Fréttablaðið - 30.05.2009, Síða 39
LAUGARDAGUR 30. maí 2009 53
Það er800 7000 – siminn.is
Síminn óskar eftir að ráða rafmagnsverkfræðing eða tæknifræðing til starfa í hópinn
Aðgangskerfi hjá Símanum.
Umsóknarfrestur er til 8. júní.
Upplýsingar í síma 550 6470 frá kl. 14.00-16.00 alla virka
daga. Í umsókn skal koma fram lýsing á náms- og starfsferli,
sem og nöfn og símanúmer meðmælenda. Gætt verður fyllsta
trúnaðar varðandi allar umsóknir, fyrirspurnir og persónulegar
upplýsingar.
Umsóknir skulu berast á rafrænu formi í gegnum heimasíðu
Símans, www.siminn.is.
Gildi Símans eru fimm: traust, heilindi, lipurð, einfaldleiki
og eldmóður. Starfsmenn Símans hafa þessi gildi að leiðarljósi
í öllum störfum sínum.
Öflugur sérfræðingur
Helstu verkefni eru rekstur og þróun núverandi neta
Aðgangskerfa s.s. ADSL, Ljósneta (GPON) og VDSL2.
Auk þess mun viðkomandi vinna við þróun og rekstur
á endabúnaði og miðlægum stoðkerfum deildarinnar.
Háskólapróf í rafmagnsverkfræði eða sambærileg
menntun er nauðsynleg. Starfsmaðurinn þarf að
geta unnið bæði sjálfstætt og í hópi.
Tækniþjónusta Símans
Hjúkrunarfræðingur
Handlæknastöðin í Glæsibæ óskar eftir skurðhjúkrunar-
fræðingum eða hjúkrunarfræðingum með reynslu af
skurðstofustörfum í 50% til 100% stöður.
Umsóknum skal skilað fyrir 7. júní á netfangið
box@frett.is merkt: “Skurðstofa”.
Viltu vera í okkar liði?
Actavis er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu hágæðasamheitalyfja. Hjá Actavis starfa
um 10 þúsund einstaklingar í 40 löndum sem eru reiðubúnir að taka áskorunum með það að markmiði að koma
Actavis í fremstu röð samheitalyfjafyrirtækja.
Actavis leitar að metnaðarfullum einstaklingum til starfa sem eru tilbúnir að takast á við krefjandi verkefni.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Jenný Sif Steingrímsdóttir, jsteingrimsdottir@actavis.is.
Umsóknir óskast fylltar út á www.actavis.is, undir Störf í boði fyrir 7. júní nk.
Actavis hf. Reykjavíkurvegi 76-78 220 Hafnarfirði s 550 3300 f 550 3301 @ actavis@actavis.com w www.actavis.com
Starfsmaður í tæknideild
Tæknideild er hluti af starfsemi Actavis hf. og sér um viðhald og eftirlit með tækjabúnaði verksmiðju fyrirtækisins, sem staðsett er í Hafnarfirði.
Í starfinu felst:
· Fyrirbyggjandi viðhald, viðgerðir, eftirlit og breytingar á tækjabúnaði framleiðslu- og rannsóknarsviðs
· Skiptingar á milli vörutegunda og uppstart á pökkunarlínum
· Þátttaka í uppsetningu á fyrirbyggjandi viðhaldi
· Þátttaka í uppsetningu á nýjum tækjabúnaði
· Þátttaka í gildingarvinnu og kvörðunum á tækjabúnaði Actavis
Unnið er eftir skriflegum leiðbeiningum og öll viðhaldsvinna er skráð í þjónustuskýrslur/viðhaldsforrit. Um er að ræða vaktavinnu á tvískiptum
vöktum, auk bakvakta.
Tæknimaður þarf að hafa mikla reynslu af viðgerðum á vélbúnaði, stýringum og rafbúnaði. Við leitum að einstaklingi með vélfræðimenntun eða
sambærilega menntun. Nákvæmni, snyrtimennska og sjálfstæð vinnubrögð eru mikilvæg. Enskukunnátta og góð tölvuþekking nauðsynleg.