Fréttablaðið - 08.08.2009, Side 4
4 8. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
Vegna skrifa í dálknum Frá degi til
dags í gær vill Helgi Helgason, sem
situr í framkvæmdastjórn Frjáls-
lynda flokksins, taka fram að með
frétt flokksins um að „einungis hafi
borist 5-6 úrsagnir úr flokknum eftir
kosningar“ sé átt við að spár um
hópúrsagnir hafi ekki ræst.
ATHUGASEMD
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Ósló
París
Róm
Stokkhólmur
28°
23°
25°
29°
27°
22°
30°
23°
24°
26°
30°
23°
27°
33°
22°
27°
33°
25°
15
15
14
13 17
16
16
13
16
12
10
5
5
3
3
2
5
5
5
3
5
6
Á MORGUN
Hægviðri. Síðdegisskúrir
nyrðra
MÁNUDAGUR
3-8 m/s
13
12 15
14
14
BARA ÁGÆTT VEÐUR
Það er viðburðaríkur
dagur í dag. Fiskidagur-
inn mikli á Dalvík, gleði-
gangan í Reykjavík og
sjálfsagt eru uppákomur
víðar. Veðrið verður bara
ágætt. Hægur vindur
og hlýtt. Skúrir á stangli
sunnan og vestan til
með góðum uppstyttum
og jafnvel björtu á milli.
Norðanlands verður bjart
nú með morgninum en
svo þykknar smám sam-
an upp enda hætt við
síðdegisskúrum. Þurrt að
mestu eystra.
12 14
14
14 12
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
Þessar varmadælur nýta orku í útilofti og skila henni inn í hús. Sem dæmi
þá notar varmadæla ca 1kw en skilar 4.31kw inn sem hita. Þær hreinsa og
gera loftið betra. Þær geta stýrt hitastigi svo sem dag og næturhita.
Íslenska ríkið endurgreiðir hluta af kostnaði við orkusparandi framkvæmdir.
Uppl. í sima 8239448 eða senda email:
varmadaela@varmadaela.is
Varmadælur til Húshitunar.
Stórlækkið upphitunarkostnað með varmadælu.
GENGIÐ 07.08.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
233,4168
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
123,35 125,95
209,87 210,89
179,69 180,96
24,168 24,31
20,586 20,708
17,459 17,561
1,3147 1,3223
196,08 197,24
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
STJÓRNMÁL Utanríkisráðherra og fjármálaráðherra
koma á fund utanríkismálanefndar Alþingis á mánu-
dag og fjalla um samskipti íslenskra stjórnvalda við
stjórnvöld í nágrannalöndunum vegna Icesave.
Ekki hefur enn fundist lausn á Icesave-deilunni
sem samstaða er um innan stjórnarliðsins en þing-
menn, ráðherrar og embættismenn hafa unnið að því
þrotlaust síðustu daga og vikur.
Víst er að Alþingi mun setja fyrirvara við frum-
varpið um ríkisábyrgð vegna Icesave-samninganna
en deilt er um hversu langt á, og hægt sé, að ganga.
Þá eru uppi mismunandi sjónarmið um hversu
sterka fyrirvara þarf í raun að setja um endurupp-
töku samningsins ef efnahagslegar aðstæður breyt-
ast til hins verra. Þeim sjónarmiðum hefur verið
hreyft innan fjárlaganefndar að ákvæði í samning-
unum sjálfum geri einmitt ráð fyrir endurupptöku
við slíkar aðstæður.
Enn er með öllu óvíst hvenær fjárlaganefnd lýkur
meðferð sinni um Icesave-málið.
Þingfundur verður á mánudag eftir nokkurt hlé.
Enn er óvíst hver dagskrá fundarins verður en
þrjátíu mál bíða meðferðar þingsins. - bþs
Ráðherrar á fund utanríkismálanefndar til að fjalla um samskiptin vegna Icesave:
Upplýsa um samskipti við grannþjóðir
DÓMSMÁL Efnafræðineminn Tindur Jónsson,
annar þeirra sem ákærður er í amfetamínverk-
smiðjumálinu í Hafnarfirði, fór upphaflega að
vinna fyrir hinn sakborninginn, Jónas Inga
Ragnarsson, með það í huga að aðstoða hann
við að framleiða eldvarnarefni. Honum þótti
verkefnið svo vænlegt til árangurs að hann tók
þátt í frumkvöðlakeppni hjá fyrirtækinu Inn-
ovit út á það. Þetta er meðal þess sem fram
kemur í greinargerð verjanda Tinds, sem lögð
var fram í Héraðsdómi Reykjaness í vikunni.
Í greinargerðinni segir enn fremur að Tind-
ur hafi viljað ljúka afplánun dóms, sem hann
hlaut fyrir sveðjuárás, á áfangaheimilinu
Vernd. Til þess hefði hann þurft vinnu og engin
önnur vinna hafi staðið til boða en sú hjá Jónasi
Inga.
Mennirnir neita báðir að hafa ætlað að fram-
leiða amfetamín í verksmiðju sem upprætt var
í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði í fyrrahaust. Sér-
fræðingur Europol hefur sagt að verksmiðjan
hafi verið ein sú fullkomnasta sem hann hafi
séð, og að úr upphafs- eða milliefnunum sem
fundust á vettvangi hefði mátt framleiða um
353 kíló af amfetamíni.
Í greinargerðum verjendanna Sveins Andra
Sveinssonar og Brynjars Níelssonar segir að
hvorugur maðurinn hafi haft í hyggju að fram-
leiða amfetamín. Jónas Ingi hafi vitað að það
væri hægt, en Tindur ekki haft hugmynd um
það. Auk þess hafi hvergi fundist önnur nauð-
synleg efni til amfetamínframleiðslu.
Segir í greinargerð Sveins að Jónas Ingi hafi
ætlað að framleiða milliefnið P-2-P úr upphafs-
efninu P-2-NP með aðstoð Tinds. Hann hafi
síðan ætlað að selja milliefnið á svörtum mark-
aði. Framleiðsla þess sé ekki ólögmæt nema ef
sannað þykir að það hafi verið ætlað til fíkni-
efnaframleiðslu, en það hafi Jónas ekkert vitað
um.
Hátt í tonn af mjólkursykri sem fannst á
staðnum, og lögregla telur að hafi verið ætluð
sem íblöndunarefni til drýgingar amfetamíns-
ins, breyti engu þar um enda hafi Jónas stund-
að sölu á ýmsum efnum sem hefði mátt drýgja
fíkniefni með.
Þá er gerð athugasemd við ætlað magn
amfetamíns sem segir í ákæru að hefði mátt
framleiða úr upphafs- og milliefnunum. Kílóin
353 séu miðuð við vel drýgt og veikt amfetam-
ín en réttilega ætti að miða við hreint amfet-
amín, og líklega hefði einungis mátt fram-
leiða fjórtán slík kíló úr efnunum miðað
við 50 prósenta afrakstur.
Aðalmeðferð í málinu fer fram í
byrjun september.
stigur@frettabladid.is
Verkefni Jónasar og Tinds
notað í frumkvöðlakeppni
Tveir meintir fíkniefnaframleiðendur ætluðu upphaflega að framleiða saman eldvarnarefni. Hugmyndin
þótti svo góð að hún var send í frumkvöðlakeppni. Þeir neita báðir að hafa ætlað að framleiða amfetamín.
VERKSMIÐJAN FULLKOMNA Sérfræðingur Europol hefur
sjaldan séð annað eins.
TINDUR JÓNSSON Tindur
hlaut árið 2006 sex ára
fangelsisdóm fyrir tilraun
til manndráps.
JÓNAS INGI RAGNARSSON Jónas hlaut
árið 2004 tveggja og hálfs árs dóm í
líkfundarmálinu svokallaða.
Á ALÞINGI Þingfundur verður á mánudag eftir nokkurt hlé.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
PARÍS, AP Bandaríska tölvufyrir-
tækið Google hefur ráðið tvo
unga menn til að hjóla um götur
Parísar á nýstárlegu þríhjóli.
Á hjólinu eru níu myndavélar,
GPS-staðsetningartæki, tölva og
rafall.
Myndirnar og upplýsingarnar
verða notaðar í þrívíddarmyndir
sem munu prýða götukort Google
sem almenningur getur skoðað
sér að kostnaðarlausu. París
verður kortlögð götu fyrir götu
þangað til 20. ágúst þegar haldið
verður í norðurhluta Frakklands.
Svipuð þríhjól kembdu fyrr í
sumar götur Bretlands og Ítalíu
en nú er komið að Frakklandi.
Til að virða einkalíf fólks hefur
Google sett upp hugbúnað sem
sér til þess að hvorki sjáist í and-
lit né bílnúmeraplötur á götukort-
inu. - fb
Tveir starfsmenn Google:
Kortleggja París
á skrítnu hjóli
NÝSTÁRLEGT ÞRÍHJÓL Starfsmaður
Google hjólar um götur Parísar á þríhjól-
inu nýstárlega. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Karlmaður á fimm-
tugsaldri hefur verið dæmdur í
fjögurra mánaða skilorðsbund-
ið fangelsi fyrir líkamsárás af
gáleysi vegna þess að skot hljóp
úr byssu hans í handlegg veiðifé-
laga hans. Svo virðist sem skot-
ið hafi hlaupið úr gamalli byss-
unni, þrátt fyrir að öryggið væri
á, þegar maðurinn sveiflaði poka
með gerviöndum inn í skott á bíl.
Maðurinn var sýknaður af
ákæru um brot gegn veiðilögum,
en talið var að hann hefði borið
ólöglegt vopn við veiðarnar. Taldi
dómari að þegar hann hélt á byss-
unni í bíl sinn hafi hann verið
hættur veiðunum. - sh
Líkamsárás af gáleysi:
Gerviandapoki
olli slysaskoti