Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.05.2009, Qupperneq 66

Fréttablaðið - 30.05.2009, Qupperneq 66
42 30. maí 2009 LAUGARDAGUR folk@frettabladid.is Þursaflokkurinn, Páll Óskar og Monika og Bróðir Svartúlfs, nýkrýndir sigurveg- arar Músíktilrauna, koma fram á tónlistar- hátíðinni Bræðslunni á Borgarfirði eystri. Hátíðin, sem verður haldin helgina 24. til 26. júlí, heldur upp á fimm ára afmæli sitt í sumar. Hún hefur styrkt sig í sessi sem einn af áhugaverðari viðkomustöðum Íslands yfir sumarmánuðina. Í gegnum tíðina hafa komið þar fram Emilíana Torrini, Damien Rice, Lay Low, Belle & Sebastian, Magni, Megas og Senuþjófarnir og Eivör Pálsdóttir, svo fáeinir flytjendur séu nefndir. Forsala á Bræðsluna er hafin á midi.is. Verð aðgöngumiða í for- sölu er 5.000 krónur og eru 800 aðgöngumiðar í boði. Verð miða við innganginn verður 6.000 krónur ef ekki verður uppselt í forsölu. Þursar á Bræðslu ÞURSAFLOKKURINN Þursarnir verða á meðal þeirra sem stíga á svið á tónlistarhátíðinni Bræðslunni. MYND/EYÞÓR ÁRNASON > VITNAR GEGN BROWN Söngkonan Rihanna mun hugsanlega bera vitni gegn fyrrverandi kærasta sínum, Chris Brown, þegar réttað verður yfir honum á næstunni. Hann er ákærður fyrir að hafa ráðist á hana á grimmilegan hátt. „Hún er alveg til í að bera vitni verði hún beðin um það,“ sagði lögfræðing- ur hennar. Tónlistarmaðurinn Eberg burðast með klósett upp á fjall í sínu nýjasta myndbandi við lagið The Right Thing To Do. „Það var mjög heimskulegt að labba upp á fjall með þetta. Þetta var djöfull erfitt,“ segir Eberg, sem segir árang- urinn þó erfiðisins virði. „En það var heimskulegt að fara ekki á fjall sem hægt er að keyra upp á.“ Fjallið sem um ræðir er Lambafell í Þrengslum. „Þetta er raunasaga drengs sem er að leita að fullkomnum stað til að losa um. Hann er búinn að safna í marga daga,“ segir Eberg um myndbandið og kímir. „Þetta er ferðamaður sem ferð- ast með klósett til Íslands. Hann fer svona túristarúnt í gegnum Leifsstöð, í rútuna og á Hótel Sögu. Hann er allt- af með þetta asnalega klósett með sér. Svo vaknar hann daginn eftir uppi á fjalli og þá er hann búinn að finna staðinn sinn.“ Það var Árni Þór Jónsson, eða Árni Zúri, sem tók upp myndbandið, sem kemur út á næstu vikum. Hann hefur á ferli sínum unnið fyrir flytjendur á borð við Damien Rice, Bang Gang, Ampop og Singapore Sling. The Right Thing To Do er tekið af nýjustu plötu Ebergs, Antidote, sem kom út á dögunum. Fyrsta upplag hennar, sem hljóðaði upp á eitt þúsund eintök, er þegar uppselt hér á landi og er annað væntanlegt. Viðræður eru jafnframt hafnar við franskt fyrirtæki um að dreifa plötunni þar í landi. - fb Heldur á klósetti upp á fjall UPPI Á FJALLI Eberg burðast með klósett upp á fjallstind í sínu nýjasta myndbandi. Myndlistarmaðurinn Laurie Grundt er elsti íbúi frí- ríkisins Kristjaníu, hefur búið þar í 36 ár og segir þá samfélagstilraun hafa gengið upp. Myndlistarmaðurinn Laurie Grundt er norskur, fæddist í Berg- en árið 1923. Þótt hugurinn sé enn kvikur segir hann, í samtali við blaðamann Fréttablaðsins, líkam- ann vera að gefa sig. „Ég er hrædd- ur um að ég sé að deyja. Og ætla að flytja til Bergen áður en ég fer til vítis,“ segir Laurie æðrulaus. Hann segir að sér hafi alltaf liðið vel í Bergen. En bestu ár ævinnar átti hann í fríríkinu umdeilda, Kristj- aníu, þangað sem hann flutti upp úr 1970 – einn þeirra fyrstu sem það gerðu. Laurie er merkur lista- maður, nam við listaakademíuna í Bergen og Ósló, dvaldi við nám í París og svo Flórens og hefur stundað list sína af kappi æ síðan. Hann er í heimsókn á Íslandi fyrsta sinni og segir það stórkostlegt. Hann hefur einmitt verið að vinna að verki sem byggir á sögunni um það þegar Ísland var numið. Laur- ie sér ákveðna samsvörun í því og hvernig Kristjanía varð til – það þurfti að semja allar leikreglur upp á nýtt til þess að íbúar gætu búið saman í sátt og samlyndi. Sennilega gætu Íslendingar margt af Kristjaníubúum lært því Laur- ie fullyrðir að það sé samfélags- tilraun sem er vel heppnuð. Þar sé lögð áhersla á húmanisma. Þar búa 800 manns í sátt og samlyndi. Gras- rótin fundar og ræður því hvernig málum skal háttað. Laurie útskýrir að hugtakinu eignaréttur hafi nán- ast verið úthýst í Kristjaníu. Menn greiði fyrir afnotarétt en eignar- hald sé ekkert. „Ég bý í kollektívi. Stærsta húsi Kristjaníu en þar búa 80 manns. Ég greiði leigu fyrir her- bergið mitt. Greiði mest því það er stærst. En ég á ekkert og þegar ég fer þá tek ég það ekki með mér eða Haminjusamur í Kristjaníu í 36 ár ELSTI ÍBÚI KRISTJANÍU Laurie Grundt var með þei heppnast fullkomlega. Það er ekki síst fyrir atbeina vinjettuhöfundarins góð- kunna og fagurkerans, Ármanns Reynissonar, sem Laurie Grundt er staddur hérlendis. En Ármann er einlægur aðdáandi myndlistarmannsins. Þegar Ármann var í Kaupmannahöfn í haust að kynna Vinjettur sínar bauð náinn vinur og landi Lauries Ármanni fyrirvaralaust með sér í heimsókn á heimili listamannsins og vinnustofu. „Það urðu fagnaðarfundir eins og um gamla vini væri að ræða. Ég færði Laurie eintak af Vestnorrænum vinjettum og las upphátt fyrir hann á dönsku margar vinjettur. Listamaðurinn varð svo hrifinn af myndrænum vinjettum frá Íslandi, Grænlandi og Færeyjum að hann skenkti mér olíumálverk og leirskúlptúr sem þakklætisvott. Eins og Noregskonungar gerðu til forna þegar skáld lásu þeim drápu.“ Þar sem Laurie Grundt hafði aldrei komið til Íslands hvatti Ármann listamanninn til að koma og upplifa landið nú í vor og njóta hinnar fallegu birtu sem einkennir þennan árstíma. „Listamaðurinn hefur alltaf verið mikill vinur Íslands og heillast af Íslendingasög- unum. Um þessar mundir er hann að vinna að mynda- seríu um Ísland sem tengist Íslandssögunni og náttúru landsins.“ Ármann segir Laurie búa í húsi friðarins og lifa heilbrigðu lífi. „En vill vera utan þessa hefðbundna niðurnjörvaða samfélags. Hann hefur aldrei tekið bílpróf en er annálaður hjólreiðamaður enn þann dag í dag. Hann hefur vinnustofu í Kristjaníu og hefur einnig málað nokkur vegglistaverk í fríríkinu og unnið skúlptúra sem setja sinn svip þar á.“ Vill vera utan niðurnjörvaðs samfélags Kaffisala í Vindáshlíð í Kjós, mánudaginn 1. júní kl. 14.00-18.00. Allir hjartanlega velkomnir. Enn eru nokkur pláss laus í sumarbúðirnar. Sjá eftirfarandi flokka: 7. flokkur 24.-30. júlí laust 9. flokkur 5.-11. ágúst örfá pláss laus 10. flokkur 12.-18. ágúst örfá pláss laus 11. flokkur 29.-23. ágúst laust Skráning og nánari upplýsingar á www.kfum.is og í síma 588 8899
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.