Fréttablaðið - 30.05.2009, Síða 56

Fréttablaðið - 30.05.2009, Síða 56
32 30. maí 2009 LAUGARDAGUR timamot@frettabladid.is MERKISATBURÐIR 1431 Jóhanna af Örk er brennd á báli í Rúðuborg í Frakk- landi. 1829 Jónas Hallgrímsson flytur prófræðu sína í Bessa- staðakirkju. 1851 Jón Sigurðsson er kosinn forseti Kaupmannahafnar- deildar Hins íslenska bók- menntafélags og gegnir þeirri stöðu til dauðadags. 1889 Hallgrímur Sveinsson er vígður biskup. 1919 Fyrsti íslenski ríkisráðs- fundurinn er haldinn í Fredensborgarhöll í Dan- mörku. Fyrsti slíkur fund- ur hérlendis er haldinn tveimur árum síðar. 1977 Kvikmynd Hrafns Gunn- laugssonar, Blóðrautt sól- arlag, er frumsýnd og veldur deilum. VOLTAIRE (FÆDDUR 21. NÓVEM- BER 1694) LÉST Á ÞESSUM DEGI ÁRIÐ 1778. „Ég óttast það mest að jörð- in kunni að vera vitlausra- spítali alheimsins.“ François-Marie Arouet, betur þekktur undir höfundarnafn- inu Voltaire, var franskur rit- höfundur, heimspekingur og mikilvægur boðberi upplýs- ingarinnar. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, bróðir og mágur, Sigurður Reynir Magnússson frá Stakkahlíð, Loðmundarfirði, Brávöllum 3, Egilsstöðum, lést fimmtudaginn 21. maí á Gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut. Kveðjustund verður í Egilsstaðakirkju 30. maí kl. 14.00. Aðstandendur. Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Guðbjargar Sigríðar Þórólfsdóttur dvalarheimilinu Höfða, áður til heimilis að Háholti 31, Akranesi. Þórólfur Ævar Sigurðsson Kristín Eyjólfsdóttir Guðjón Heimir Sigurðsson Valgerður Bragadóttir Halldór Bragi Sigurðsson Sigurlaug Brynjólfsdóttir Guðrún Agnes Sigurðardóttir Tryggvi Ásgrímsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, Guðrún Sveinsdóttir Hringbraut 102, Keflavík, lést á Hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík miðvikudaginn 27. maí. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 4. júní kl. 13.00. Heimir Hjartarson Kristbjörg Gunnbjörnsdóttir Jón B. Hjartarson Gígja Grétarsdóttir Steinar Gísli Hjartarson og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir kveðjur og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns og föður okkar, Helga H. Árnasonar verkfræðings, Laugarásvegi 63. Bryndís Þorsteinsdóttir Dagný, Árni, Guðrún, Þorsteinn og fjölskyldur. MOSAIK 40 ára afmæli Í dag kemst þessi gamlingi á bækurnar og vonandi í brækurnar, þó að það sé ólíklegt því að hann er orðinn 40 ÁRA. Af því tilefni viljum við vinnufélagarnir minna hann á (sjá mynd) að sumir hlutir lagast bara með aldrinum, sem betur fer. Jón Þór. Til haming ju með daginn. Margrét H. Blöndal hlaut í vikunni styrk úr listasjóði Guðmundu S. Kristinsdótt- ur fyrir framlag sitt á sviði myndlistar. Afhendingin fór fram við opnun sýning- anna Erró – Mannlýsingar og Möguleikar – Listasjóður Guðmundu Kristinsdóttur, en Margrét á verk á þeirri síðari ásamt hinum níu lista- konunum sem hlotið hafa viðurkenningu úr sjóðnum. Sjóðinn stofnaði Erró til minningar um frænku sína Guðmundu og er honum ætlað að efla og styrkja list- sköpun kvenna. Er þetta í tíunda sinn sem styrkur er veittur úr sjóðnum en fram- lagið rennur til listakonu sem þykir skara fram úr. Þær konur sem áður hafa hlotið viðurkenningu úr sjóðnum eru Ólöf Nordal, Finna Birna Steinsson, Katr- ín Sigurðardóttir, Gabríela Friðriksdóttir, Sara Björns- dóttir, Þóra Þórisdóttir, Guðrún Vera Hjartardóttir, Hekla Dögg Jónsdóttir og Hulda Stefánsdóttir. Veitt úr sjóði Guðmundu LISTAKONA Margrét H. Blöndal er tíunda konan sem hlýtur styrk úr listasjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur. Jóhanna af Örk, eða Mærin frá Orléans, sem er þjóð- þekkt hetja í Frakklandi og kaþólskur dýrlingur lést á þessum degi árið 1431. Jóhanna var frönsk almúgastúlka fædd í austurhluta Frakklands 1412. Ung sagðist hún sjá sýnir sem voru frá guði komnar. Hann skipaði henni að ná Frakklandi undan yfirráðum Englendingum í Hundrað ára stríð- inu. Hinn ókrýndi Karl 7. sendi hana til Orléans, sem Englendingar höfðu á valdi sínu. Hún fór fyrir franska herliðinu og varð fræg fyrir að hrekja Englendingana á brott. Á aðeins níu dögum náði hún að vinna fleiri sigra og leiddi það til þess að Karl var krýndur í Reims. Segja má að sigrar hennar og hersins franska hafi gefið frönsku þjóðinni aukið sjálfstraust. Englendingar náðu hins vegar að handsama Jóhönnu nærri Compiègne. Þar dæmdi enski landsstjórinn hana fyrir villitrú og lét svo brenna hana á báli. Kallixtus 3. páfi veitti henni uppreisn æru 24 árum síðar. Benedikt 15. páfi hinn 16. tók hana í dýrlingatöli í maí 1920. ÞETTA GERÐIST: 30. MAÍ ÁRIÐ 1431 Jóhanna af Örk lætur lífið Fyrsti hluti Eldfjallasafns verður opn- aður í Stykkishólmi á hvítasunnudag. Í honum eru listaverk og munir tengdir eldgosum og áhrifum þeirra. Maðurinn sem leggur safninu til verkin er Harald- ur Sigurðsson. Hann hefur safnað að sér efninu á undanförnum fjörutíu árum á ferðum sínum og störfum um heiminn. Haraldur hefur starfað sem prófessor í eldfjalla- og haffræði í Bandaríkjunum undanfarna áratugi. Nú er hann fluttur til landsins í Stykkishólm þar sem hann er fæddur og uppalinn. „Áhugavert er að athuga það og hug- leiða hvernig listamenn bregðast við eldgosum með ólíkum hætti í mann- kynssögunni,“ bendir Haraldur á og segir kjörið fyrir þá sem áhuga hafa á list og eldfjöllum að skoða á sýning- unni fjölbreytt verk frá ólíkum stöðum og tímum. Á safninu er að finna málverk, málm- stungur og svartlist sem sýna ýmiss konar eldvirkni frá ýmsum heimshorn- um. „Þar verður einnig hægt að skoða frumstæða alþýðulist frá Indónesíu, Mexíkó og Mið-Ameríku svo eitthvað sé nefnt.“ Munirnir eru sem fyrr segir allir frá stöðum sem Haraldur hefur heimsótt. „Stórt verk eftir Andy Warhol frá árinu 1985 af eldgosi verður á sýn- ingunni,“ segir hann og nefnir að lista- maðurinn hafi alltaf verið í miklu uppá- haldi hjá sér. Verkið eignaðist Haraldur fyrir allnokkru. Vonir standa til að þetta framlag Har- alds marki upphafið að stærra safni sem eigi eftir að rísa í Stykkishólmi í náinni framtíð. Um tildrögin að stofnun þess segir hann: „Ég fór fyrst að reifa hugmyndina að safninu árið 2005. Það var síðan Stykkishólmsbær sem tók af skarið og hóf samstarfið við mig.“ Bær- inn leggur til húsnæði safnsins í Aðal- stræti 6 sem áður hýsti samkomuhús bæjarins. „Það hefur verið gert upp og rúmar safnið ágætlega eins og það er í dag,“ segir hann. Í sumar verður boðið upp á fræðslu- ferðir í safninu á mánudögum og þriðju- dögum. „Farin verður hringferð um Snæfellsnesið og reynt að skoða það sem hægt er á einum degi,“ bendir Haraldur á og bætir við að oft sé sagt um Snæ- fellsnesið að það sé eins konar vasa- bókaútgáfa af jarðfræði Íslands. Áhugasamir geta því sótt námskeið og fengið leiðsögn um helstu staðina á Snæfellsnesi í sumar hjá einum helsta eldfjallafræðingi landsins. Eldfjallasafnið verður opið alla virka daga í sumar frá klukkan 11 til 17. Nán- ari upplýsingar á vefsíðunni www.eld- fjallasafn.is og með því að senda póst á safn@eldfjallasafn.is. vala@frettabladid.is FYRSTI HLUTI ELDFJALLASAFNS: VERÐUR OPNAÐ Á STYKKISHÓLMI Á HVÍTASUNNUDAG Alþjóðasafn af listaverkum M YN D /Ú R E IN K SA FN I ELDFJALLAFRÆÐINGURINN Haraldur Sigurðsson fylgir fólki um sýninguna.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.