið- rétta tilkynningu þegar ljóst var að kaupin hefðu ekki gengið í gegn. Þá hafi bankinn ekki sent FME tilkynningu um kaupin né birt þau opinberlega, líkt og lög gera ráð fyrir um viðskipti stjórn- enda. FME kemst því að þeirri niður- stöðu að Glitnir hafi brotið gegn tveimur greinum laga um verð- bréfaviðskipti og því ber bank- anum að greiða fjórar milljónir í stjórnvaldssekt. Ekki náðist í Birnu Einarsdótt- ur í gær. - kh Fjármálaeftirlitið sektar Glitni um fjórar milljónir: Sekta Glitni vegna misheppn- aðra kaupa Birnu bankastjóra BIRNA EINARSDÓTTIR ALÞINGI Sigmundur Ernir Rúnars- son, Samfylkingu, hefur lagt fram fyrirspurn til Jóhönnu Sig- urðardóttur forsætisráðherra, þar sem farið er fram á nána útlistun á útgefnum krónubréfum. Sigmundur óskar eftir upplýs- ingum um heildarnafnvirði útgef- inna skuldabréfa í íslenskum krónum, frá upphafi til 15. maí þess árs, hverjir fimmtán stærstu útgefendur krónubréfa eru, hversu há upphæð gjaldfellur mánaðarlega héðan í frá og hvort vitað sé til þess að íslensk fyrir- tæki eigi eignarhlut í bréfunum í gegnum íslensk eða erlend eignar- haldsfélög. - ss Sigmundur Ernir Rúnarsson: Spyr Jóhönnu um krónubréf SVEITARSTJÓRNARMÁL Lögmaður Lýsis, Sigurbjörn Magnússon, krefst þess að skipulags- og bygg- ingarfulltrúi Ölfuss dragi ummæli um fyrirtækið til baka eða verði áminntur ella. Lýsi rekur fiskþurrkunarverk- smiðju í Þorlákshöfn. Bæjaryfir- völd í Ölfusi kvarta undan ólykt af starfseminni en neita fyrir- tækinu um byggingu þvottaturna sem eiga að draga úr lyktarmeng- un. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hefur veitt Lýsi átta ára starfsleyfi í Þorlákshöfn. Bæjarstjórnin lýsir fullum stuðningi við störf skipulagsfull- trúans „við úrlausn þessa vanda- sama máls,“ eins og segir í bókun vegna kröfu Lýsis. Ummælin umdeildu lét skipu- lagsfulltrúinn falla í útvarpsvið- tali 17. apríl síðastliðinn. Lýsti hann ólyktinni af fiskþurrkun- inni þannig að nánast væri ólíft í Þorlákshöfn. Sagði hann einnig að niðurstaða umhverfisráðuneytis- ins varðandi starfsleyfi væri ekki í samræmi við skipulag. Í bréfi lögmanns Lýsis til skipu- lagsfulltrúans sjálfs segir að dragi hann ekki ummælin til baka áskilji Lýsi sér rétt til að höfða skaða- bótamál á hendur honum til að fá ummælin dæmd ómerk og fá hann dæmdan til að greiða skaða- og miskabætur. „Við erum í viðræðum við bæj- arstjórann og aðra fulltrúa Ölf- uss um að ná sátt í málinu og ég vil ekki tjá mig um þessi mál á meðan,“ segir lögmaður Lýsis spurður um næstu skref. - gar Lögmaður Lýsis krefst þess að skipulagsfulltrúi Ölfuss dragi ummæli til baka: Verði áminntur fyrir að segja ólykt af Lýsi ATHAFNASVÆÐI LÝSIS Í ÞORLÁKSHÖFN Deilt hefur verið um fiskþurrkun Lýsis í Þorlákshöfn um árabil. MYND/GKS Horfðir þú á úrslitaleik Meist- aradeildarinnar í knattspyrnu? Já 41% Nei 59% SPURNING DAGSINS Í DAG: Er hækkun neysluskatta skyn- samleg í ljósi efnahagsástands- ins? Segðu skoðun þína á visir.is. KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.