Fréttablaðið - 30.05.2009, Side 58
34 30. maí 2009 LAUGARDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Jæja sonur,
bráðum lærir
þú að standa á
eigin fæti.
Gekk bara
svona vel?
Ertu búin að
skila götu-
heitinu sem
við stálum til
lögreglunnar?
Ég neyddist
bara til þess,
samviskubitið
var að naga
mig!
En Stanislaw, ég lofa því að
þetta verður í síðasta skipti
sem ég geri eitt-
hvað óheiðarlegt.
Bíddu nú við,
það var ekki
óheiðarlegt að
skila götuheit-
inu til laganna
varða!
Nei, en að
nota þitt
nafn, var
það!
Komdu, ég skal
fylgja þér suður.
Þú ert góður
köttur!
Jáps...
Sæll, kæri
bróðir!
sæl,
kæra
systir!
Ánægju-
legt að sjá
þig aftur
Takk,
sömuleiðis „Blíng“
„Blíng“ Tíminn líður
hægt þegar eft-
irrétturinn veltur
á því hvernig þú
hagar þér!
Haldið áfram,
ykkur miðar vel
áfram.
Algjörlega
Ég er eflaust ein af mörgum sem fengu fyrir hjartað þegar þeir sáu forsíðu-myndina á Fréttablaðinu í gær, af mun-
aðarlausum kettlingum í Kattholti. Í frétt-
inni segir Sigríður Heiðberg, formaður
Kattholts, frá því að munaðarlausir kettling-
ar hafi aldrei verið fleiri en nú og þar gætir
án efa áhrifa kreppunnar. Fólk hefur ekki
lengur efni á að fara með dýrin til dýra-
læknis til að láta taka þau úr sambandi og
það er kostnaðarsamara að hafa dýr á heim-
ilinu en áður, svo nú berast Kattholti óvenju-
margir kettlingar og fjölmargar læður
og fress eru skilin eftir á
hlaðinu. Sigríður biður
dýravini og fólk, sem
þykir vænt um málleys-
ingja, að gefa kattamat svo
þeir fái allavega að borða.
Það er þekkt fyrirbæri víða
að fólk losi sig við hvolpa og kettlinga eftir
áramót og á sumrin. Á veturna er fólk oftast
að losa sig við dýr sem voru gefin í jólagjöf,
en er einfaldast að skilja eftir þegar enginn
á heimilinu hefur gaman af þeim lengur.
Svipuð staða kemur upp á sumrin þegar fólk
er að fara í sumarfrí og á erfitt með að koma
dýrum sínum í fóstur, þá finnst sumum
einfaldasta lausnin að keyra með þau sem
lengst í burtu og henda þeim út úr bílnum.
Ég á mjög bágt með að skilja hvernig fólk
getur losað sig við gæludýrin sín með þess-
um hætti og hryllir við tilhugsuninni. Þegar
kemur að niðurskurði í heimilisútgjöldum
eru hundarnir mínir svo sannarlega ekki á
listanum yfir þá hluti sem mega missa sín.
Ég vona að þessir kettlingar fái gott heimili
og fólk fari að hugsa sinn gang og forgangs-
raða upp á nýtt áður en það skilur dýrin sín
eftir!
Gæludýrin skilin eftir
NOKKUR ORÐ
Alma
Guðmundsdóttir
Langar þig að stunda hluta af vinnu-
staðanámi þínu á Norðurlöndum?
Ferða- og dvalarstyrkur
IÐAN fræðslusetur auglýsir eftir umsóknum til vinnu-
staðanáms á Norðurlöndunum. Norræna ráðherranefndin
styrkir nemendur í öllu iðn- og starfsnámi til að stunda
hluta af vinnustaðanámi sínu á Norðurlöndunum. Úthlutað
verður úr sjóðnum í júní 2009 og október 2009. Hámarks-
dvöl er sex mánuðir og lágmarksdvöl er tveir mánuðir.
Sækja þarf um fyrir 15. júní 2009 og seinni umsóknarfrestur
er 15. september 2009.
Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar er hægt að nálgast
á heimasíðu IÐUNNAR fræðsluseturs, http://idan.is/styrkir/
eða í síma 590-6400.