Fréttablaðið - 30.05.2009, Page 78

Fréttablaðið - 30.05.2009, Page 78
54 30. maí 2009 LAUGARDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 PERSÓNAN LÁRÉTT 2. ofsi, 6. mannþvaga, 8. angra, 9. farvegur, 11. í röð, 12. þrástagast, 14. gleði, 16. í röð, 17. viður, 18. röð, 20. rykkorn, 21. flóki. LÓÐRÉTT 1. landamerki, 3. guð, 4. skjalla, 5. draup, 7. sáluhjálp, 10. taug, 13. flík, 15. verðir, 16. tímabils, 19. skamm- stöfun. LAUSN LÁRÉTT: 2. ærsl, 6. ös, 8. ama, 9. rás, 11. jk, 12. klifa, 14. unaðs, 16. áb, 17. tré, 18. róf, 20. ar, 21. strý. LÓÐRÉTT: 1. mörk, 3. ra, 4. smjaðra, 5. lak, 7. sálubót, 10. sin, 13. fat, 15. sért, 16. árs, 19. fr. Hugleikur Dagsson Aldur: 31 árs. Starf: Listamaður. Stjörnumerki: Vog. Fjölskylda: Stór. Búseta: Bý á landamærum Vestur- bæjar og miðbæjarins. Hugleikur samdi myndasögur fyrir Símaskrána annað árið í röð. Aðdáendur Stiegs Larsson geta andað léttar. Tekist hafa samn- ingar milli dreifingarfyrirtæk- isins Senu og Nordisk film um að kvikmyndin Karlar sem hata konur verði sýnd hér á landi. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá voru ansi mörg ljón í veginum þegar reynt var að fá myndina hingað til lands en nú hefur tekist að ryðja þeim öllum úr veginum. Bók Larssons hefur notið næstum fáránlegra vinsælda, Hún er nán- ast uppseld í innbundinni útgáfu og kiljan rýkur út eins og heitar lummur. Tvær aðrar myndir verða gerð- ar eftir bókum Larssons og þær verða báðar sýndar hér á landi samkvæmt samningnum. Önnur myndin verður frumsýnd í lok þessa árs en síðasta myndin í þrí- leiknum verður sýnd eftir áramót. Karlar sem hata konur hefur sleg- ið öll aðsóknarmet á hinum Norð- urlöndunum og nánast haldið uppi miðasölunni í bíóhúsunum þar. Myndin verður frumsýnd 22. júlí næstkomandi og verður aðal- leikkona myndarinnar, hin sænska Noomi Rapace, væntanlega við- stödd frumsýninguna. Vonir standa til að fleiri leikarar verði hér viðstaddir. Noomi leikur húð- flúraða tölvunjörðinn Lisbeth Sal- ander en það er hinn þrautreyndi Michael Nyquist sem bregður sér í líki Mikaels Blomkvist. Noomi ætti ekki eiga í vandræð- um með að krafsa sig fram úr við- tölum við íslenska fjölmiðlamenn. Hún á íslenskan stjúpföður og býr yfir ágætis íslenskukunnáttu. Noomi bjó meðal annars á Flúð- um ásamt móður sinni í nokkur ár. Í viðtali við dagblaðið Syd- svenska í lok janúar sagði Noomi meðal annars að þrátt fyrir vel- gengni sína á hvíta tjaldinu væri hugurinn nú hjá Íslendingum vegna efnahagskrísunnar. „Ég er alveg viss um að við eigum eftir að sjá forvitnilega list koma þaðan á næstu árum, bæði í kvikmyndum, bókmenntum og tónlist,“ sagði Noomi. Og svo skemmtilega vill til að Hrafn Gunnlaugsson var sá leikstjóri sem fyrstur uppgötv- aði hæfileika leikkonunnar því hún lék lítið hlutverk í myndinni Skugga hrafnsins, sjálfstæðu framhaldi af Hrafninn flýgur, sem gerð var 1988. Hrafn var að vonum ánægður þegar Fréttablað- ið hermdi þetta upp á hann. „Ég man nú óljóst eftir henni, held að hún hafi búið í Svíþjóð á þess- um tíma. En þetta var stelpa sem hafði einhver áhrif, hafði eitthvað við sig, þetta eðli, og það gleður mann alltaf að sjá fólk sem hefur tekið þátt í myndunum manns og verður síðan eitthvað annað og meira,“ segir Hrafn. freyrgigja@frettabladid.is NOOMI RAPACE: VIÐHAFNARFRUMSÝNING Á KÖRLUM SEM HATA KONUR Hrafn Gunnlaugsson upp- götvaði Lisbeth Salander ALTALANDI Á ÍSLENSKU Noomi Rapace er orðin ein frægasta leikkona Norðurlandanna eftir leik sinn í kvikmyndinni Karlar sem hata konur. Noomi þreytti frumraun sína í kvikmyndum þegar hún lék lítið hlutverk hjá Hrafni Gunnlaugssyni. „Þetta er hluti af okkar nýstárlegu markaðssetningu – að tengjast tón- leikum víðs vegar um landið. Erum að senda skilaboð. Að fara á böll, dansa og hlusta á músík sem er stór þáttur í félagslífi ungs fólks, ekki síst á Bifröst,“ segir Ágúst Einars- son, prófessor og rektor við Háskól- ann á Bifröst. Í fundargerð skólans frá 21. apríl segir: Nýdönsk verður ambassador skólans. Má þetta heita frumleg- ur leikur en ekki þekkjast fordæmi þess að skóli komi að rekstri vin- sællar hljómsveitar þótt fyrirbærið skólahljómsveit sé þekkt. Upplyft- ing er til dæmis kennd við Bifröst. Ágúst veit ekki nákvæmlega hvern- ig samningum við Nýdönsk er háttað og vísaði á markaðsstjóra skólans, Kristínu Ólafsdóttur, hálfsystur hljómborðsleikara Nýdanskra, Jóns Ólafssonar – en ekki náðist í hana í gær. Ágúst segir mikið tón- listarlíf í Bifröst og þetta er liður í að styðja við það. „Tengjum vinsæla hljómsveit skólan- um, leggjum góðum málum lið og látum músíkina tala.“ Gamli Verzlónem- inn Jón segir Nýdönsk fá sanngjörn vinnulaun fyrir sitt framlag. „Það vakna ýmsar hugmyndir í þessari kreppu. Það er nú ekki þannig að við séum með Bifrastarmerkið á enninu þegar við komum fram en reynum að vera þessum frábæra háskóla til sóma.“ Upplyfting mun vera að vinna að plötu og Jón telur þetta hafa hleypt skapi í það ágæta band. „Þetta hefur haft mikil áhrif á Upplyftingu og ég spyr: Munu þeir spila fyrir Verzló og MH í haust til að hefna sín? Ég hef heyrt að þeir íhugi að skila stúd- entshúfum sínum og skóla- skírteinum vegna málsins. Kannski við setjum „Traustur vinur“ á pró- grammið til að blíðka þá.“ - jbg Nýdönsk ambassadorar Háskólans á Bifröst ÁGÚST EINARSSON Með því að gera vinsæla hljómsveit að sinni er verið að styðja tónlistarlíf skólans og senda skilaboð til væntan- legra nemenda. AMBASSADORAR OG POPPARAR Nýdönsk spilar á vegum Háskólans á Bifröst og Jón Ólafsson hefur heyrt að það hafi hleypt illu blóði í gamla skóla- band Bifrastar - Upplyftingu. „Við erum búin að vera að bíða eftir þessum bíl í svolítinn tíma og hann er nýkominn,“ segir Manúela Ósk Harðardóttir um glæsilegan bíl sem hún og eig- inmaður hennar, Grétar Rafn Steinsson fótbolta- maður, hafa fest kaup á. Bíllinn er af gerðinni Audi Q-7, en var breytt sérstaklega eftir óskum Manú- elu. „Ég er svo hrifin af hvítum bílum svo ég vil hafa allt hvítt, en Audi-merkin aftan á og á stýr- inu eru bleik. Felgurnar eru líka hvítar, nema lít- ill hluti í miðjunni sem er bleikur,“ segir Manúela sem sérhannaði einnig áklæð- in inn í bílinn. „Það er hægt að ákveða hvernig maður vill hafa saumana, leðr- ið og leika sér með það. Nafnið mitt er á höfuð- púðanum, en ég skrif- aði bara nafnið mitt á blað og þeir settu það á, svo þetta er í raun undirskriftin mín,“ útskýrir Manúela og segist ánægð með útkomuna. „Það er líka þægilegt að þetta er sjö manna bíll, því við lend- um stundum í því að hafa ekki nóg pláss þegar við fáum hópa í heimsókn og erum að skutla og sækja fólk út á völl,“ bætir hún við. Aðspurð segir hún þau Grét- ar vera alsæl í Bolton, en hún sat úti í 25 stiga hita og sól þegar blaðamaður náði tali af henni. „Ég er mjög ánægð hérna úti. Við vorum að flytja á betri stað í bænum og það fer rosa- lega vel um okkur,“ segir Manúela. - ag ENDURNÝJA HJÚSKAPAR- HEITIN Manúela og Grétar Rafn fótboltamaður ætla að endurnýja hjúskaparheit sín hér á landi í júní, en þau gengu í það heil- aga í Hollandi árið 2007. Lét breyta glænýjum Audi Verð kr. 265.000.- Hrein fjárfesting ehf Dalbraut 3 105 reykjavík • rainbow@rainbow.is Sími verslun 567 7773 . kvöld og helgar 893 6337 www.rainbow.is Rainbow Bjóðum nokkrar Rainbow á 186,000 Eða gömul Rainbow upp í nýja tilboð 155,000 Eigum einnig notaðar yfi rfarnar rainbow með ábyrgð verð 80.000 tilboð 58.000 meðan byrgðir endast. Krimmahátíðin hófst á fimmtu- dagskvöld en Ævar Örn Jóseps- son, helsti skipuleggjandinn, sást þá rölta inn á Grand Rokk og fór fyrir fjölda glæpasagnahöfunda sem hér eru staddir í tilefni hátíð- arinnar – sem reyndar á að fara fram að mestu í Norræna húsinu. Jo Nesbø og Diane Wei Liang eru meðal þeirra sem má þessa dag- ana sjá spóka sig á götum Reykja- víkur. Og komið hefur á daginn að norski höfundurinn Anne B. Ragde, sem skrifaði Berlínaraspirnar, er hér einnig til að fylgjast með hátíðinni. Væntanleg er í íslenskri þýðingu bók eftir hana í haust sem heitir Á grænum grundum. Selma Björnsdóttir fagnaði tíu ára Eurovision-afmæli sínu í gær en sú stund, þegar Selma var „næstum“ því búin að vinna þessa vinsælu lagakeppni í Ísrael er Íslendingum ógleymanleg. Þeir eru ófáir sem hafa haldið því fram að Selma hefði í raun átt að vinna með laginu All out of Luck og þannig fékk hún hamingjuóskir frá ísraelskum aðdáanda sem sagði hana alltaf vera „the winner“. Kristján B. Jónasson var nýverið í Búlgaríu. Og það þykir kannski ekki fréttnæmt að slíkur menningarpáfi hafi dvalist á meðal Búlgara að njóta alls þess besta sem austur- evrópsk menning hefur upp á að bjóða. Hins vegar segir Kristján frá því að hann hafi spurt nokkra Búlgara hvort þeir vissu hver Ásdís Rán væri, en fjölmiðlar hafa flutt af henni frægðarsögur að undanförnu, en þá stóðu Búlgarar víst á gati. - jbg, fgg FRÉTTIR AF FÓLKI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.