Fréttablaðið - 30.05.2009, Page 54
30 30. maí 2009 LAUGARDAGUR
Fyrsta risamynd sumarsins ryður
sér leið inn í bíóhúsin á miðvikudag
með látum. Terminator Salvation
nefnist hún og er sú fjórða í þessum
vinsæla hasarmyndabálki. Tuttugu
og fimm ár eru liðin síðan fyrsta
Terminator-myndin kom út.
Terminator Salvation er sannköll-
uð stórmynd enda er talið að hún
hafi kostað um 200 milljónir dollara
í framleiðslu, eða um 25 milljarða
króna. Sjálfur aðaltortímandinn,
Arnold Schwarzenegger, hefur nú
vikið fyrir Leðurblökumanninum
Christian Bale í aðalhlutverkinu en
þrátt fyrir það er hasarinn meiri
en nokkru sinni fyrr, auk þess sem
útlit myndarinnar og tæknibrellur
eru framúrskarandi.
Nú eru liðin 25 ár síðan fyrsta
Terminator-myndin kom út en hún
átti stóran þátt í að koma Arnold
Schwarzenegger á kortið í Holly-
wood. Nú er hann horfinn á braut
eins og áður segir en þrátt fyrir
fjarveru hans finnur Tortímand-
inn samt alltaf leið til baka á einn
eða annan hátt.
Flókin framvinda
Þeim sem eiga erfitt með að fylgja
framvindunni í Terminator-mynd-
um er ráðlagt að rifja aðeins upp
hvað gerst hefur fram til þessa.
Söguna vantar enn tíu ár til að ná
í skottið á sjálfri sér, en þær tvær
framhaldsmyndir sem eru fyrir-
hugaðar á næstu árum munu vafa-
lítið binda enda á þetta ofbeldis-
fulla ævintýri.
Drápsvélmenni
snúa aftur
JOHN CONNOR VERÐUR TIL Sarah
Connor og Kyle Reese ástfangin í The
Terminator frá árinu 1984.
HAFIÐ ÞIÐ SÉÐ ÞENNAN DRENG?
Hið óstöðvandi T-1000-vélmenni
leitar að John Connor í Terminator 2:
Judgement Day.
I´LL BE
BACK Arnold
Schwarzenegger
í Terminator: Rise
of the Machines.
JOHN CONNOR Christian Bale leikur
uppreisnarleiðtoga framtíðarinnar,
John Connor, í Terminator Salvation.
DRÁPSVÉLMENNI Eitt af ófrýnilegu vélmennunum úr smiðju Skynet í nýju myndinni
sem fer létt með að drepa allt sem á vegi þess verður.
The Terminator (1984)
Drápsvélmennið T-800 (Schwarz-
enegger) er sent til jarðar úr
framtíðinni (árinu 2029) af gervi-
greindarfyrirtækinu Skynet til
þess að koma í veg fyrir fæðingu
Johns Connor, framtíðarleiðtoga
uppreisnarmanna. Connor sendir
þá hermanninn Kyle Reese, einn-
ig úr framtíðinni, til að vernda
Söru Connor fyrir vélmenninu.
Einkunn á Imdb.com: 8,1/10
Terminator 2:
Judgement Day (1991)
Skynet sendir hið fágaða og
óstöðvandi T-1000-vélmenni til
þess að drepa unglinginn John
Connor. Connor-framtíðarinnar
sendir þá endurforrit-
að T-800-vélmenni
(Schwarzenegger) til
að vernda Connor og
móður hans Söru.
Einkunn:
8,5/10
Terminator 3:
Rise of the Machines (2003)
John Connor og móðir hans reyna
að koma í veg fyrir að dómsdagur,
fyrir tilstuðlan Skynet, brjótist út
með mikilli kjarnorkustyrjöld.
Einkunn: 6,7/10
Terminator Salvation (2009)
Myndin gerist árið 2018 að
liðnum dómsdegi. Connor
hittir ókunnan mann að nafni
Marcus Wright (sem lítur
ekki ósvipað út og Schwarzen-
egger) og saman reyna þeir að
takast á við Skynet. Inn í sög-
una fléttast Kyle Reese, faðir
Connors, sem er, þegar þarna er
komið sögu, enn á unglingsaldri
og hefur enga hugmynd um lykil-
hlutverk sitt í komandi átökum.
Einkunn: 7,4/10
freyr@frettabladid.is
GÓÐ VIKA / SLÆM VIKA
Góð vika fyrir …
Eið Smára. Hann hampaði bikarn-
um fyrir sigur í Meistaradeild-
inni í fótbolta og varð fyrstur
íslenskra fótboltakappa til að ná
þeim stórmerka áfanga.
Kristján Guðmunds-
son. Hann hlaut hin
virtu Carnegie-verð-
laun í vikunni en þau
eru ein veglegustu
verðlaun sem veitt
eru fyrir myndlist í
heiminum. Heiðrin-
um fylgir ein milljón
sænskra króna sem eru heilar sautján
milljónir íslenskra króna á
genginu í dag.
Jónínu Benediktsdóttur. Hún
lét drauminn rætast og opnaði
Detox-stöð í Reykjanesbæ í
vikunni. Þar býðst fólki að fara
í tveggja vikna afeitrun undir
styrkri stjórn Detoxdrottningar-
innar.
Slæm vika fyrir …
Veitingamenn. Skattar á áfengi
munu hækka sem þýðir að
sopinn verður enn dýrari en
hann er núna og þó að það
muni ef til vill ekki minnka
drykkju landans gæti það
þýtt minni drykkju á bör-
unum sem er slæmt fyrir
veitingamenn enda hryllir
þá við áfengisskatti.
Ketti. Munaðarlausir kettir
hafa aldrei verið fleiri en
þrengingar í efnahagslíf-
inu hafa leikið gæludýrin
grátt. Fleiri en áður hafa
gripið til þess ráðs að
bera þau út.
Gunnar Birgisson. Enn ber-
ast fregnir af viðskiptum
fyrirtækja bæjarstjórans í
Kópavogi við bæinn. Hann ber
sig þó vel að vanda.