Fréttablaðið - 30.05.2009, Síða 22
22 30. maí 2009 LAUGARDAGUR
1. Vestfirðir
Ýmsir firðir voru nefndir á Vestfjörðum og flestir
nefndu Vestfirði í heild, sem fallegasta stað lands-
ins. Önundarfjörður skoraði hátt ásamt Arnarfirði.
Botn Önundarfjarðar þótti þar sérstaklega fagur.
Önundarfjörður liggur milli Dýrafjarðar og Súg-
andafjarðar. Há og hvöss fjöll eru til beggja handa,
fjörðurinn er mjög sæbrattur og fegurð hans nokkuð
hrikaleg. Þónokkur ógurleg slys hafa orðið í firðinum
og má nefna sjóslys er varð árið 1812 þegar 50 menn
fórust á sjö skipum. 16 ekkjur urðu eftir í sveitinni.
2. Þingvellir
Elsti þjóðgarður Íslendinga á alltaf sinn stað í hjarta
Íslendinga. Þannig nefndu næstflestir þingstaðinn
forna sem þann fallegasta á landi hér. Sumir töldu til
að tilfinningin að vera í raun og veru kominn inn að
hálendinu eftir aðeins klukkutíma bíltúr úr bænum
væri stórkostleg. Miðað við rannsóknir undanfarinna
áratuga er ekki skrítið að staðurinn skeri sig svo
úr fyrir augum fólks því að sögn vísindamanna eru
Þingvellir náttúruundur á heimsvísu, með tilliti til
jarðsögunnar og vistkerfis vatnsins.
3. Jökulsárlón
Hið dæmafáa náttúruundur á Breiðamerkursandi,
Jökulsárlón, er í þriðja sæti yfir fallegustu staði
landsins. Lónið er ekki aðeins fagurt með sínum
fljótandi ísjökum á lóninu heldur er það ekki síður
dýralífið sem prýðir staðinn, selir og ætifuglar sem
sækja þar í æti. Staðurinn er, að sögn álitsgjafa,
einn þeirra staða sem lifa hvað sterkast í minningu,
þrátt fyrir að hafa kannski bara litið hann augum
nokkrum sinnum.
Vestfirðirnir þykja fallegastir
Íslendingar ætla að notfæra sér það sem þeir eiga í sumar – landið sitt. Samkvæmt fréttum ætla 90 prósent landsmanna að ferð-
ast innanlands. Júlía Margrét Alexandersdóttir ræddi við yfir fjörutíu manns úr ýmsum áttum og fékk það til að velja fallegasta
stað landsins, skemmtilegasta ferðastaðinn, bestu vegasjoppuna og eftirlætis tjaldstæðið.
Anna Kristjánsdóttir vélstýra
Auður Jónsdóttir rithöfundur
Árni Jóhannsson, formaður Útivistar
Áslaug Friðriksdóttir, varaborgarfull-
trúi og framkvæmdastjóri
Ágúst Ólafur Ágústsson, nemi og
fyrrverandi þingmaður
Bryndís Loftsdóttir, vörustjóri
íslenskra bóka
Bubbi Morthens tónlistarmaður
Eva María Jónsdóttir sjónvarpskona
Felix Bergsson leikari
Guðmundur Pálsson, útvarpsmaður
og Baggalútur
Guðrún Eva Mínervudóttir rithöf-
undur
Guðrún Lovísa Ólafsdóttir, fram-
kvæmdastjóri
Guðrún Hrund Sigurðardóttir, ritstjóri
Guðrún Edda Þórhannesdóttir kvik-
myndaframleiðandi
Haraldur Ólafsson veðurfræðingur
Helga Möller, rithöfundur og fyrir-
sæta
Herdís Þorgeirsdóttir prófessor
Inga María Leifsdóttir, kynningarstjóri
Íslensku óperunnar
Jóhanna Vigdís Arnardóttir leikkona
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söng-
kona
Katla Margrét Þorgeirsdóttir leikkona
Kolbrún Pálína Helgadóttir blaða-
maður
Kristín Ómarsdóttir rithöfundur
Málfríður Garðarsdóttir, bókaútgáf-
unni Sölku
Margrét Gauja Magnúsdóttir, bæjar-
fulltrúi og kennari
Oddný Sturludóttir borgarfulltrúi
Rebekka Silvía Ragnarsdóttir mynd-
listarkona
Sigfús Sigurðsson, landsliðsmaður í
handbolta
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarps-
kona
Sigvaldi Kaldalóns útvarpsmaður
Silja Bára Ómarsdóttir stjórnmála-
fræðingur
Snæfríður Ingadóttir blaðamaður
Sólveig Eiríksdóttir matarhönnuður
Sverrir Guðjónsson kontratenór
Tjörvi Bjarnason búfræðingur
Tómas Lemarquis leikari
Unnur Jökulsdóttir rithöfundur
Unnur Pálmarsdóttir líkamsræktarf-
römuður
Vala Guðnadóttir söngkona
Þóra Karítas Árnadóttir leikkona
Þórdís Gísladóttir, ritstjóri og þýðandi
ÁLITSGJAFAR FRÉTTABLAÐSINS VORU:
Fallegasti staður Íslands
1. Snæfellsnes
Að mati álitsgjafa er Snæfellsnesið óendanleg
uppspretta skemmtilegra afþreyingarmöguleika
og margt fallegt að skoða. Arnarstapi, Hellnar,
Stykkishólmur, Snæfellsjökull sjálfur, Búðir
og ótal fleiri staðir á nesinu voru nefndir og
sögðu margir að þeim dygði Snæfellsnesið sem
sumarleyfisstaður út fríið.
2. Austfirðir
Að keyra Austfirði er að sögn álitsgjafa Frétta-
blaðsins hin besta skemmtun og fylgdu firðirnir
Snæfellsnesinu fast eftir í skemmtanakosning-
unni. Firðirnir eru þónokkrir, taldir frá Glettingi
að Eystrahorni. Neskaupstaður, Neistaflug, var
eini verslunarmannahelgarstaðurinn sem komst á
blað en fleiri firðir voru einnig sérstaklega nefnd-
ir til sögunnar, svo sem Borgarfjörður eystri og
Mjóifjörður. Vogskorin strönd landsins og óvenju-
leg fjallasýnin skipti ferðalanga miklu.
3. Mývatnssveit
Skemmtilegar gönguleiðir, óvenjuleg náttúra,
fjölskrúðugt fuglalíf, Dimmuborgir og fleiri for-
vitnilegir staðir í nágrenni Mývatns höfðu mest
að segja af hverju ferðafólk Fréttablaðsins valdi
sveitina sem þriðja skemmtilegasta staðinn innan-
lands. Tjaldstæðið þar í Reynihlíð þykir mörgum
líka skemmtilegt og lenti það ofarlega á listanum
yfir bestu tjaldstæði landsins.
Hvaða áfangastað innanlands finnst þér
skemmtilegast heim að sækja?
1. Litla kaffistofan
Ber höfuð og herðar yfir bestu vegasjoppur landsins. Litli vina-
legi staðurinn á leiðinni austur fyrir fjall á greinilega stað í hjört-
um margra og sykraðar pönnukökur og kaffisopi þykir nær hvergi
betri á landinu. Nostalgísk stemning sem tilheyrir því að halda
á gamalkunnar slóðir. Aðrar vegasjoppur sem skoruðu hátt voru
Minni-Borg í Grímsnesi, Vegamót á Snæfellsnesi og sjoppan á
Blönduósi.
Bestu vegasjoppurnar
„Litla kaffistofan verður 49 ára í byrjun júní og á því stórafmæli á næsta ári,
50 ára,“ segir Stefán Þormar Guðmundsson, eigandi Litlu kaffistofunnar,
sem valin var besta vegasjoppan af álitsgjöfum Fréttablaðsins. „Við komum
vel fram við fólk og langar til að því líði vel hjá okkur. Svo erum við með
heimalagaðar veitingar – kjötsúpu, rjómapönnukökur og alls kyns bakkelsi.
Það er gaman að fólk kann að meta þetta, við sjáum mikið sama fólkið hér
aftur og aftur enda stefnum við að því að alla langi til að koma hingað á ný.“
REYNUM AÐ HLÚA AÐ FERÐALÖNGUM
Skaftafell í Öræfasveit þykir bjóða upp á besta tjaldstæðið. Bæði þótti
fólki svæðið fagurt og bjóða upp á skemmtilega afþreyingarmögu-
leika en ekki síður snyrtilegt og gott fyrir barnafólk. Önnur tjaldstæði
sem lentu ofarlega voru Básar í Þórsmörk og svo tjaldstæðið í Reyni-
hlíð í Mývatnssveit. Einn álitsgjafinn, Eva María Jónsdóttir sjónvarps-
kona, sagðist meira að segja hafa gerst svo fræg að ná að búa á því
tjaldstæði tvö sumur.
Eftirlætis tjaldstæðið
1
3
1
2
3
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VA
LLI
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VILH
ELM
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VILH
ELM
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
2