Fréttablaðið - 30.05.2009, Page 71
LAUGARDAGUR 30. maí 2009 47
FÓTBOLTI Úrslitaleikur ensku bikar-
keppninnar fer fram á Wembley-
leikvanginum í dag. Leikurinn
hefst klukkan 14 og mætast Chel-
sea og Everton. Bæði lið eru ólm í
að ná í titil á leiktíðinni, ekki síst
Chelsea sem féll naumlega úr leik
í undanúrslitum Meistaradeildar
Evrópu.
„Tímabilið telst vera misheppn-
að ef við vinnum enga titla,“ sagði
Frank Lampard, leikmaður Chel-
sea, „og miðað við okkar mann-
skap er það líklega rétt. Við vilj-
um gjarnan kveðja Guus Hiddink
með sigri í þessum leik og eru allir
leikmenn sammála um það.“
Hiddink tók við Chelsea á miðju
tímabili eftir að Luiz Felipe Scol-
ari var látinn taka poka sinn. Hidd-
ink er þó landsliðsþjálfari Rússa
og hverfur aftur til þeirra starfa
nú þegar tímabilinu lýkur í Eng-
landi.
„Leikmenn hafa staðið þétt
saman síðan hann kom. Það hefur
verið frábært að vinna með honum,
enda er hann ekki bara frábær
knattspyrnustjóri heldur líka góð
manneskja.“
Hiddink vonar þó að leikurinn í
dag verði ekki hans síðasti í enskri
knattspyrnu.
„Enska úrvalsdeildin ber höfuð
og herðar yfir aðrar í knattspyrnu-
heiminum og auðvitað vildi ég
gjarnan fá tækifæri til að starfa
aftur hér,“ sagði Hiddink. „Mér
ber skylda til að fara aftur til Rúss-
lands en freistingin er vissulega til
staðar.“
David Moyes, stjóri Everton,
segir að tími sé kominn til að liðið
vinni bikar. „Ég sagði það fyrir
undanúrslitaleikinn og það hefur
ekkert breyst. Þetta er án nokkurs
vafa besta liðið sem ég hef stýrt
hjá Everton. Hér ríkir mjög góður
liðsandi þar sem liðsheildin skiptir
meira máli en einstaklingarnir.“
Hann segir Chelsea þó vera
sigurstranglegra liðið í dag. „Við
erum ekki oft í úrslitaleikjum og
Chelsea náði betri árangri í deild-
inni en við. Við förum samt í leik-
inn fullir sjálfstrausts og hlökkum
til að spila á Wembley.“ - esá
Úrslitaleikur ensku bikarkeppninnar á morgun þegar Everton mætir Chelsea á Wembley:
Viljum kveðja Guus Hiddink með sigri
LAMPARD OG HIDDINK Félagarnir á
æfingu Chelsea. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
HANDBOLTI Konráð Olavsson, fyrr-
verandi landsliðsmaður í hand-
bolta, tekur að öllu óbreyttu við
þjálfun norska félagsins Kristi-
ansand nú í sumar. Hann býr nú
í Danmörku en flytur til Noregs
í sumar.
„Kristiansand er gamalgróinn
klúbbur sem var lengi í efstu
deild. Svo féll félagið og lenti í
fjárhagshremmingum. En liðið er
á uppleið og stefnir á að fara upp
í efstu deild innan þriggja ára,“
segir Konráð.
Hann hefur áður þjálfað yngri
flokka hjá KR og Stjörnunni auk
þess sem hann var aðstoðarþjálf-
ari Kristjáns Halldórssonar hjá
meistaraflokki Stjörnunnar á
sínum tíma. Þetta er hans fyrsta
stóra verkefni sem þjálfari.
Konráð segir vel koma til
greina að fá íslenska leikmenn til
félagsins. „Það er góður háskóli
í Kristiansand og þeim sem vilja
komast í nám og fóta sig í norska
handboltanum er velkomið að
hafa samband við mig,“ segir
Konráð. - esá
Konráð Olavsson:
Hefur þjálfara-
störf í Noregi
KONRÁÐ OLAVSSON Lék mestan hluta
ferils síns með Stjörnunni.
GOLF Íslenska mótaröðin í golfi
fer af stað um helgina en leikið
verður hjá sex klúbbum á þessu
sumri. Fyrsta mótið fer fram nú
um helgina hjá Golfklúbbi Suður-
nesja á Hólmsvelli í Leiru.
Flestir af bestu kylfingum
landsins taka þátt. Meðal þátt-
takenda í karlaflokki eru stiga-
meistarinn í karlaflokki frá 2008,
Hlynur Geir Hjartarson GK,
og Íslandsmeistari karla 2008,
Kristján Þór Einarsson GKJ.
Í kvennaflokki má nefna að
Nína Björk Geirsdóttir mætir
ásamt stigameistara í kvenna-
flokki 2008, Ragnhildi Sigurðar-
dóttur GR. - óój
Íslenska golfmótaröðin 2009:
Byrja í Leirunni
MEISTARINN 2008 Hlynur Geir Hjartar-
son úr GK vann í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KR-Fylkir 0-1
0-1 Danka Podovac (31.)
GRV-Stjarnan 1-0
1-0 Margrét Albertsdóttir (25.)
Breiðablik-Afturelding/Fjölnir 2-1
1-0 Harpa Þorsteinsdóttir (7.), 1-1 Amanda
Johansson (16.), 2-1 Fanndís Friðriksdóttir (19.)
Stig liða í Pespi-deild kvenna: Fylkir 13, Valur
12, Breiðablik 12, Stjarnan 12, Þór/KA 7, Aftureld-
ing/Fjölnir 6, GRV 6, KR 3, Keflavík 0, ÍR 0.
PEPSI-DEILD KVENNA
HETJAN Danka Podovac tryggði Fylki
sigur á KR í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
AUKAFERÐIR Í SUMAR
Básaskersbryggju | 900 Vestmannaeyjar | Sími 481 2800 | Fax 481 2991 | www.eimskip.is | www.herjolfur.is
Eftirtaldar næturferðir / aukaferðir hafa verið settar inn í áætlun Herjólfs í sumar.
Brottf. Brottf. frá
Dagsetning frá Ves. Þorl. e. miðn. Staða pantana Viðburður
7. júní 23:00 02:00 (8. júní) Sjómannadagurinn
23. júní 23:00 02:00 (24. júní) Shellmót
24. júní 23:00 02:00 (25. júní) Shellmót
27. júní 23:00 02:00 (28. júní) Shellmót
28. júní 23:00 02:00 (29. júní) Shellmót
2. júlí 23:00 02:00 (24. júlí) Goslokahátíð
5. júlí 23:00 02:00 (6. júlí) Goslokahátíð
28. júlí 23:00 02:00 (29. júlí) Þjóðhátíð
29. júlí 23:00 02:00 (30. júlí) Þjóðhátíð
30. júlí 23:00 02:00 (31. júlí) Þjóðhátíð
31. júlí 23:00 02:00 (1. ágúst) Þjóðhátíð
4. ágúst 01:00 04:00 (4. águst) Upppantað frá Vestmannaeyjum Þjóðhátíð
4. ágúst 23:00 02:00 (5.ágúst) Upppantað frá Vestmannaeyjum Þjóðhátíð
5. ágúst 23:00 02:00 (6. ágúst) Þjóðhátíð
6. ágúst 23:00 02:00 (7. ágúst) Þjóðhátíð
21. ágúst 23:00 02:00 (22. ágúst)
23. ágúst 23:00 02:00 (24. ágúst)
3. sept 23:00 02:00 (4. sept)
6. sept 23:00 02:00 (7. sept)
8. október 23:00 02:00 (9. okt)
11. október 23:00 02:00 (12. okt)
Shellmót - síðasti greiðsludagur pantana er 2. júní. Ósóttar pantanir seldar frá 4. júní.
Þjóðhátíð - síðasti greiðsludagur er 6. júlí, ósóttar pantanir seldar frá 9. júlí.
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
9
0
8
9
3