Fréttablaðið - 30.05.2009, Blaðsíða 51
fjölskyldan 7
Jógasumarbúðir fyrir níu til tólf ára börn verða haldn-ar í fyrsta skipti að Holti í Önundarfirði í sumar. Þar
munu börnin læra að styrkja, liðka
og samhæfa líkamann ásamt því
að læra öndunaræfingar, slökun og
margt fleira.
Martha Ernstsdóttir, sem rekur
jógastöð á Ísafirði, hefur umsjón
með námskeiðinu en hún hefur
fengið í lið með sér fjölda leiðbein-
enda með hina ýmsu menntun. Hún
fékk hugmyndina að sumarbúðun-
um þegar hún fór utan til Banda-
ríkjanna í fyrrasumar að læra jóga
fyrir börn. „Þar voru starfræktar
jógasumarbúðir sem sonur minn
prófaði og var afskaplega ánægð-
ur með. Ég sá strax fyrir mér að
aðstaðan í Holti myndi henta en
þar var á árum áður heimavist-
arskóli og því allt til alls. Þá er
umhverfið í Önundarfirði dásam-
legt og bæði hægt að fara í fjall-
göngur og fjöruferðir.“
Starfið í sumarbúðunum mun
byggja á hugmyndafræði jóga
með einkunnarorðin gleði, virð-
ingu, vináttu og samkennd að leið-
arljósi. „Við byrjum með jógatíma
á morgnana og endum með slök-
un á kvöldin þar sem börnin læra
öndunaræfingar, læra að róa sig og
kyrra hugann. Þá leggjum við ríka
áherslu á útivist, íþróttir og heil-
næman mat en börnin fá sjálf að
taka þátt í eldamennskunni ásamt
því að skipta með sér verkum eins
og að vaska upp og ganga frá. Sum-
arbúðirnar verða farsíma-, sjón-
varps- og tölvuleikjalausar til að
draga sem mest úr því áreiti sem
börnin verða að jafnaði fyrir en
í staðinn verður bryddað upp á
kvöldvökum og öðrum skemmti-
legheitum.“
Martha segir börn afskaplega
opin fyrir jóga og að þau séu fljót
að tileinka sér hugmyndafræðina.
„Ég held að námskeið sem þetta
geti verið gott veganesti út í lífið
en börnin læra ýmsa tækni sem
getur nýst þeim seinna meir. Við
sem erum fullorðin vitum hvað
það er gott að kúpla okkur út og
það finnst börnum líka. Ég vona að
þau komi endurnærð og yfirveguð
til baka.“
Sumarbúðirnar verða haldnar
dagana 19.-26. júní en nánari upp-
lýsingar er að finna á www.ljosy-
oga.is. - ve
Læra að liðka sig
Martha Ernstdóttir sem flestir þekkja sem fyrir afrek sín í langhlaupum rekur jógastöð
á Ísafirði um þessar mundir. Hún ætlar að kenna börnum jóga í sumar.
Stofnar sumarbúðir Martha fékk hugmyndina að jógasumarbúðunum í
Bandaríkjunum þar sem hún var við nám. MYND/HALLDÓR SVEINBJÖRNSSON
Sími: 586 8080 • Kjarna • Þverholti 2 • 207 Mosfellsbær • www.fastmos.is
10 ár
í Mosfellsbæ
Mosfellsbæ Einar Páll Kjærnested,lögg. fasteignasali
Mjög snyrtileg og góð neðri sérhæð í tvíbýlishúsi, samtals
111,9 fm. Húsið er í mjög snyrtilegu umhverfi og er gott
aðgengi. Fallegur garður og gott rými við húsið. Góður
möguleiki er að stækka íbúðina um ca. 20 fm. með
tiltölulega litlum tilkostnaði. Íbúðin er laus við kaupsamning.
Falleg eign á frábærum stað. Verð 29,9 milj
Opið hús sunnudaginn 1. júní
kl. 15-17 - Melás 7 Garðabæ
Fr
um
Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Gæða skur
úr Eyjum
Ýsa m/án roðs • Ýsuhakk • Reykt ýsa
Saltfisk-hnakkar • Þorskur • Gellur • Humar
Skötuselur • Harðfiskur • Hundaharðfiskur
www.godthaab.is
pantaðu á netinu eða
hringdu í síma 616 1299 og við sendum þér
Þú færð fi skinn okkar einnig á eftirtöldum stöðum:
Plúsmarkaðurinn Hátúni 10b Reykjavík
Pétursbúð Ránargötu 15 Reykjavík
Gónhóll Eyrarbakka
Bændamarkaðurinn Flúðum
Minni-Borg, Grímsnesi
Vöruval Vestmannaeyjum
LÚR - BETRI HVÍLD
www.lur.is
10:00 – 18:00mánfös
Opið:
lau 11:00 – 16:00
Frábært úrval sófa
og hvíldarstóla