Fréttablaðið - 30.05.2009, Side 67
LAUGARDAGUR 30. maí 2009
m fyrstu sem fluttu í fríríkið Kristjaníu upp úr 1970. Hann segir það samfélagstilraun sem hafi
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
get selt það. Nei, ég er ekki auðug-
ur maður á veraldlega vísu. Í hverj-
um mánuði halda svo íbúar hússins
fund og fara yfir praktísk málefni
svo sem viðhald hússins. Í Kristjan-
íu er ekki hægt að kaupa hús. Hag-
kerfið byggir á leigupeningum sem
koma inn. Kristjanía hefur til ráð-
stöfunar um 20 milljónir danskra
króna árlega – frá 800 íbúum.“
Laurie telur kapítalískan hugs-
unarhátt undirrót alls ills. Málefni
Kristjaníu hafa verið í deiglunni að
undanförnu því stjórnvöld í Dan-
mörku reyna að fá fríríkinu lokað
og leggja landið undir aðra starf-
semi. Laurie segir málið fara fyrir
hæstarétt en það er í undirrétti
núna. Hann óttast ekki um fram-
tíðina ef Kristjanía fær að vera í
friði. „En við eigum fáa vini. Til
dæmis í fjölmiðlum sem eru mjög
markaðslega þenkjandi. Þeir vilja
bara bíða og sjá til. Og ef eitthvað
fer aflaga þá koma þeir til að fjalla
um það,“ segir Laurie. Eitt af því
sem hefur verið mjög umdeilt við
Kristjaníu er að þar hefur kanna-
bis, sem Laurie kallar hina bros-
andi plöntu, verið lögleitt. Laurie
segir allt vaðandi í kannabisefnum
á Norðurlöndum en hin kapítalísku
stjórnvöld hafi hag af því að gera
Kristjaníubúa að blórabögglum.
En morð og gengisstríð sem séu að
verða daglegt brauð í Kaupmanna-
höfn má rekja til þess að barist er
um svæði þar sem selja eigi eitur-
lyf. Hann leggur á það ríka áherslu
að íbúar séu algerlega samstiga í
því að úthýsa öllu því sem heitir
harðari efni svo sem amfetamín,
heróín og kókaín.
jakob@frettabladid.is
Níutíu myndir voru sýndar á Kvik-
myndahátíð grunnskóla í Reykja-
vík sem var haldin í Kringlubíói
á dögunum. Keppt var í aldurs-
flokkum 10 til 12 ára og 13 til 16
ára í fjórum flokkum kvikmynda.
Sýndar voru þrjár bestu myndirn-
ar í hverjum flokki fyrir fullum
sal. Vogaskóli vann í þriðja sinn í
flokki stuttmynda í eldri flokknum
og fyrir bestu hreyfimyndina og
besta karlleikarann. Grandaskóli
átti bestu stutt- og hreyfimyndina
í yngri flokki og hlaut einnig verð-
laun fyrir bestu leikkonuna. Kvik-
myndahátíðin er ein sú elsta hér á
landi enda hefur hún verið haldin
samfellt frá árinu 1981.
Níutíu mynda keppni
BESTI LEIKSTJÓRINN Katla Sigurðardóttir úr Hagaskóla fékk verðlaun fyrir bestu
leikstjórn og framleiðslu.
HELGAR-
TILBOÐ!
59.900,-
85.000,-
129.900,-
AFSLÁ
TTUR
Allt að
40%
AFSLÁ
TTUR
Allt að
40%
20.00
0,-SPA
RIÐ