Fréttablaðið - 08.08.2009, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 08.08.2009, Blaðsíða 46
26 8. ágúst 2009 LAUGARDAGUR timamot@frettabladid.is Haldið verður upp á 150 ára afmæli Ögurkirkju með hátíðarmessu í dag. Athöfnin hefst klukkan tvö og að henni lokinni verður boðið upp á kaffiveiting- ar í samkomuhúsinu í Ögri. Kirkja hefur verið í Ögri frá fyrstu árum kristni á Íslandi og hefur hún alla tíð verið í eigu bænda þar enda er Ögur fornt höfðingjasetur. Sá sem þar ræður húsum nú er Halldór Hafliða- son og hann er líka formaður sóknar- nefndar. Það kemur því í hans hlut að halda kirkjunni við. Segir hana líka njóta styrkja enda hafi hún sjálfkrafa verið friðuð árið 1990, samkvæmt ald- ursákvæði í þjóðminjalögum. En er hún mikið notuð til messuhalds? „Hér er nú yfir fáum að messa, alla jafna, því í sókninni eru einungis milli 20 og 30 manns,“ svarar Halldór. Þegar haft er orð á að mannfjöldatölur muni hafa verið aðrar árið 1859 þegar kirkjan var vígð tekur hann undir það. „Það var urmull af fólki í sveitinni þegar hún var byggð. Þá var margt á bæjum.“ Hall- dór segir þó yfirleitt messað einu sinni á sumri og alltaf sé eitthvað um aðrar athafnir í kirkjunni. „Það var skírn hér um páskana,“ tekur hann sem dæmi. Kirkjan var byggð á sínum tíma af Þuríði Þiðriksdóttur og fóstursyni henn- ar, Hafliða Halldórssyni. Kirkjusmið- irnir voru þrír: Jón Jónsson, snikkari á Ísafirði, Jóhann Grundtvig, smiður á Ísafirði, og Finnbogi Jónsson á Mel- graseyri. Árið 1886 lét þáverandi Ögur- bóndi, Jakob Rósinkarsson, taka kirkj- una til gagngerra endurbóta og þá var meðal annars settur á hana turn. Síðar meir var hún máluð bæði að innan og utan auk þess sem skipt var um viði í suðurhlið hennar árið 1984. Halldór segir allmikið um að ferða- fólk sækist eftir að skoða kirkjuna. Harpa dóttir hans tekur undir það og minnist þess að hafa rogast með stóra kirkjulykilinn þegar hún var barn, til að opna fyrir gestum. Einnig rifjar hún upp kökubakstur fyrir messudaga því þá hafi gjarnan verið boðið upp á kaffi í Ögri. „Kirkjan hefur alltaf verið hluti af lífi okkar hér og okkur þykir mjög vænt um hana,“ segir hún. Halldór segir Súgandafjarðarprest hafa þjónað kirkjunni í nokkur ár, áður hafi það verið Vatnsfjarðarprestur. Það er séra Valdimar Hreiðarsson, prestur á Suðureyri, sem stígur í stól- inn í dag í hátíðarmessunni. Sóknar- börn kirkjunnar fyrr og síðar eru sér- staklega boðin velkomin til athafnar- innar ásamt öðrum velunnurum. gun@frettabladid.is ÖGURKIRKJA VIÐ ÍSAFJARÐARDJÚP: FAGNAR 150 ÁRA AFMÆLI Þá var margt fólk á bæjum AÐ ÖGRI Hin aldna Ögurkirkja ásamt gamla húsinu í Ögri sem byggt var á árunum 1884-85 og var þá stærsta íbúðarhús í sveit á Íslandi. MYND/HALLDÓR HALLDÓRSSON AÐALHEIÐUR BJARNFREÐS- DÓTTIR ALÞINGISMAÐUR FÆDD- IST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1921. „Það er hvorki gott fyrir okkur að hafa of mikið né of lítið.“ Aðalheiður starfaði sem vinnukona, fiskverkakona, bóndakona, bréfberi og al- þingismaður Borgaraflokks- ins. Hún var þekkt fyrir bar- áttu fyrir bættum kjörum al- þýðunnar. MERKISATBURÐIR 1504 Höggmyndin Davíð eftir Michelangelo Buonarroti er sett upp fyrir framan Palazzo Vecchio í Flórens. 1949 Bútan verður sjálfstætt undan Bretlandi. 1976 Kirkja Jesú Krists hinna síðari daga heilögu er stofnuð í Reykjavík. 1992 Á Ólympíuleikunum í Barcelona á Spáni nær ís- lenska handboltalands- liðið fjórða sæti. 1993 Veikur sjómaður er sótt- ur um borð í franskt rann- sóknarskip norðaustur af Íslandi. Fjarlægðin var 1.100 mílur. Sjónvarpið sýnir á morgun hundraðasta þáttinn af Út og suður. Þættirnir hófu göngu sína vorið 2003 og hafa verið á dagskrá á hverju sumri síðan. Viðmælendur í þáttunum eru komnir á þriðja hundraðið, fólk af öllum stærðum og gerðum út og suður um landið. Gísli Einarsson hefur séð um þáttinn frá upphafi. „Það kom mér á óvart þegar ég komst að því að þættirnir væru orðnir hundrað en eins og annað skemmtilegt hefur þessi tími liðið ansi hratt. Þegar ég byrjaði hélt ég að efniviður- inn myndi endast í eitt eða tvö sumur en ég hef uppgötvað að það er endalaus uppspretta af áhugaverðu og skemmti- legu fólki í landinu,“ segir Gísli sem í þættinum á morgun heimsækir Hornstrandir. Í tilefni af tímamótunum verður þátturinn ríflega tvö- falt lengri en venjulega. Gísli ræðir þar við Jón Björns- son, landvörð á Hornströndum, sem gengur 600 kílómetra á ári út og suður um Hornstrandir á fimmtán ára göml- um gúmmístígvélum. Ester Rut Unnsteinsdóttir, forstöðu- maður Melrakkaseturs Íslands, ræðir um heimskautaref- inn sem lifir góðu lífi í friðlandinu og svo tekur Gísli hús á mæðginunum Birnu Pálsdóttur og Hrólfi Vagnssyni sem dvelja sumarlangt í gamla Læknishúsinu á Hesteyri. Hundrað sinnum Út og suður Á HORNSTRÖNDUM Gísli Einarsson og Freyr Arnarson myndatöku- maður á Hornströndum þar sem sér niður í Miðvík í Aðalvík. Stærsta lestarrán í sögu Bret- lands fram til ársins 2006 var framið þennan dag árið 1963. Upphæðin sem rænt var nam rúmlega tveimur og hálfri milljón punda. Atburð- urinn átti sér stað í Ledburn í Buckinghamshire. Póstlest á leið frá Glasgow til London var stöðvuð á rauðu ljósi og aðstoðarlestarstjórinn fór út til að athuga málið. Sá hann þá að skorið hafði verið á símalínur og ljósunum breytt. Misindismenn fengu lestarstjórann til að aka lest- inni þangað sem bílar biðu þeirra og peninganna. Engar byssur voru notaðar en lestarstjórinn sem ráðist var á var sleginn í höfuð- ið með járnröri og náði sér aldrei eftir það. Ræningjarnir voru fimmtán talsins, höf- uðpaur þeirra maður að nafni Bruce Reyn- olds. Þrettán náðust og voru dæmdir í fang- elsi. Sá sem fyrstur gekk í gildru yfirvalda hét Roger Cordrey. Hann var handtekinn ásamt vini sínum sem hafði aðstoð- að hann við að fela hluta ránsfengsins. Leigusali sagði til þeirra þegar þeir greiddu þriggja mánaða húsaleigu fyrirfram með reiðufé. ÞETTA GERÐIST: 8. ÁGÚST 1963 Tveimur og hálfri milljón punda stolið 90 ára afmæli 90 ára er á morgun, 9. ágúst, Guðrún Magnúsdóttir Meistaravöllum 15, Reykjavík. Hún verður með heitt á könnunni á Afl agranda 40, eftir kl. 15 á afmælisdaginn. MOSAIK Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, Hildimundar Sæmundssonar Túngötu 4, Álftanesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks þjónustumiðstöðvar og þriðju hæðar Sjálfsbjargar- heimilisins. Aðalheiður Sigurdís Steingrímsdóttir Steingrímur Hildimundarson Steinhildur Hildimundardóttir Leifur Eysteinsson Kristín Hildimundardóttir Jón Unnar Gunnsteinsson Sæmundur Hildimundarson Nancy Rut Helgadóttir og barnabörn. Hugheilar þakkir færum við öllum þeim sem heiðruðu minn- ingu móður okkar og tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, Kristínar Sigurðardóttur Borgarbraut 65A, Borgarnesi. Guð blessi ykkur öll. Sæunn Andrésdóttir Guðrún Andrésdóttir Konráð Andrésson Margrét Björnsdóttir Guðleif Andrésdóttir Ottó Jónsson Anna María Andrésdóttir Arnheiður Andrésdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.